Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Móðir hringdi í lögreglu vegna tölvunotkunar sonarins Fyrr í vikunni var lögregla kölluð að heimili á höfuðborgarsvæðinu vegna ágreinings um tölvunotkun. Þar áttu mæðgin í útistöðum en þrætueplið var tölvunotkun sonarins. Móðirin vildi meina að tölvunotkunin bitnaði á náminu en pilturinn sá hlutina ekki sömu augum. Reynt var miðla málum og síðan farið af vettvangi. Ekki er vitað hvort viðvarandi lausn fannst á tölvunotkun unglingsins á þessu heimili en vandamálið er ekki með öllu óþekkt. Um það vitna önnur útköll lögreglu af sama tagi. 18.2.2011 14:28
Lekinn úr Goðafossi hefur stöðvast Svo virðist vera sem olíulekinn í Goðafossi hafi stöðvast. Þetta kom fram í máli stjórnanda björgunaraðgerðanna í dag en Goðafoss strandaði í Oslófirði í gærkvöldi. Olían sem lak úr skipinu hefur nú náð landi á tveimur stöðum, á Akeroya og á Vikertangen á Asmalöy. Norsku strandgæslunni hefur verið hrósað fyrir góðan viðbragðstíma, en olíugirðingar voru komnar umhverfis skipið sex tímum eftir strandið. 18.2.2011 14:28
Siðanefnd BÍ vísar frá kæru Öryrkjabandalagsins Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá sér kæru sem Öryrkjabandalag Íslands lagði fram til nefndarinnar vegna fréttar Stöðvar 2 um málefni Freyju Dísar Númadóttir. Fréttin birtist þann 15. desember 2010 og var innlegg í umfjöllun um stöðu öryrkja á Íslandi. Í áliti Siðanefndarinnar segir að nefndin telji aðild kæranda ekki uppfylla skilyrði siðareglna Blaðamannafélagsins um hagsmunatengsl milli kæranda og kæruefnis. Af þessari ástæðu verður málið ekki tekið til efnislegrar umfjöllunar. 18.2.2011 14:09
Attac samtökin krefjast þess að forsetinn vísi Icesave til þjóðarinnar Attac samtökin á Íslandi krefjast þess að forseti Íslands vísi Icesave samningnum til þjóðarinnar og tryggi með því lágmarkslýðræði. 18.2.2011 13:39
Fjölskyldan sátt við lokað þinghald yfir Þorvarði Þinghald yfir Þorvarði Davíð Ólafssyni verður lokað. Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaði um þetta í morgun. Þorvarður Davíð er ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann réðist á föður sinn, tónlistarmanninn Ólaf Þórðarson, í nóvember á síðasta ári. 18.2.2011 13:35
Stóllinn Magni fer í Hörpu Í ráðstefnusali Hörpunnar hefur verið valinn stóllinn Magni en hann er hannaður af Valdimar Harðarsyni arkitekt. Hann er framleiddur á Íslandi hjá Stáliðjunni í Kópavogi og Zenus bólstrun. Magni verður einnig í hvíldar og kaffirými listamanna. Samtals verða framleiddir 970 stólar af Magna fyrir Hörpu. 18.2.2011 13:24
Ráðherra fer að ráðleggingum Hafró Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur nú gefið út reglugerðir um auknar heimildir til loðnuveiða í samræmi við tillögur Hafrannsóknarstofnunar frá því í gær. Aukningin nemur alls 65 þúsund tonnum og fer nær öll til íslenskra fiskiskipa eða 64,4 þúsund tonn. 18.2.2011 13:06
Móðir grætur á öxl dóttur sinnar - Áhrif heimilisofbeldis Börn sem horfa upp á fjölskyldumeðlimi sína, móður eða systkyni, verða fyrir ofbeldi eiga til að fyllast sektarkennd yfir því að þau hafi ekki sjálf orðið fyrir ofbeldi. Einnig er algengt að þeim líði illa yfir því að þau hafi ekki hjálpað þeim sem varð fyrir ofbeldinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla um félagslegan stuðning og úrræði fyrir börn sem eru vitni að heimilisofbeldi. 18.2.2011 13:00
Opið í Bláfjöllum og fínasta veður Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnar klukkan tvö í dag og verður opið til klukkan níu í kövld. Fínasta veður er í fjöllunum, 5 til 10 metrar á sekúndu og hálfskýjað. 18.2.2011 12:47
Gylfi furðar sig á launahækkun dómara Kjararáð hefur úrskurðað að dómarar við Hæstarétt Íslands og Héraðsdóm Reykjavíkur fái 100 þúsund króna launahækkun á mánuði næstu tvö árin vegna aukins álags. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ furðar sig á þessari ákvörðun kjararáðs þar sem Alþingi hafi nýlega tekið ákvörðun um fjölgun dómara bæði hjá héraðsdómi og Hæstarétti. 18.2.2011 12:13
Vilja nýtt stéttarfélag öryrkja - mótmæltu á Bessastöðum Tvær konur tóku sér stöðu fyrir utan Bessastaði á meðan andstæðingar Icesave-frumvarpsins afhentu forsetanum undirskriftir. Konurnar tvær voru meðal annars merktar siðbót og sögðust vilja stofna nýtt stéttarfélag öryrkja. 18.2.2011 12:05
67 höfundar fá ritlaun Í dag kom í ljós hverjir fengu úthlutað ritlaunum úr Launasjóði rithöfunda. Þrír fengu úthlutað tveggja ára ritlaunum, þau Jón Kalman Stefánsson, Kristín Ómarsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir. 18.2.2011 11:52
Sprengjugengið með litasjónhverfingar Sprengjugengi Háskóla Íslands verður með fjórar sýningar í Háskólabíói á morgun í tilefni af aldarafmæli skólans. Þegar Sprengjugengið er á ferðinni upplifa áhorfendur ótrúlegar litasjónhverfingar, óvenjulegar gastegundir á sveimi og ógurlegar sprengingar sem kitla hlustirnar. Sýningarnar núna eru með stærra móti enda fagnar Sprengjugengið ári efnafræðinnar og auðvitað aldarafmæli Háskóla Íslands. Færri komust að en vildu í fyrra á sýningar Sprengjugengisins og verða þær því tvöfalt fleiri í ár með ljósgangi, litadýrð og sprengingum klukkan 12:00, 13:00, 14:00 og 15:00. Sprengjugengið er djarfur hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands sem vakið hefur landsathygli fyrir háskalegar efnafræðisýningar á heimsmælikvarða. Sérfræðingarnir í Sprengjugenginu eru þekktir fyrir að skapa efnabrellusýningar sem láta áhorfendur gjarnan gapa af undrun. Sýningar sprengjugengisins eru fyrir alla á meðan húsrúm leyfir og er ókeypis aðgangur. 18.2.2011 11:39
Forsetinn kominn með undirskriftirnar - gefur ekkert upp Forsvarsmenn undirskriftasöfnunarinnar á Kjosum.is hafa afhent Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, undirskriftir rúmlega 37 þúsund einstaklinga sem skora á forsetann að skrifa ekki undir Icesave-frumvarpið og vísa því í dóm þjóðarinnar. Ólafur Ragnar lét ekkert uppi um hvort hann hyggst samþykkja frumvarpið eða efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Hann sagðist þó reikna með að taka sér nokkra daga til að taka ákvörðun. Forsvarsmenn söfnunarinnar tilkynntu við afhendinguna að þeir hefðu fengið Miðlun til að hringja í hluta þeirra sem skráðir eru á listann. Ekki hefðu allir svarað en enginn sem hringt var í neitaði því að hafa sett nafn sitt á listann. Sem kunnugt er hefur söfnunin verið gagnrýnd fyrir að fólk getur ekki flett því upp hvort það sjálft er skráð á listann. 18.2.2011 11:34
Safna undirskriftum gegn Ódrjúgshálsi Undirskriftasöfnun er hafin á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem skorað er á alþingismenn að samþykkja lagafrumvarp um að nýr þjóðvegur verði lagður um Teigsskóg í stað vegarins um Ódrjúgsháls. Þingmenn eru hvattir til að víkja til hliðar óverulegum einkahagsmunum en tryggja í staðinn hagsmuni heils landshluta. 18.2.2011 11:28
Olían úr Goðafossi hefur náð landi Olían úr Goðafossi hefur náð landi við Akeröya í Noregi. Björgunarstörf eru í fullum gangi við að hreinsa olíuna sem lekið hefur úr skipinu frá því það strandaði í gærkvöldi. 18.2.2011 11:16
Fá börn komast í sérhannaða meðferð Fæst börn sem búa við ofbeldi gegn móður og dvejast í Kvennaathvarfinu, uppfylla skilyrði til að fá að taka þátt í nýrri hópmeðferð á vegum Barnaverndarstofu. Miklar vonir voru bundnar við þetta úrræði fyrir börn sem búa við ofbeldi en það hefur ekki gengið eftir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla á félagslegum stuðningi og úrræðum fyrir börn sem eru vitni að heimilisofbeldi. Þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá að taka þátt í meðferðinni eru að börnin tali íslensku, að þau séu eldri en fimm ára og að þaú búi ekki lengur á hemili þar sem ofbeldi á sér stað. Að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins uppfylla fæst börnin öll þessi skilyrði. Algengt er að börn komi og dveli í Kvennaathvarfinu með mæðrum sínum. Athvarfið tilkynnir til barnaverndar um mál er varða börn sem búa við ofbeldi gegn móður. Þar með er litið svo á að sksyldu um stuðning við börn hafi verið framfylgt, þar er athvarfið hefur engin önnur úrræði fyrir börnin. Aðeins nokkrum börnum vísað í meðferðina Miklar vonir voru bundnar við hópmeðferðarúrræði á vegum Barnaverndarstofu og var Kvennaathvarfinu veitt sérstök heimild til að vísa börnum beint þangað, án milligöngu barnaverndaryfirvalda. Það fyrirkomulag hefur hins vegar ekki virkað sem skyldi því athvarfið hefur aðeins getað vísað nokkrum börnum í meðferðina. "Aðal þjónustan sem við sjáum að þessar fjölskyldur fá er hin almenna félagsþjónusta í sambandi við húsnæði eða fjárhagsaðstoð eða þess háttar. Við sjáum svo sem ekki mikið þar fyrir utan. Það er náttúrulega til þetta úrræði fyrir börn sem bjuggu við ofbeldi, sem Barnaverndarstofa setti á laggirnar, sem er rosalega flott, en hefur svo sem ekki nýst mörgum börnum hingað til," er haft eftir framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins í skýrslu Barnaheilla. Fara aftur heim í fjárhagslegt öryggi Samkvæmt tölum úr athvarfinu fer um helmingur kvenna aftur heim í sömu aðstæður að dvölinni lokinni. Samkvæmt starfskonu Kvennaathvarfsins virðist ekki líklegra að konur yfirgefi ofbeldismann barnanna vegna heldur geti hið gagnstæða átt við. "Við sjáum ekkert síður að konur með börn fari aftur heim heldur en barnlausu konurnar. Börnin eru þá ekki endilega fyrirstaða ... og jafnvel gefa sumar þær skýringar að þær fari heim aftur til ofbeldismannsins af því þær geti ekki boðið börnunum mannsæmandi líf án fjárhagslegs öryggis sem þau hafa heima," segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. 18.2.2011 11:06
Koma sér upp eigin vatnsveitu Borunum vegna vatnsveitu í Perluhvammi á Álfsnesi lauk um það bil sem ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær. 18.2.2011 11:00
Skólarnir fá 200 milljónir Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær að auka fjárheimildir menntasviðs Reykjavíkur um 200 milljónir króna. Fulltrúar foreldra funduðu í gær með borgarstjóra og formanni menntasviðs. Tekist er á um tölur. 18.2.2011 11:00
Safna fé fyrir kvennadeildina Líf, styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans, stendur fyrir landssöfnun á Stöð tvö í mars. Markmiðið er að safna fé til endurbóta og nútímavæðingar kvennadeildar Landspítalans. 18.2.2011 11:00
Belgar fagna heimsmeti í stjórnleysi Belgar hafa verið án ríkisstjórnar í 249 daga en í stað þess að örvænta tekur fólk því létt og fagnar heimsmeti í stjórnleysi. Síðan í kosningunum 13. júní síðastliðinn hefur hver flokkurinn á fætur öðrum skilað Alberti konungi umboði til stjórnarmyndunar. 18.2.2011 11:00
500 manns í Ráðhúsinu Hátt í 500 manns sóttu fund sem Reykjavíkurborg efndi til í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur síðdegis í gær. Yfirskrift fundarins var ,,Skólastarf á tímum efnahagsþrenginga". Foreldrar, kennarar og leikskólakennarar fjölmenntu á fundinn og lögðu vörðu fyrir framan ráðhúsið borgarstjóra til eignar. ,,Skólavarðan" á að minna á að standa eigi vörð um velferð barna í borginni. Á fundinum tóku þau Jón Gnarr, borgarstjóri og Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, til máls. Fram kom í þeirra málflutningi að borgin muni ekki standa fyrir breytingum á núverandi kerfi nema að tryggt sé að breytingin sé þess virði bæði með tilliti til hagræðingar og faglegra sjónarmiða. Það væri sameiginlegt hagsmunamál allra aðila að vernda lærdómsumhverfi barnanna í borginni en það þurfi að nýta opinbert fé til rekstrarins sem best. Að loknum framsögum var opnað fyrir spurningar og sátu auk Jóns og Oddnýjar, þau Ragnar Þorsteinsson,fræðslustjóri, og Ragnhildur E. Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs, fyrir svörum. Fundargestir vörpuðu fram fjölda spurninga sem þeir óskuðu svara við frá fulltrúum borgarinnar. Fundurinn stóð klukkutíma lengur en áætlað var og lauk klukkan 20. 18.2.2011 10:21
Fréttamenn handteknir í Tyrklandi Þrír fréttamenn á netmiðli hafa verið handtekni í Tyrklandi og bíða réttarhalda fyrir að grafa undan ríkisstjórninni þar í landi. 18.2.2011 09:49
Bíræfnir smokkaþjófar handteknir í Malasíu Lögreglan í Malasíu tilkynnti í dag að hún hefði handtekið þrjá bíræfna smokkaþjófa sem eru grunaðir um að hafa stolið 725 þúsund smokkum í Japan. 18.2.2011 09:46
Tölvuþrjótar ráðast á Kanada Kandíska efnahagsráðuneytið varð fyrir árás tölvuþrjóta á dögunum samkvæmt fjölmiðlum þar í landi. 18.2.2011 09:29
Opið í Hlíðarfjalli Hlíðarfjall er opið í dag og fínasta færi er í fjallinu, logn, tveggja gráða frost og fallegt veður. Svæðið opnar klukkan tíu og verður opið til klukkan sjö í kvöld. 18.2.2011 09:25
Aftur réttað yfir Sjakalanum Búið er að dagsetja réttarhöld yfir suður-ameríska hryðjuverkamanninum Ramirez Sanches, sem er heimsfrægur undir nafninum Sjakalinn Carlos. Hann afplánar nú lífstíðardóm fyrir að hafa myrt tvo franska leyniþjónustmenn og uppljóstrara á áttunda áratugnum. 18.2.2011 09:24
Markaðssetja bjór fyrir samkynhneigða Mexíkóskir áfengisframleiðendur hafa bruggað og markaðssett bjór fyrir samkynhneigða. Fyrirtækið hyggst markaðssetja ölið í Mexíkó, Kolumbíu og Japan. 18.2.2011 09:06
Á annan tug mótmælenda drepnir í Líbýu Talið er að á annan tug mótmælenda hafi látið lífið eftir mótmælin í Líbýu í gær og í nótt. 18.2.2011 08:39
Enn leitað að McCann - Hún er hugsanlega í Bandaríkjunum Portúgalska lögreglan hefur ekki enn gefið upp vonina um að finna Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007. Einkaspæjari heldur því fram að stúlkunni hafi verið smyglað til Bandaríkjanna. 18.2.2011 08:35
Obama í fyrstu opinberu heimsóknina til Bretlands Forsetahjónin Barack Obama og eiginkona hans, Michelle, munu koma í sína fyrstu opinberu heimsókn til Bretlands síðan árið 2003. Það var Elísabet drottning sem bauð hjónunum til landsins. 18.2.2011 08:33
Fundu laumufarþega í bíl Lögreglan á Selfossi fann einskonar laumufarþega í bíl, sem hún stöðvaði við reglubundið eftirlit í nótt. Fimm manns voru í bílnum, og var mannskapurinn að koma af skemmtistað, en ökumaður var í góðu standi. 18.2.2011 08:31
Japanir hætta hvalveiðum vegna aðgerðasinna Japanir hafa gert hlé á hvalveiðum vegna aðgerða bandarískra hvalafriðunarsinna samkvæmt breska ríkisútvarpinu. Samtökin Sea Shephard, sem Íslendingar þekkja ágætlega til, fagna þessari ákvörðun, en þeir hafa mótmælt hvalveiðunum kröfuglega undanfarna daga. 18.2.2011 08:30
Sjaldgæft að sérfræðingar tali við börnin um ofbeldi Úrræðum fyrir þau börn sem verða vitni að heimilisofbeldi er afar ábótavant og víða er mikill skortur á verklagsreglum. Samráð og samstarf skortir hjá þeim stofnunum sem taka að sér slík mál. Þetta er álit Petrínu Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla. 18.2.2011 08:30
Vill sitja áfram Vilmundur Jósefsson hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins (SA). Formaður verður kosinn með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fram fer 7. apríl. 18.2.2011 08:30
Bílabruni í Hveragerði - munaði litlu að rúta yrði eldinum að bráð Fólksbíll brann til kaldra kola fyrir utan íbúðarhús i Hveragerði um miðnætti. 18.2.2011 08:21
Kviknaði í bátaskýli út frá gufubaði Bátaskýli í Jórukleif við Þingvallavatn brann til kaldra kola í gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á vettvang var skýlið alelda og að falli komið, þannig að ekki varð við neitt ráðið, en nálægum húsum stóð ekki hætta af eldinum. 18.2.2011 08:19
Egypski herinn stofnar Facebook-síðu Herinn í Egyptalandi opnaði Facebook-síðu í gær til þess ná betur til yngri kynslóðarinnar. Síðan er í nafni hersins og er tileinkuð æsku Egyptalands en hún er sögð hafa verið stofnuð af yfirmanni herráðsins í þeim tilgangi að ná til ungs fólks í landinu. 18.2.2011 08:17
Smábær breytir nafninu í Hraði drepur Smábær í Ástralíu hefur ákveðið að breyta nafninu sínu í "hraði drepur" í átaki sínu til þess að vekja athygli á umferðarslysum á sveitavegum. Bærinn heitir Hraði, eða "speed" á ensku. 18.2.2011 08:13
Níu létust í sjálfsmorðsárás í Afganistan Níu óbreyttir borgarar eru sagðir hafa látist í sjálfsmorðsárás í héraðinu Khost í Afganistan í nótt. Sex karlmenn og þrjár konur létust. 18.2.2011 08:11
Goðafoss ógnar einstökum sjávarþjóðgarði Yfir fjögurra kílómetra breiður olíuflekkur úr Goðafossi ógnar nú tilveru Ytre Hvaler þjóðgarðarins í Östfold skerjagarðinum. Um er að ræða eina sjávarþjóðgarð heimsins en þar er að finna einstakt sjávar- og stranddýralíf. 18.2.2011 08:00
Um 600 manns í leikjasmíði Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um tíu milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware. 18.2.2011 08:00
Icesave-deiluna þarf að leysa Öll aðildarríki EES-samningsins þurfa að standa við skuldbindingar sínar og það er engin spurning að Icesave-deiluna þarf að leysa, segir sendiherra Ungverjalands gagnvart Íslandi. Ungverjar fara með formennsku í ESB um þessar mundir. 18.2.2011 08:00
Goðafoss strandar: Reyna að hefta olíuflekkinn Olía lekur úr flutningaskipinu Goðafossi, sem strandaði við Fredrikstad í Noregi í gærkvöldi, og hefur norska strandgæslan komið upp flotgirðingu umhverfis skipið til að hefta útbreiðslu olíuflekksins. 18.2.2011 07:56
Forseti Íslands undir feldi vegna Icesave Samstöðuhópurinn sem safnað hefur undirskriftum gegn nýja Icesave-samningnum mun afhenda forsetanum um 38 þúsund undirskriftir klukkan ellefu í dag en undirskriftirnar voru keyrðar saman við þjóðskrá í gær. Alls höfðu rúmlega 40 þúsund skrifað undir í gærkvöldi. 18.2.2011 07:00