Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjósa um sjálfstæði landsins Milljónir manna hafa mætt á kjörstað í Suður-Súdan í dag og greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði landsins frá norðurhluta landsins. Langar biðraðir hafa myndast í morgun fyrir framan kjörstaði í höfuðborg landsins, Juba. 9.1.2011 14:49
Drottningin: Þetta er dásamlegur dagur Dönsku konungshjónin eru himinlifandi yfir fæðingu tvíburanna sem krónprinsparið eignaðist í gær. Margrét Þórhildur drottning heimsótti tengadóttur sína Maríu og soninn Friðrik á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn í gær. 9.1.2011 14:30
Ljúka fjórðu endurskoðun á mánudag Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun ljúka fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni og er haft eftir Franek Roszvadovski sendifulltrúi sjóðsins hér á landi. 9.1.2011 13:30
Fjölskyldan þakkar hlýhug Líðan Péturs Kristjáns Guðmundssonar, sem slasaðist þegar hann féll fram af bjargi í Austurríki á nýársnótt og skaddaðist alvarlega á mænu, er stöðug og er hann á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hans. Vonir standa til að Pétur geti komist heim til Íslands sem fyrst. 9.1.2011 13:26
„Viljum fá sem flesta á listann okkar“ Rúmlega fjörtíu og þrjú þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra en karaókímaraþoni til stuðnings málefninu lauk á miðnætti. 9.1.2011 12:13
Skotárás í Bandaríkjunum: Leita að vitorðsmanni Gabrielle Giffords þingmaður Arizona á Bandaríkjaþingi liggur mikið særð á sjúkrahúsi í Tuscon í Arizona eftir skotárásina í gærdag. Bænavaka var haldin fyrir utan skrifstofu Giffords í borginni í gærkvöldi til að minnast þeirra sem misstu lífið í skotárásinni og fyrir bata þeirra sem særðust. 9.1.2011 12:05
Betur fór en á horfðist í upphafi Líðan barnsins sem fékk sjóðandi vatn yfir sig í gær er eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á Landsspítalanum. Fjórtán mánaða gömul stúlka fékk sjóðandi vatn yfir sig í Þorlákshöfn í gær þegar foreldrarnir litu í örstutta stund frá potti sem var verið að sjóða í vatn. 9.1.2011 12:00
Lýsa vanþóknun á aðför bandarískra stjórnvalda Hreyfingin lýsir vanþóknun á aðför bandarískra stjórnvalda á tjáningar- og persónufrelsi þeirra sem hafa komið að birtingu upplýsinga sem sýna stríðsglæpi bandaríska hersins í Írak. 9.1.2011 11:09
Reyndu að stinga öryggisvörðinn af Par undir tvítugu braust inn í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Þau klifruðu yfir girðingu og skelltu sér í heitu pottana þar sem þau dvöldu í dágóða stund áður en þjófavarnarkerfi laugarinnar fór í gang. 9.1.2011 10:50
Sleginn með glerflösku í höfuðið Fangageymslur á Lögreglustöðinni við Hverfisgötu fullar eftir nóttina. Er það vegna ýmissa mála, líkamsárása, ölvunaraksturs, þjófnaða og svo aðstoð við borgarana vegna ölvunar. Nokkuð var um minniháttar pústra og slagsmál í miðbænum, hávaðaútköll og ágreininga. 9.1.2011 09:59
Síðasta afmælið sem alþýðustúlka Katrín Middelton væntanleg prinsessa af Bretlandi heldur í dag í síðasta skipti upp á afmæli sitt sem venjuleg alþýðustúlka, en hún mun ganga að eiga Vilhjálm prins hinn 29. apríl næst komandi. 9.1.2011 09:47
Rafmagnslaust vegna skammhlaups Eldur kom upp í spennustöð í við gamla barnaskólann við Ljósafossvirkjun í nótt. Að sögn lögreglu á Selfossi varð skammhlaup í stöðinni og var kallað á slökkvilið. Eldurinn var ekki mikill en skemmdir eru einhverjar. Unnið er að viðgerð. 9.1.2011 09:40
Yfir 40 þúsund vilja þjóðaratkvæðagreiðslu Rúmlega fjörtíu og tvö þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 9.1.2011 09:39
Þingmaðurinn alvarlega særður Gabrielle Giffords þingmaður demókrata frá Arizona í Bandaríkjunum er alvarlega særð á sjúkrahúsi eftir skotárás í gærkvöldi. 9.1.2011 09:28
Tunnumótmæli á Austurvelli 17. janúar Hópur fólks hefur boðað til mótmæla á Austurvelli 17. janúar næstkomandi. Á Facebook síðu hópsins segir að tunnuslættinum í mótmælunum undanfarna mánuði hafi verið líkt við „hjartslátt þjóðarinnar" og að nú skuli hann fá að heyrast á ný. 8.1.2011 21:30
Tvær bílveltur með skömmu millibili Tveir bílar ultu með skömmu millibili á hádegi í dag við Skíðaskálann í Hveradölum. Mikil hálka var á svæðinu en enginn slasaðist. 8.1.2011 22:00
Ætla að syngja auðlindirnar aftur til þjóðarinnar Gestir karaókímaraþons fögnuðu ákaft þegar ljóst varð að þrjátíu og sjö þúsund manns höfðu skrifað undir áskorun til stjórnvalda um eignarhald á orkuauðlindum og nýtingu þeirra. Fjölmargir tóku þátt í fjöldasöng, þar á meðal Björk og Megas. 8.1.2011 19:59
Varla helmingur fanga öryrkjar- Verið að spila á kerfið Fangelsismálastjóri dregur stórlega í efa að helmingur fanga á Íslandi séu öryrkjar í raun og veru en þessi hópur þiggur örorkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Líklega sé verið að spila á kerfið. 8.1.2011 19:26
Bandarískur þingmaður skotinn í höfuðið Gabrielle Giffords þingmaður í Bandaríkjunum var skotinn fyrr í kvöld í bænum Tucson í Arizona. Fjölmiðlar vestra segja að hún hafi látist af sárum sínum á sjúkrahúsi. Talsmaður hennar segir hinsvegar að hún sé ekki látin og sé í aðgerð. 8.1.2011 19:16
Innanríkisráðherra segir mál Birgittu alvarlegt Innanríkisráðherra segir það alvarlegt mál að bandarísk yfirvöld óski eftir persónuupplýsingum íslensks þingmanns sem sæti eigi í utanríkismálanefnd Alþingis. Dómstóll vestra hefur krafist þess að Twitter samskiptasíðan afhenti öll gögn um Birgittu Jónsdóttur þingmann Hreyfingarinnar og hafa allir helstu fjölmiðlar heims greint frá þessu í dag. 8.1.2011 18:30
Stefna á ferðatengda læknisþjónustu Hópur íslenskra lækna hefur stofnað fyrirtæki sem hyggst selja íslenska heilbrigðisþjónustu til erlendra ferðamanna og bjóða uppá skurðaðgerðir hér á landi gegn greiðslu. Framkvæmdastjórinn segir ferðatengda læknisþjónustu vera ört stækkandi geira út í heimi og bjóða upp á mörg sóknarfæri. 8.1.2011 20:05
Enginn með allar tölurnar réttar Enginn var með allar tölur í lottóinu réttar. Tveir voru þó með fjórar tölur réttar plús bónustölu. Þeir fá rúmlega 100 þúsund krónur á mann. Þá voru tveir með fjórar tölur réttar í röð og fá þeir sömu upphæð. 8.1.2011 19:31
Fjórtán mánaða gamalt barn fékk brennandi vatn yfir sig Fjórtán mánaða gamalt barn var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur frá Selfossi um fjögurleytið í dag. Foreldrar barnsins voru að sjóða vatn á hellu og litu frá því í örstutta stund en á þeim tíma teygði barnið sig í pottinn og fékk sjóðandi heitt vatnið yfir sig. 8.1.2011 17:42
Líkamsárásarkæra í Vestmannaeyjum Stelpa kærði líkamsárás í Vestmannaeyjum í dag eftir að hún var slegin hnefahöggi í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Atvikið átti sér stað fyrir utan heimahús bænum en ágreiningur var á milli aðila og stelpan reyndi að skakka leikinn. Þá var hún slegin hnefahöggi af karlmanni. 8.1.2011 18:10
Björk: Til hamingju Ísland "Til hamingju Ísland: klukkan er ekki þrjú og það eru komnar 35073 undirskriftir," skrifar Björk Guðmundsdóttir á Twitter-síðu sína. Björk stóð fyrir undirskriftarsöfnun þar sem einstaklingar skora á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 8.1.2011 15:32
Fundu 15 hauslaus lík í Mexíkó Lík fimmtán karlmanna á aldrinum 15 til 25 ára fundust í morgun nærri verslunarmiðstöð í ferðamannabænum Acapulco í Mexíkó. Höfuðin af mönnum höfðu öll verið skorin af. Málið er í rannsókn en talið er að það tengist eiturlyfjaheiminum. Þúsundir hafa látist síðustu ár í ofbeldi tengdu eiturlyfjum sem hefur verið stórt vandamál í landinu. 8.1.2011 15:22
Nokkrar Þrettándabrennur haldnar í dag Síðbúnar Þrettándabrennur verða á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sú fyrri við Ægisíðu klukkan fimm en þar verður jafnframt flugeldasýning sem hefst korter fyrir sex. Í Leirdal í Grafarholti hefst svo brenna klukkan hálf sex. 8.1.2011 14:50
Skotinn til bana á Vesturbakkanum: „Guð er almáttugur“ Ísraelski herinn skaut palestínskan mann við landamæri á Vesturbakkanum í morgun. Talsmaður hersins segir að leigubíll hafi komið upp að landamærasvæðinu og út hafi stigið maður sem gekk rösklega að hermönnum. Hann hafi öskrað: „Guð er almáttugur“ á arabísku og hafi verið með „grunsamlegan hlut“ í hendinni. 8.1.2011 14:28
Tekur langan tíma að vinna upp það sem tapast Efldar rannsóknir, doktorsnám og fleira starfsfólk við Háskóla Íslands eru lykilatriði til að hann geti komist í röð hundrað bestu háskóla í heimi. Þetta er mat Kristínar Ingólfsdóttur rektor skólans sem segir vísindaárangur vera helstu forsendu fyrir góðu gengi háskóla. 8.1.2011 13:27
Fjórir á slysadeild eftir árekstur við Bústaðaveg Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar nú fyrir stuttu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru fjórir fluttir á slysadeild, en enginn mun vera alvarlega slasaður. 8.1.2011 13:10
Tveir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur Tveir slösuðust og voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Hafnarfirði laust fyrir hádegið í dag. Slysið varð á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Hjallabrautar. Tildrög slyssins liggja eru óljós. 8.1.2011 12:59
Ólíðandi að vera sett undir hatt glæpamanns Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar býst við að bandarísk stjórnvöld hafi óskað eftir gögnum um hana af fleiri vefsíðum en Twitter, en þeirri síðu hefur verið stefnt til að afhenda öll gögn um hana. 8.1.2011 12:07
„Elvis prins“ fæddur í Danmörku María krónprinsessa af Danmörku eignaðist tvíbura í morgun, dreng og stúlku. Hún var lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn í gær og í morgun komu börnin svo í heiminn. 8.1.2011 11:50
Styttist í takmarkið - vantar tvö þúsund undirskriftir Um 33 þúsund undirskriftir hafa safnast á orkuaudlindir.is en þar er skorað á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 8.1.2011 11:30
Þyrlan kölluð út vegna fyrirburafæðingar Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gærkvöldi til Vestmannaeyja vegna fyrirburafæðingar á sjúkrahúsi þar í bæ. Sjúkrahúslæknir í Vestmannaeyjum óskaði eftir aðstoð þyrlunnar. Þá var óskað eftir hitakassa og fæðingarlækni frá Landspítalanum. 8.1.2011 10:31
Drottning amfetamínsins framseld Kólumbísk stjórnvöld hafa framselt konu, sem er þekkt sem ,,drottning amfetamínsins," til Bandaríkjanna. Konan, sem heitir Beatriz Elena Henao var meðal þeirra tíu efstu á lista Interpol yfir eftirlýstar konur. 8.1.2011 10:30
Falsaði eigin mannrán Brasílíski fótboltamaðurinn Somalia hefur verið ákærður fyrir að tilkynna lögreglu um mannrán sitt sem aldrei átti sér stað. Somalia hélt því fram að vopnaðir menn hefðu numið hann á brott klukkan sjö að morgni á leið sinni á fótboltaæfingu. 8.1.2011 10:02
Víða skafrenningur og hálka Á Norðurlandi eystra er þungfært inn Eyjafjörð og stendur mokstur yfir. Snjóþekja er frá Akureyri að Dalvík og í Víkurskarði að Ljósavatsskarði, þaðan og til Húsavíkur er snjóþekja og éljagangur. Ófært er út á Grenivík en mokstur stendur yfir. 8.1.2011 10:00
Hvetja íbúa til að huga að húsum sínum Vegna rafmagnstruflana kom upp bilun í dælum í Reykjaveitu, hitaveitu sem liggur frá Reykjum í Fnjóskadal niður á Grenivík, í gær. Allt vatn fór af veitunni og komst ekki á fyrr en um hádegisbil í gær. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að íhuga að húsum sínum. 8.1.2011 09:54
Sprengjan sprakk í andlitið - augað slapp Flugeldur sprakk í andlitið á pilti á sextánda ári í Vestmannaeyjum seint í gærkvöld. Hann og tveir aðrir piltar á sama aldri höfðu tekið í sundur sprengjutertu og ætlað að sprengja upp. Betur fór en áhorfðist í fyrstu því sprengjan sprakk við augabrún piltsins og augað slapp við skaða. 8.1.2011 09:34
Bandaríkjamenn vilja upplýsingar um Birgittu Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur farið fram á að samskiptasíðan Twitter afhendi ráðuneytinu allar færslur Birgittu Jónsdóttur þingmanns Hreyfingarinnar og aðrar persónuupplýsingar hennar. 8.1.2011 09:32
Svarar bréfi með áminningu Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) sendu bréf til landbúnaðarráðuneytisins í gær, þess efnis að svínabændur væru nú að hækka svínakjötsverð sökum viðvarandi kjúklingaskorts í búðum. 8.1.2011 08:00
Þrjátíu og fimm ríki eru rekin með halla Þrjátíu og fimm af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna eru rekin með halla á þessu ári. Samanlagður fjárlagahalli þeirra er talinn nema um 16.500 milljörðum íslenskra króna, eða um 140 milljörðum Bandaríkjadala. Næst á eftir hruni húsnæðismarkaðarins er fjárhagsvandi ríkjanna talinn mesti efnahagsvandi sem Bandaríkin eiga nú við að etja. 8.1.2011 08:00
Bæjarfulltrúar biðja Ísfirðinga afsökunar Umhverfisnefnd Alþingis hefur falið Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanni að hafa umsjón með endurskoðun löggjafar um upplýsinga- og viðbragðsskyldu stjórnvalda til að kanna hvaða þátt veilur í lögum kunni að hafa haft í Funamálinu. Bæjarfulltrúar, bæði í meiri- og minnihluta, báðu íbúa afsökunar á andvaraleysi sínu á fundi bæjarstjórnar á miðvikudag. 8.1.2011 07:00
Stjórnarsáttmálanum ekki breytt Það ferli sem er í gangi varðandi aðild Íslands að Evrópusambandinu heldur áfram og engar kröfur um annað hafa komið fram af hálfu Vinstri grænna. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Á fundinum var kynnt sóknaráætlunin Ísland 20/20. 8.1.2011 06:00