Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Handtekinn fyrir að áreita eldri borgara í umferðinni Dani á fimmtugsaldri var handtekinn í fyrrakvöld eftir að hafa áreitt konu á sjötugsaldri í umferðinni. 13.4.2011 08:27
Hryðjuverk reyndist rafmagnsbilun Sprenging varð á strætisvagnastöð í Moskvu í gær. Óttast var í fyrstu að um hryðjuverkaárás hefði verið að ræða, en tólf létust í hryðjuverkaárás í Minsk í Hvíta Rússlandi á mánudaginn. 13.4.2011 08:23
Vildu meina að brjóstakrabbameins-armbönd væru of klúr Dómari í Pennsylvaníu úrskurðaði á dögunum að tveir grunnskólanemendur mættu ganga um skólann með gúmmíarmbönd á hendinni sem á standa: Ég elska brjós 13.4.2011 08:21
Vongóðir um að finna svarta kassann Stél frönsku flugvélarinnar, sem hrapaði í Atlantshafið árið 2009 þegar hún var á leið frá Brasilíu til Evrópu, er fundið að sögn ættingja þeirra sem fórust í slysinu. 13.4.2011 08:18
Bandarískir ríkisborgarar fangar í Norður-Kóreu Ótilgreindur fjöldi Bandarískra ríkisborgara er í haldi stjórnvalda í Norður-Kóreu samkvæmt breska ríkisútvarpinu. 13.4.2011 08:16
Fundu kannabisræktun í fjölbýlishúsi Kallað var á lögreglu í gærkvöldi til að fjarlægja óboðinn gest, sem hafði hreiðrað um sig í geymslu í kjallara fjölbýlishúss og neitaði að fara þaðan. 13.4.2011 08:14
Bloggarar Huffington Post vilja 12 milljarða Hópur bloggara ætlar í mál við fyrrverandi eiganda vefritsins Huffington Post. Ástæðan er sú að þeim finnst þeir hafa verið arðrændir. 13.4.2011 08:04
Mikið vatnstjón í Árbæjarhverfinu Tjón varð í mörgum íbúðum í vestanverðu Árbæjarhverfinu í Reykjavík í gærkvöldi, þegar heitt vatn fór að leka úr lögnum. 13.4.2011 07:03
Tæplega 14.000 atvinnulausir Atvinnuleysi í mars mældist 8,6 prósent en að meðaltali voru 13.757 manns atvinnulausir í mánuðinum. 13.4.2011 07:00
Kona sektuð um 25 þúsund Franska lögreglan hefur í fyrsta skiptið sektað konu fyrir að hylja andlit sitt með búrku. Konan sem var stöðvuð inni í verslunarmiðstöð í París í fyrradag fékk tæplega 25 þúsund króna sekt. 13.4.2011 07:00
Mun svara skýrslu Alþingis Björgólfur Thor Björgólfsson segist ætla að svara rangfærslum um sig í Rannsóknarskýrslu Alþingis á næstunni. Frá þessu greinir hann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 13.4.2011 07:00
Hjólaði í veg fyrir bíl Ung kona meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hún hjólaði í veg fyrir bíl á Nauthólsvegi í Vatnsmýrinni í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. 13.4.2011 06:59
Eldur í fatahreinsun í nótt Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í fatahreinsun við Vitastíg í Reykjavík upp úr miðnætti. 13.4.2011 06:56
Bensínið kostar nú 240 krónur Verð á eldsneyti hækkaði um þrjár krónur á lítrann í gær. Lítrinn kostar nú 239,80 krónur hjá Skeljungi, þar sem það er dýrast. Ódýrast er bensínið hjá Orkunni, þar sem lítrinn kostar 235,10 krónur. 13.4.2011 06:00
Vilja frjálsar strandveiðar Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um strandveiðar á komandi sumri. 13.4.2011 04:00
Tjón á heimilum í Árbæ Heitavatnslagnir innanhús hafa brostið í tengslum við bilunina í vestanverðu Árbæjarhverfinu í kvöld. Enn er heitavatnsvatnslaust um vestanverðan Árbæinn og viðbúið að það standi fram eftir nóttu. 12.4.2011 23:44
Tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn með ótrúlegri flautukörfu Haukamaðurinn Kári Jónsson, leikmaður í 9. flokki karla, skoraði hreint út sagt ótrúelga flautukörfu og tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn í 9. flokki karla árið 2011 um síðustu helgi. 12.4.2011 23:38
Fimmtugur þingmaður sagði af sér eftir að hafa skoðað klám í vinnunni "Ég vona að Guð fyrirgefi mér fyrir mistök mín," sagði indónesíski þingmaðurinn Arifinto, þegar hann sagði af sér þingmennsku á dögunum. 12.4.2011 22:58
Yngsta móðir Íslands - Varð ólétt 12 ára Alda Jóhanna Hafnadóttir er yngsta kona sem átt hefur barn á Íslandi í seinni tíð, en hún var aðeins 12 ára þegar hún varð ófrísk. Alda er tvítug í dag og segist hafa farnast vel í móðurhlutverkinu. Nýlega kom svo í ljós að systir Öldu á von á barni í sumar, en hún er 15 ára. 12.4.2011 22:00
Heitavatnslaust í Árbæ Heitavatnslaust er í hluta Árbæjarhverfis eftir að aðalæð við Rofabæ bilaði í kvöld. Vatnsleysið nær til þess hluta hverfisins sem er vestan Fylkisvegar, sem liggur frá Rofabæ að Árbæjarlaug. 12.4.2011 21:51
Jarðgöng hrundu á Gaza Fjórir féllu og fjórir eru særðir eftir að jarðgöng hrundu nálægt bænum Rafah á Gaza-ströndinni í dag. 12.4.2011 21:42
Framsókn styður vantrauststillöguna - Hreyfingin óákveðin Atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins á ríkisstjórnina fer fram annað kvöld. Formenn þingflokkana funduðu í kvöld með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, þar sem fyrirkomulag umræðunnar var rædd. 12.4.2011 21:06
Forsetinn fyrrverandi fékk hjartaáfall Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, fékk hjartaáfall í dag og var fluttur á sjúkrahús í strandbænum Sharm el-Sheikh. 12.4.2011 20:43
Hættið að rífast innbyrðis, horfið fram á veginn og verið glöð Forstöðumaður greiningardeildar Danske bank sem varð þekktur fyrir að spá fjárhagslegri kreppu hér á landi árið 2006 segir efnahagslífið nú vera í miklum bata og hvetur Íslendinga til að dvelja ekki í fortíðinni og horfa fram á veginn. 12.4.2011 19:35
Leita samstarfs við Íslendinga vegna siglinga um Norðurskautið Kínverjar sem og ráðamenn fleiri þjóða hafa rætt þann möguleika við íslensk stjórnvöld að á Íslandi verði þjónusta vegna siglinga yfir Norðurskautið. 12.4.2011 19:14
Síðasti naglinn í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi Ríkisstjórnin fer nærri því að reka síðasta naglann í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi, með áformum sínum um að takmarka leigutíma jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár. Þetta sagði forstjóri HS Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands í dag. 12.4.2011 18:55
Bjarni Ben: Kosningar munu tryggja traust á milli þings og þjóðar Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði á Alþingi í dag fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Í tillögunni er þess krafist að þing verði rofið 11.maí og boðað til kosninga. Forsætisráðherra fagnaði tillögunni og þakkaði Bjarna fyrir að leggja hana fram. 12.4.2011 18:45
Meðferð barnaníðinga í íslenskum fangelsum er ábótavant Meðferð barnaníðinga sem afplána í íslenskum fangelsum er ábótavant. Þetta segir sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun en barnaníðingur sem lauk nýverið afplánun er nú grunaður um að hafa brotið af sér á meðan hann var á reynslulausn. 12.4.2011 18:42
Íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum Hollensk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum til að knýja fram efndir í Icesave málinu. Þá ætla Hollendingar einnig beita sér fyrir því að sparifjáreigendur þar í landi fái allt sitt til baka - ekki einungis lágmarkstryggingu. 12.4.2011 18:31
Reyndu að sviðsetja innbrot í Borgarnesi Tveir piltar, 17 og 19 ára, reyndu að sviðsetja innbrot í Shellstöðina við Brúartorg í Borgarnes aðfaranótt mánudags. 12.4.2011 18:06
Úrslit MORFÍS í beinni á netinu í kvöld Úrslit MORFÍS fara fram klukkan 20 í Háskólabíói í kvöld. Í ár eru það Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn í Reykjavík sem munu etja kappi en MS hefur titil að verja eftir að skólinn vann Verzlunarskóla Íslands í úrslitunum í fyrra. 12.4.2011 17:40
Mubarak fluttur á sjúkrahús Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands, var fluttur á sjúkrahús í bænum Sharm el-Sheikh seinni partinn í dag. Ástand hans er sagt vera alvarlegt en aðstoðarmenn hans hafa borið þær fréttir til baka. Von er á yfirlýsingu síðar í dag. 12.4.2011 17:16
Fyrrum einbýlishús Jóhannesar í Bónus til sölu Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sett fyrrum einbýlishús Jóhannesar Jónssonar, kenndur við Bónus, á sölu. Húsið er 427 fermetrar á stærð og er á rúmlega sextán þúsund fermetra lóð á stað sem nefndur er Hrafnabjörg. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn og á Akureyri. Það er fasteignasalan Eignamiðlun sem sér um söluna á húsinu en ekki er verð á húsinu gefið upp heldur er óskað eftir tilboðum í húsið. 12.4.2011 17:05
Óvíst hvort framsóknarmenn styðji vantrauststillögu Bjarna Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins fagnaði í dag á þingi framlagningu vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar en benti um leið á að hún væri á veikum grunni í ljósi þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu flestir sagt já í Icesave málinu. Hann telur alls óvíst hvort framsóknarmenn styðji tillöguna. 12.4.2011 16:17
Ekki sjálfgefið hvort Atli styðji tillögu um vantraust "Það er ekki sjálfgefið að ég muni styðja þessa tillögu, segir Atli Gíslason, fyrrverandi þingmaður VG sem nú er utan þingflokka. Hann segist ekki hafa kynnt sér vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar sem hann hyggst leggja fram í dag. 12.4.2011 15:44
Vara við aukinni útfjólublárri geislun á Íslandi Undanfarnar vikur hefur mælst óvenju mikil eyðing ósonlagsins yfir norðurhveli jarðar sem rekja má til óvenjulegra kaldra háloftavinda sem hafa komið í veg fyrir að lofthjúpurinn yfir norðurheimskautinu blandaðist við loft frá suðlægari breiddargráðum. Upplýsingar frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni benda til að um 40% þynningu á ósonlaginu sé að ræða og hefur hún aldrei áður verið svo mikil á norðurhveli jarðar. Búast má við að áhrifa þessara eyðingar ósonlagsins muni gæta hér á landi í vor og í sumar með aukinni útfjólublárri geislun á heiðskírum dögum. Umhverfisstofnun hefur sent frá sér tilkynnigu vegna þessa þar sem því esr sérstaklega beint til útivistarfólks að nota sólvörn og sólgleraugu. Ósonlagið er það svæði í lofthjúp jarðar þar sem þéttleiki ósons er mestur, í 15-35 km hæð yfir jörðu, og verndar lífríki jarðar gegn hættulegum útfjólubláum geislum sólar. Þessi hættulega geislun getur skaðað lífið í sjónum, valdið húðkrabbameini, augnsjúkdómum og bælt ónæmiskerfi líkamans. Losun ósoneyðandi efna var bönnuð með alþjóðlegum samningi, Montrealbókuninni frá 1987, sem verður 25 ára á næsta ári. Hér á landi hefur notkun ósoneyðandi efna minnkað um 98% frá því hún var mest árið 1987. 12.4.2011 15:43
Jóhanna vill flýtimeðferð á vantrauststillögu Jóhanna Sigurðardóttir ætlar að óska eftir því við forseta Alþingis að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar fái flýtimeðferð í þinginu. Óvíst er hvenær tillagan verður tekin fyrir en heimildir fréttastofu herma að það gæti orðið á fimmtudaginn kemur. 12.4.2011 15:28
Jóhanna segir að Icesave muni leysast á endanum Jóhanna Sigurðardóttir segir að Svíar og Norðmenn hafi lofað áframhaldandi lánveitingum til handa Íslendingum þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Hún flutti munnlega skýrslu um málið í dag þar sem þetta kom fram meðal annars. Jóhanna sagði að ríkisstjórnin hafi verið í stöðugu sambandi við alla aðila málsins frá því niðurstaðan varð ljós og sagði hún róið öllum árum að því að skýra málstað Íslendinga. Sagði hún að viðbrögð við þeim skýringum hafi yfirleitt verið yfirveguð og fremur jákvæð. 12.4.2011 14:42
Steingrímur: Glöggt er gests augað „Ísland er ekki í neinum greiðsluvandræðum og verður ekki næstu árin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann gaf lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem stuttu áður boðaði úr pontu Alþingis að hann myndi leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Steingrímur benti á að sitjandi ríkisstjórn væri að vinna samkvæmt samningum sem síðasta ríkisstjórn átti hluta að, og þar með samningum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði sjálfur unnið að. Steingrímur benti á að Lars Christiansen, forstöðumaður greiningardeildar Danske Banke, segir nú að hagvöxtur sé hafinn á Íslandi á ný og horfur til framtíðar ágætar. Christiansen spáði árið 2006 fyrir um hrun íslenska efnahagsundursins. „Vonandi hefur hann rétt fyrir sér aftur að þessu sinni,“ segir Steingrímur og vitnaði í orðatiltækið: „Glöggt er gests augað.“ 12.4.2011 14:34
Bjarni leggur fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokki ætlar að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta kom fram í máli hans þegar hann svaraði munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um niðurstöður Icesave málsins. 12.4.2011 14:21
Hollendingar segja ESB aðild háða Icesave - ætla að beita sér innan AGS Fjármálaráðherra Hollands, Jan Kees de Jager, sagði í ræðu á hollenska þinginu í dag að aðild Íslendinga að Evrópusambandinu sé háð því að lausn finnist á Icesave-málinu. 12.4.2011 13:51
Frakkar og Bretar vilja harðari aðgerðir í Líbíu NATO þarf að herða aðgerðir sínar í Líbíu og eyðileggja þungavopn Gaddafís einræðisherra, að mati utanríkisráðherra Breta og Frakka. Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakka, segir að óbreyttir borgarar í Líbíu búi enn við ógn frá Gaddafí þrátt fyrir sprengjuárásir NATO undandfarna daga. William Hague, breski kollegi, Juppe, tók í svipaðan streng í dag og hvatti NATO til þess að herða róðurinn. Þá hvatti hann Múammar Gaddafí eindregið til þess að láta af völdum. 12.4.2011 13:40
Jóhanna flytur skýrslu um niðurstöður Icesave og framhald málsins Jóhanna Sigurðardóttir mun í dag flytja munnlega skýrslu um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins. Ræða Jóhönnu er fyrsta mál á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan tvö. 12.4.2011 13:24
Bensínið hækkar enn - lítrinn kominn í 240 krónur Olíufélögin hækkuðu verð á bensíni enn einu sinni í morgun og er lítrinn kominn í tæpar tvö hundruð og fjörutíu krónur. Hæst er verðið hjá Skeljungi eða 239,8 krónur lítrinn. Þá er dísel lítrinn kominn yfir 242 krónur hjá stóru olíufélögunum þremur. Vart þarf að taka fram að eldsneytisverð hefur aldrei verið eins hátt hér á landi. Þess má þó geta að lægsta verðið á bensíni er nú hjá Orkunni eða rétt rúmar 235 krónur lítrinn. Tíðar bensínhækkanir undanfarnar vikur má rekja til heimsmarkaðsverðs á olíu sem náði hæstu hæðum á tveggja ára tímabili á mörkuðum í New York í síðustu viku. Hins vegar lækkaði verð á tunnu lítillega í gær og endaði undir 110 dollurum tunnan. Þá er þó umtalsvert hærra en verðið hefur verið síðastliðið ár. Hátt olíuverð orsakast aðallega af óeirðunum í Líbíu sem staðið hafa nú í um 6 vikur og hafa neikvæð áhrif á framboð olíu. Alþjóða orkumálastofnunin segir í nýjustu mánaðarskýrslu sinni að hátt olíuverð sé farið að hafa áhrif á eftirspurn eftir olíu og haldist verðið yfir 100 dollurum tunnan gæti það hægt á efnahagsbata í heiminum. 12.4.2011 12:00
Ágúst neitar sök - meint fórnarlamb er 19 ára Ungi maðurinn sem Ágúst Magnússon er grunaður um að hafa misnotað er 19 ára. Ágúst neitar sök en lögregla rannsakar nú tölvugögn hans. 12.4.2011 12:00