Fleiri fréttir Beindi nýjum fyrirspurnum til allra ráðherra Forsætisráðherra gat ekki svarað fyrirspurn þingmanns um verktakagreiðslur til sérfræðinga í ráðuneytum. Þingmaður lét ekki þar við sitja heldur beindi nýjum fyrirspurnum til allra ráðherra í ríkisstjórninni. 20.5.2011 19:08 Boða yfirvinnubann Að öllu óbreyttu mun allsherjaryfirvinnubann flugumferðarstjóra taka gildi þrítugasta maí en kjaraviðræðum þeirra miðar hægt áfram. Formaður samtaka ferðaþjónustunnar segir bannið skapa mikla óvissu um ferðastarfsemi sumarsins. 20.5.2011 18:55 Dúxinn í Verzló fær 600 þúsund krónur í styrk Verzlunarskóli Íslands brautskráir á morgun 287 nemendur með stúdentspróf en skólaslitin eru þau 106. í sögu skólans. 20.5.2011 18:12 Margir ökumenn keyrðu alltof hratt Brot 17 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í dag. 20.5.2011 17:34 Klovnbræður tala um aldraða hvolpa, mótorhjólaslys og parkour Félagarnir Casper og Frank úr Klovn voru hreint ekkert að spá í bíómyndir þegar Sigríður Elva úr Íslandi í dag náði tali af þeim á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum. 20.5.2011 17:00 Ammoníakleki í Fisk Seafood Allt tiltækt lið brunavarna Skagafjarðar var kallað út að höfuðstöðvum Fisk Seafood á Sauðárkróki vegna ammoníakleka á fjórða tímanum. Þetta kemur fram á skagfirska vefnum Feyki. 20.5.2011 16:29 Reyndi að selja 100 krónur á eina og hálfa milljón Umsjónarmaður seðlasafns Íslandsbanka var handtekinn á þriðjudag, grunaður um að hafa stolið 100 króna seðli frá 1904, úr safni bankans og reynt að koma þeim í verð. Þetta kemur fram á Pressunni. 20.5.2011 15:59 Black Pistons meðlimir áfram í gæsluvarðhaldi Tveir meðlimir vélhjólasamtakanna Black Pistons hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 20.5.2011 15:52 Blindrafélagið kvartar til umboðsmanns Alþingis Blindrafélagið gagnrýnir harðlega úrskurð úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála um ferðaþjónustu við lögblinda í Kópavogsbæ, en samkvæmt honum samræmist sú þjónusta sem boðið er upp á lögum um málefni fatlaðra. Blindrafélagið telur þessa niðurstöðu ranga og óviðunandi með hliðsjón af mannréttindum fatlaðra. Þá telur félagið það ótækt að mál er varða réttindi fatlaðra fái aðra og óvandaðri stjórnsýslumeðferð en lög kveða á um. Félagið vinnur því að því að leggja fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna málsins. „Í umfjöllun um úrskurð úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, frá 13 maí s.l. heldur Kópavogsbær því fram að úrskurðurinn feli í sér að Kópavogsbær uppfylli lagaskyldur sínar við blinda íbúa bæjarfélagsins þegar kemur að ferðaþjónustu . Þetta er algerlega röng ályktun. Úrskurður nefndarinnar fjallar eingöngu um stjórnsýslukæru vegna eins einstaklings og er ekki allsherjar heilbrigðisvottorð fyrir ferðaþjónustu við blinda Kópavogsbúa,“ segir í tilkynningu frá Blindrafélaginu. Blindrafélagið er reyndar þeirrar skoðunar að úrskurðurinn sé rangur og mun senda kvörtun til Umboðsmanns Alþingis til að fá úr því skorið hvort að sú stjórnsýsla sem hér um ræðir, bæði að hálfu Kópavogsbæjar og Velferðarráðuneytisins standist markmið þeirra laga sem við eiga og ákvæða í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 20.5.2011 15:44 Þóra Elín jarðsungin eftir helgi Útför Þóru Elínar Þorvaldsdóttur sem lést fimmtudaginn 12. maí. síðastliðinn mun fara fram frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 23. maí klukkan 14:00. 20.5.2011 14:56 Kópavogsbær uppfyllir skyldur gagnvart blindum Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála hefur kveðið upp þann úrskurð að sú ferðaþjónusta sem Kópavogsbær veitir lögblindum einstaklingum í bænum samræmist lögum um málefni fatlaðra. 20.5.2011 14:32 Dæmdur fyrir árás- sagðist vera við fæðingu Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa ráðist á starfsmann Innheimtustofnunar sveitarfélaga í ágúst 2009. Maðurinn sló til hans og klóraði hann á hálsi, með þeim afleiðingum að starfsmaðurinn hlaut klór á hálsi og væga tognun á hægri baugfingri. 20.5.2011 13:53 Doherty aftur á bak við lás og slá Breski rokkarinn Pete Doherty var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa kókaín í vörslu sinni. Hinn 32 ára gamli söngvari var handtekinn í janúar í fyrra en þetta er í þriðja sinn sem hann er dæmdur í fangelsi. Þar fyrir utan hefur hann fengið 25 vægari dóma fyrir eiturlyfjanotkun. 20.5.2011 13:43 Fara í herferð gegn munntóbaksnotkun 20.5.2011 13:30
Sjá næstu 50 fréttir
Beindi nýjum fyrirspurnum til allra ráðherra Forsætisráðherra gat ekki svarað fyrirspurn þingmanns um verktakagreiðslur til sérfræðinga í ráðuneytum. Þingmaður lét ekki þar við sitja heldur beindi nýjum fyrirspurnum til allra ráðherra í ríkisstjórninni. 20.5.2011 19:08
Boða yfirvinnubann Að öllu óbreyttu mun allsherjaryfirvinnubann flugumferðarstjóra taka gildi þrítugasta maí en kjaraviðræðum þeirra miðar hægt áfram. Formaður samtaka ferðaþjónustunnar segir bannið skapa mikla óvissu um ferðastarfsemi sumarsins. 20.5.2011 18:55
Dúxinn í Verzló fær 600 þúsund krónur í styrk Verzlunarskóli Íslands brautskráir á morgun 287 nemendur með stúdentspróf en skólaslitin eru þau 106. í sögu skólans. 20.5.2011 18:12
Margir ökumenn keyrðu alltof hratt Brot 17 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í dag. 20.5.2011 17:34
Klovnbræður tala um aldraða hvolpa, mótorhjólaslys og parkour Félagarnir Casper og Frank úr Klovn voru hreint ekkert að spá í bíómyndir þegar Sigríður Elva úr Íslandi í dag náði tali af þeim á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum. 20.5.2011 17:00
Ammoníakleki í Fisk Seafood Allt tiltækt lið brunavarna Skagafjarðar var kallað út að höfuðstöðvum Fisk Seafood á Sauðárkróki vegna ammoníakleka á fjórða tímanum. Þetta kemur fram á skagfirska vefnum Feyki. 20.5.2011 16:29
Reyndi að selja 100 krónur á eina og hálfa milljón Umsjónarmaður seðlasafns Íslandsbanka var handtekinn á þriðjudag, grunaður um að hafa stolið 100 króna seðli frá 1904, úr safni bankans og reynt að koma þeim í verð. Þetta kemur fram á Pressunni. 20.5.2011 15:59
Black Pistons meðlimir áfram í gæsluvarðhaldi Tveir meðlimir vélhjólasamtakanna Black Pistons hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 20.5.2011 15:52
Blindrafélagið kvartar til umboðsmanns Alþingis Blindrafélagið gagnrýnir harðlega úrskurð úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála um ferðaþjónustu við lögblinda í Kópavogsbæ, en samkvæmt honum samræmist sú þjónusta sem boðið er upp á lögum um málefni fatlaðra. Blindrafélagið telur þessa niðurstöðu ranga og óviðunandi með hliðsjón af mannréttindum fatlaðra. Þá telur félagið það ótækt að mál er varða réttindi fatlaðra fái aðra og óvandaðri stjórnsýslumeðferð en lög kveða á um. Félagið vinnur því að því að leggja fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna málsins. „Í umfjöllun um úrskurð úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, frá 13 maí s.l. heldur Kópavogsbær því fram að úrskurðurinn feli í sér að Kópavogsbær uppfylli lagaskyldur sínar við blinda íbúa bæjarfélagsins þegar kemur að ferðaþjónustu . Þetta er algerlega röng ályktun. Úrskurður nefndarinnar fjallar eingöngu um stjórnsýslukæru vegna eins einstaklings og er ekki allsherjar heilbrigðisvottorð fyrir ferðaþjónustu við blinda Kópavogsbúa,“ segir í tilkynningu frá Blindrafélaginu. Blindrafélagið er reyndar þeirrar skoðunar að úrskurðurinn sé rangur og mun senda kvörtun til Umboðsmanns Alþingis til að fá úr því skorið hvort að sú stjórnsýsla sem hér um ræðir, bæði að hálfu Kópavogsbæjar og Velferðarráðuneytisins standist markmið þeirra laga sem við eiga og ákvæða í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 20.5.2011 15:44
Þóra Elín jarðsungin eftir helgi Útför Þóru Elínar Þorvaldsdóttur sem lést fimmtudaginn 12. maí. síðastliðinn mun fara fram frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 23. maí klukkan 14:00. 20.5.2011 14:56
Kópavogsbær uppfyllir skyldur gagnvart blindum Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála hefur kveðið upp þann úrskurð að sú ferðaþjónusta sem Kópavogsbær veitir lögblindum einstaklingum í bænum samræmist lögum um málefni fatlaðra. 20.5.2011 14:32
Dæmdur fyrir árás- sagðist vera við fæðingu Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa ráðist á starfsmann Innheimtustofnunar sveitarfélaga í ágúst 2009. Maðurinn sló til hans og klóraði hann á hálsi, með þeim afleiðingum að starfsmaðurinn hlaut klór á hálsi og væga tognun á hægri baugfingri. 20.5.2011 13:53
Doherty aftur á bak við lás og slá Breski rokkarinn Pete Doherty var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa kókaín í vörslu sinni. Hinn 32 ára gamli söngvari var handtekinn í janúar í fyrra en þetta er í þriðja sinn sem hann er dæmdur í fangelsi. Þar fyrir utan hefur hann fengið 25 vægari dóma fyrir eiturlyfjanotkun. 20.5.2011 13:43
Bandaríkjamenn vilja meira af Yrsu Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér nýlega réttinn á tveimur metsölubókum Yrsu Sigurðardóttur. Um er að ræða bækurnar Auðnin og Ég man þig. 20.5.2011 12:42
Mehdi látinn laus í dag - á yfir höfði sér 4 ára fangelsi Íranski hælisleitandinn sem reyndi að kveikja í sér gæti átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Honum verður sleppt úr gæsluvarðhaldi í dag. 20.5.2011 12:07
Flúor yfir hættumörkum í kindum frá tólf bæjum Flúor hefur mælst yfir hættumörkum í kindum frá tólf bæjum við Hvalfjörð, sem fyrst og fremst má rekja til álversins á Grundartanga, þó aðrir þættir geti haft þar áhrif. 20.5.2011 11:54
Háloftasýning við Austurvöll Tugir sjálfboðaliðar héngu í 50 metra hæð yfir Austurvelli í gær á æfingu spænska fjöllistahópsins La Fura dels Baus fyrir opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík. Breyta þarf flugumferð yfir miðborginni á meðan á sýningu stendur. 20.5.2011 11:45
Austuríska leiðin eykur lífsgæði og öryggi brotaþola ofbeldis Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf fagnar frumvarpi innanríkisráðherra til laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili og hvetur til þess að það verði gert að lögum á yfirstandandi þingi. Þetta kemur fram í áskorun Samtaka um kvennaathvarf til Alþingis, sem var samþykkt á aðalfundi samtakanna í gær. 20.5.2011 11:27
Kviknaði í einu verslun Hofsóss í morgun Eldur kom upp í verslunarhúsnæði KS á Hofsósi í Skagafirði í morgun en verslunin er eina verslunin á staðnum. Líkur eru á að eldurinn hafi komið upp einhvern tíma í nótt en hann hafi slokknað af sjálfu sér samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. 20.5.2011 10:54
Ítalskur ferðamaður fundinn Isabella Di Giacobbe, ítalskur ferðamaður, sem lögreglan lýsti eftir fyrr árinu, er komin í leitirnar. 20.5.2011 10:42
Ríkið sýknað af kröfu drengs með heilalömun Íslenska ríkið var sýknað af kröfu fatlaðs drengs um skaða- og miskabætur vegna bótaskyldra mistaka heilbrigðisstarfsmanns eftir að móðir hans greindist með meðgöngueitrun. Foreldrarnir lögðu fram bótakröfuna fyrir hönd sonar þeirra sem fæddist með heilalömun, cerebral palsy, og er hann metinn 70% öryrki. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af bótakröfunni, sem nam tæpum 44 milljónum. Að mati dóms var „grundvallaratriðum læknisskoðunar" ekki sinnt við skoðun konunnar áður en meðgöngueitrunin var greind. Þar sem hins vegar er ekki hægt að fullyrða að veikindi drengsins megi rekja beint til þessarar ófullnægjandi læknisskoðunar er ríkið sýknað. Fjórar merkur við fæðingu Forsaga málsins er sú að sonurinn var tekinn með keisaraskurði eftir 28 vikna meðgöngu vegna alvarlegrar meðgöngueitrun móður. Drengurinn vó þá aðeins 976 grömm, eða tæpar fjórar merkur. Hann fæddist árið 1999 og er því 12 ára í dag. Foreldrarnir halda því fram að starfsmaður heilsugæslunnar hafi vanrækt að leggja móðurina þegar í stað inn á sjúkrahús eftir að hún greindist með meðgöngueitrun, til að hún fengið viðeigandi eftirlit og meðferð. Íslenska ríkið hafnar því hins vegar að nokkurri bótaskyldu sé til að dreifa, auk þess sem krafan sé fyrnd, en lögmaður ríkisins miðar 10 ára fyrningartíma við fæðingu drengsins og því sé kröfuréttur fyrndur þegar málið var höfðað. Krafan ekki fyrnd Í niðurstöðu dóms segir að við fæðingu drengsins hafi ekki verið ljóst hverjar horfur hans voru. Það hafi komið í ljós þegar leið á fyrsta árið að fyrirburafæðingin og veikindin sem fylgdu höfðu valdið honum skaða, og á næstu árum hafi síðan komið í ljós hversu alvarlegur skaðinn varð. Því sé ekki eðlilegt að miða upphaf fyrningarfrests við fæðingu drengsins. Mat dómsins er þar með að krafan hafi ekki verið fyrnd. Ófullnægjandi læknisskoðun Ennfremur kemur fram í niðurstöðu dóms að ef grundvallaratriðum mæðraskoðunar hefði verið sinnt þegar eftir því var leitað hefði sjúkdómurinn líklega verið greindur tveimur til þremur dögum fyrr. Það er álit dómsins að læknisskoðun sem var framkvæmd, áður en meðgöngueitrunin kom í ljós, hafi verið ófullnægjandi og „grundvallaratriðum læknisskoðunar" ekki sinnt. Ekki orsakatengsl Þá segir í dómi: „Hins vegar bendir ekkert til þess, þótt meðgöngueitrunin hefði þá komið í ljós og innlögn átt sér stað að það hefði einhverju breytt um árangur meðferðar eða komið í veg fyrir fyrirburafæðingu. Styðst það við þau læknisfræðilegu álit, sem fyrir liggja í málinu. Veikindi og fötlun C verður rakin til fyrirburafæðingar hans og þeirra veikinda sem fylgdu í kjölfarið en ekki vegna tafar sem varð á greiningu meðgöngueitrunar móður. Að þessu virtu verður ekki talið að orsakir veikinda stefnanda sé unnt að rekja til ófullnægjandi læknisskoðunar fæðingalæknisins á (...) eða annarrar háttsemi starfsmanna NN. Verður því fallist á með stefnda að skilyrði bótareglna um orsakatengsl og sennilega afleiðingu séu ekki fyrir hendi. Verður stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda í málinu." Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp dóminn ásamt meðdómsmönnunum Berglindi Steffensen og Ragnheiði Bjarnadóttur, sérfræðingum í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. 20.5.2011 10:35
Rauði krossinn fær nýja sjúkrabíla Rauði kross Íslands hefur fengið afhenta fjóra nýja sjúkrabíla af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter. Breytingarvinna og smíði inn í bílunum var unnin af Sigurjóni Magnússyni á Ólafsfirði í samstarfi við Rauða krossinn og sjúkraflutningamenn. 20.5.2011 10:21
Skýrslur í salt þegar ölvaðir aka á staura Ökumenn í Reykjavík valda miklu tjóni með því að aka á umferðarljós og ljósastaura. Stundum reynist erfitt og jafnvel ómögulegt fyrir gatnadeild borgarinnar að ná til þeirra. 20.5.2011 10:00
Evrópubúar sameinist gegn kynbundnu ofbeldi Auglýst er eftir framlögum þessa dagana í samevrópska auglýsingakeppni sem miðar að því að uppræta hvers kyns ofbeldi gegn konum. Í fyrstu verðlaun eru fimm þúsund evrur sem jafngilda 824 þúsund krónum. Að keppninni stendur UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fyrir Vestur-Evrópu, í samvinnu við jafnréttisstofnun SÞ en skilafrestur í hana rennur út 31. maí. 20.5.2011 10:00
Þriðjungur orðið fyrir kynferðisofbeldi Könnun um kynferðisofbeldi gegn börnum hér á landi leiðir í ljós að 35 prósent stúlkna og 17,8 prósent drengja hafa orðið fyrir ofbeldi af því tagi. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur rannsakað þessi mál, meðal annars bakgrunn, afleiðingar og verndandi þæt 20.5.2011 08:30
Kaupa þarf hreinsibúnað ef ný tækni skilar engu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir heilsufarsógn stafa frá brennisteinsvetni frá jarðhitavirkjunum og gagnrýnir nýja frummatsskýrslu vegna jarðhitanýtingar á Hengilssvæðinu. Orkuveita Reykjavíkur metur fjárfestingarkostnað við nýjan hreinsibúnað í Hellisheiðarvirkjun á allt að tíu milljarða og gerir tilraunir með nýja tækni. 20.5.2011 08:00
Skólaárið verður tíu dögum styttra „Auðvitað er þetta skerðing á þjónustu en ekki svo mikil að fólk telji hana óásættanlega,“ segir Magnús Jóhannsson, formaður fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, um þá ákvörðun að stytta skólaárið í grunnskólum sveitarfélaganna um tíu daga. 20.5.2011 08:00
Fornleifafundur breytir sögu Danmerkur Merkur fornleifafundur í Jelling í Danmörku þýðir að Danir þurfa að endurskrifa sögu sína. 20.5.2011 07:41
Dómsdagsspámaður dvelur heima í dag Bandaríski útvarpsprédikarinn Harold Camping sem lýst hefur því yfir að dómsdagur renni upp á morgun ætlar að verja síðasta degi sínum með eiginkonunni á heimili þeirra í Kaliforníu. 20.5.2011 07:38
Reynt að girða fyrir spillingu þingmanna Alþingismönnum verður gert óheimilt að taka þátt í afgreiðslu mála sem varða sérstaka og verulega hagsmuni þeirra eða einhverra þeim nákomnum, ef tillögur stjórnlagaráðs ná fram að ganga. 20.5.2011 07:30
Kerfisbreyting bíður haustsins Tvö frumvörp ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnun fiskveiða voru lögð fram á Alþingi í gær. Aðeins er stefnt á að afgreiða minna frumvarpið áður en þingmenn fara í sumarfrí. 20.5.2011 07:30
Tíðni húðkrabbameins í Danmörku hefur tvöfaldast Nýjar tölur frá dönsku krabbameinssamtökunum Kræftens Bekæmpelse sýna að tíðni húðkrabbameins hjá fólki undir 35 ára aldri hefur tvöfaldast á síðustu 10 árum. 20.5.2011 07:29
Slydda og snjóél á Akureyri Slydda var á Akureyri í nótt og snjóél undir morgun. Ekki hefur þó myndast hálka á götum. 20.5.2011 07:26
Fjögur innbrot tilkynnt til lögreglunnar Fjögur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en þjófarnir komust undan í öllum tilvikum. 20.5.2011 07:24
Fullyrðir að Strauss-Kahn hafi keypt vændiskonur Kona sem rekur vændisþjónustu í New York fullyrðir að Dominique Strauss Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi ítrekað keypt af henni vændiskonur. 20.5.2011 07:22
Ísraelsmenn hafna tillögum Baracks Obama Tillögur Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að færa landamæri Ísraels aftur til þess sem þau voru fyrir sex daga stríðið árið 1967 falla í grýttan jarðveg í Ísrael. 20.5.2011 07:21
Eyðing regnskóga í Brasilíu eykst sexfalt Nýjar gervihnattamyndir sýna að eyðing regnskóganna í Brasilíu hefur aukist sexfalt milli ára. Eyðingin í ár nemur tæpum 600 ferkílómetrum en hún var rúmlega 100 ferkílómetrar á sama tíma í fyrra. 20.5.2011 07:19
Flugsveitir NATO eyðilögðu átta líbýsk herskip Flugsveitir NATO réðust á herskip í þremur höfnum í Líbýu í nótt í umfangsmiklum loftárásum og sökktu eða eyðilögðu átta herskip í þeim. Eldur logar enn af nokkrum skipanna og mikinn reyk leggur frá þeim. 20.5.2011 07:16
Engan sakaði í öflugri sprengingu á Grundartanga Engan sakaði þegar öflug sprenging varð í einum af þremur ofnum Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga í gærkvöldi, en húsið var rýmt í skyndingu og kallað var á slökkvilið, samkvæmt neyðaráætlun. 20.5.2011 07:13
Meira svigrúm veitt í héraði Samkvæmt nýjum tillögum innan framkvæmdastjórnar ESB verður sveitarfélögum, borgum og héruðum innan sambandsins auðveldað að styrkja og niðurgreiða verkefni í heimabyggðinni. Styrkir til minni verkefna, svo sem byggingar sundlauga, verða þá ekki litnir sömu augum og ríkisstyrkir. 20.5.2011 06:00
Tólfti skógurinn verður opnaður í sumar Skógræktarfélag Íslands hefur gert samstarfssamning við Arion banka um verkefnið Opinn skóg, auk útgáfu og kynningu á skógræktarsvæðum á Íslandi. Skrifað var undir samninginn, sem er til þriggja ára, síðdegis í gær. 20.5.2011 05:15
Obama styður kröfur Palestínumanna Barack Obama Bandaríkjaforseti styður kröfu Palestínumanna um að væntanlegt ríki þeirra miðist við landamærin eins og þau voru árið 1967, áður en Ísraelar hertóku Vesturbakkann og Gasasvæðið. Þetta kom fram í ræðu hans um málefni Mið-Austurlanda í gær. 20.5.2011 05:00
Verður að vera í stofufangelsi Dominique Strauss-Kahn var í gær látinn laus gegn tryggingu í New York. Hann sagði af sér á miðvikudag sem framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna ásakana um kynferðisbrot gegn þernu á hóteli í New York. 20.5.2011 04:00
Netanyahu hafnar hugmyndum Obama Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hafnar tillögum Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um sjálfsætt ríki Palestínumanna og segir þær óverjandi. Obama hélt fyrr í dag ræðu um málefni Mið-Austurlanda og sagði að ríki Palestínumanna verði miðist við þau landamæri sem voru í gildi árið 1967 fyrir sex daga stríðið. Hann sagði Ísraela og Palestínumenn verða að tryggja öryggi landamæranna. Þá ítrekaði Obama að Bandaríkin væru enn traustir bandamenn Ísraela í öryggismálum. 19.5.2011 20:44