Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ellefu bjargað úr námu í Kína Ellefu námuverkamönnum var bjargað úr námu í Kína eftir að þeir höfðu verið fastir þar í tvær vikur. Einn er sagður hafa dáið og örlög tíu til viðbótar eru óljós. Göng sem verið var að grafa í nýrri gullnámu í Kína hrundu í sprengingu þann 10. janúar. 24.1.2021 09:57
Navalní segist ekki ætla að svipta sig lífi í fangelsi Tugir þúsunda Rússa komu saman við mótmæli víðsvegar um Rússlands í gær. Þar af hittust einhverjir í allt að fimmtíu gráðu frosti. Rúmlega þrjú þúsund þeirra voru handteknir af lögreglu sem mætti mótmælendum víða af hörku. 24.1.2021 08:30
Vildi sinn mann í ráðherrastól á síðustu metrunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, íhugaði að skipta út starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í upphafi mánaðarins. Ætlaði hann sér að skipa annan starfandi ráðherra sem átti að hjálpa honum við að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í fyrra. 23.1.2021 23:01
Ákærður fyrir morðhótanir í garð þingmanns Fimm ákærur hafa verið gefnar út gegn Texasbúanum Garret Miller vegna þátttöku hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í upphafi mánaðarins. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa hótað þingkonunni Alexandriu Ocasio-Cortez lífláti. 23.1.2021 22:32
Ræddi við Biden um næstu skref Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, átti símafund með Joe Biden Bandaríkjaforseta í kvöld. Forsætisráðherrann greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í kvöld. 23.1.2021 21:36
Yfir tvö þúsund handtekin í mótmælum í Rússlandi Lögregla í Rússlandi hefur handtekið yfir tvö þúsund mótmælendur víðs vegar um Rússland í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní, sem handtekinn var síðustu helgi við komuna til Rússlands. Óeirðalögregla beitti mikilli hörku og voru sumir mótmælendur beittir ofbeldi og dregnir í burtu. 23.1.2021 18:40
Ráðherra sem mælti með sírópi gegn veirunni smitaður Pavithra Wanniarachchi, heilbrigðisráðherra Sri Lanka, hefur greint með kórónuveiruna. Ráðherrann greindist í gær og er sá fjórði í núverandi ríkisstjórn til að greinast. 23.1.2021 17:53
Ströngustu aðgerðir frá upphafi tekið gildi í Noregi Borgaryfirvöld í Osló hafa kallað eftir því höfuðborgarsvæðið verði sett í forgang hvað varðar bólusetningu gegn covid-19. Ströngustu reglur um sóttvarnir og aðgerðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar hafa tekið gildi á ákveðnum svæðum í Noregi, þær ströngustu frá upphafi faraldursins. Aðgerðir voru hertar eftir að svokallað breska afbrigði veirunnar fór að skjóta upp kollinum í nágrannasveitarfélagi höfuðborgarinnar. 23.1.2021 14:08
Tugir mótmælenda handteknir í Rússlandi Tugir hafa verið handteknir í Rússlandi í morgun eftir að stuðningsmenn stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní komu saman til að mótmæla handtöku hans. Navalní og bandamenn hans kölluðu eftir mótmælum í kjölfar þess að hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hafa brotið gegn skilorði með því að fara til Þýskalands í sumar. 23.1.2021 10:57
Biden biðst afsökunar vegna aðbúnaðar þjóðvarðliða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur beðist afsökunar vegna aðbúnaðar liðsmanna í þjóðvarðliði Bandaríkjanna, sem stóðu vaktina við þinghúsið, sem neyddust til að sofa í bílakjallara. 23.1.2021 09:36
Málflutningur gegn Trump hefst 8. febrúar Málaferlin gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir embættisbrot munu hefjast þann 8. febrúar næstkomandi. Þá munu lögmenn beggja fylkinga flytja upphafsræður sínar í öldungadeild Bandaríkjaþings. 23.1.2021 08:54
Ári eftir útgöngubann er lífið í Wuhan komið í fyrra horf Ár er liðið frá því að kínversku borginni Wuhan var svo gott sem lokað vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og um ellefu milljónir íbúa borgarinnar þar sem veiran greindist fyrst í mönnum, settir í algjört útgöngubann. Í dag er líf íbúa að mestu komið í sitt gamla horf en heimurinn stendur enn í ströngu. 23.1.2021 08:04
Útlit fyrir töf á afhendingu AstraZeneca innan Evrópusambandsins Færri skammtar af bóluefni AstraZeneca verða afhentir innan Evrópusambandsins næstu vikurnar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Búist var við hundrað milljónum skammta á fyrsta ársfjórðungi, en samkvæmt Financial Times gætu þeir orðið færri en fjörutíu milljónir. 22.1.2021 23:15
Dapurleg staða í Þýskalandi og víðar Á meðan staðan fer batnandi hér heima heldur faraldurinn áfram að herja af fullum krafti á önnur ríki Evrópu. Takmarkanir voru hertar víða í dag. 22.1.2021 21:37
Réttarhöldin hefjast í næstu viku Réttarhöldin yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefjast í öldungadeild bandaríska þingsins í næstu viku. Þetta sagði Chuck Schumer, leiðtogi Demókrataflokksins í öldungadeildinni í dag. 22.1.2021 21:00
Mögulega hærri dánartíðni meðal þeirra sem smitast af breska afbrigðinu Fyrstu niðurstöður rannsóknar á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar benda til þess að það gæti verið hættulegra heilsu fólks og leitt til verri veikinda. Þetta er haft eftir Boris Johnson forsætisráðherra á vef breska ríkisútvarpsins. 22.1.2021 17:27
Fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest tilnefningu fyrrverandi herforingjans Lloyd J. Austin til embættis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann er fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 22.1.2021 16:31
Leiðtogar smyglhringsins dæmdir í fangelsi Fjórir menn hafa verið dæmdir samtals 78 ára í fangelsi vegna dauða 39 farandmanna og kvenna frá Víetnam sem fundust í gámi í Essex árið 2019. Fólkið hefði kafnað í gámnum á meðan verið var að flytja hann frá Belgíu til Bretlands. 22.1.2021 15:19
Rúmlega fimmtíu þúsund Þjóðverjar hafa dáið vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Þýskalandi er kominn yfir fimmtíu þúsund. Yfirvöld þar opinberuðu í dag 859 dauðsföll milli daga og samkvæmt opinberum tölum hafa 50.642 dáið þar í landi. 22.1.2021 14:26
Tókst að fá samband við Trump um borð í Air Force One með því að þykjast vera Piers Morgan Óprúttnum aðilum tókst að fá samband við Donald Trump, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í október síðastliðnum með því að þykjast vera sjónvarpsmaðurinn umdeildi Piers Morgan. 22.1.2021 14:07
Bandamenn Navalnís handteknir vegna mótmæla Bandamenn rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, hafa verið handteknir vegna ætlana þeirra um að halda mótmæli vegna handtöku Navalnís víða um Rússland á morgun. Meðal þeirra eru þær Lyubov Sobol, og Kira Jarmísj, talskona Navalnís. 22.1.2021 12:42
Hópur réðst á fimmtán ára dreng um miðjan dag og myrti hann Fimmtán ára drengur var myrtur í Birmingham á Englandi í gær þegar hópur manna vopnaðir hnífum veittist að honum á miðri íbúðargötu. Lögreglan segir að ráðist hafi verið á hann um klukkan hálf fjögur í gær og hann hafi dáið af sárum sínum á sjúkrahúsi. 22.1.2021 09:42
ISIS lýsir yfir ábyrgð á árásinni í Bagdad Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa sagst bera ábyrgð á árásinni á markað á Tayaran-torgi í íröksku höfuðborginni Bagdad í gær þar sem tveir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp. Að minnsta kosti 32 létu lífið í árásinni og á annað hundrað særðist. 22.1.2021 08:24
Eyðilegging og rafmagnsleysi í Noregi vegna óveðursins Frank Óveður sem hefur gengið undir nafninu Frank hefur herjað á Norðmenn í gær og í dag og valdið talsverðri eyðileggingu á mannvirkjum og rafmagnsleysi víða um land. 22.1.2021 07:55
Vilja að réttarhöld yfir Trump frestist fram í febrúar Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings fara þess nú á leit við Demókrata að þeir fresti réttarhöldum yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta, í öldungadeildinni fram í febrúar. Þetta skuli gert svo Trump fái færi á að undirbúa varnir í málinu. 22.1.2021 07:31
Fauci segir frelsandi að vinna ekki lengur undir Donald Trump Dr. Anthony Fauci, yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna og einn helsti sóttvarnasérfræðingur, segir að það sé frelsandi tilfinning að geta nú greint frá vísindalegum staðreyndum í tengslum við kórónuveiruna og faraldur hennar án þess að óttast viðbrögð Donalds Trump. 22.1.2021 06:58
„Hjálpin er á leiðinni“ Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur nú skrifað undir tíu forsetatilskipanir sem snúa að baráttunni við kórónuveirufaraldurinn í Bandaríkjunum. Tilskipununum er ætlað að hrinda af stað metnaðarfullri áætlun forsetans til að draga verulega úr útbreiðslu Covid-19. 21.1.2021 23:30
Trump gæti fengið Facebook-aðganginn aftur Eftirlitsnefnd um stjórnarhætti samfélagsmiðlarisans Facebook mun nú taka fyrir ákvörðun fyrirtækisins um að úthýsa Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, af miðlinum. 21.1.2021 20:47
Fimm dóu í bruna hjá stærsta bóluefnaframleiðanda heims Fimm eru dánir eftir að eldur kviknaði í húsnæði stærsta bóluefnaframleiðanda heims í Indlandi. Eldurinn mun þó ekki koma niður á framleiðslu bóluefnis AstraZeneca, sem fyrirtækið Serum Institute of India hefur verið að framleiða. 21.1.2021 16:35
Biden gefur í gegn veirunni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifar undir tíu forsetatilskipanir í dag sem snúa að baráttunni við faraldur nýju kórónuveirunnar. Meðal þeirra aðgerða sem grípa á til er að skikka fólk til að auka framleiðslu bóluefna, auka skimun, opna skóla og fyrirtæki samhliða því að auka notkun andlitsgríma. 21.1.2021 15:33
Fimmtíu handteknir og hald lagt á rúmlega 300 milljónir evra Fimmtíu hafa verið handteknir og rannsókn hafin á stjórnmálamanni í áhlaupi lögreglunnar á Ítalíu gegn ‘Ndrangheta-mafíunni. Saksóknarar segja áhlaupið varpa ljósi á viðleitni mafíunnar til að þvætta fé og kaupa pólitísk áhrif. 21.1.2021 14:16
Q-liðar á krossgötum: Engin herlög og engar fjöldahandtökur Í þrjú ár hafa Qanon-liðar staðið í þeirri trú að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi háð leynilega baráttu gegn djöfladýrkandi Demókrötum og meðlimum elítunnar svokölluðu sem níðast á börnum og drekka blóð þeirra til að halda sér ungum. 21.1.2021 12:29
Bíða ekki eftir ESB og samþykkja bóluefni AstraZeneca og Sputnik V Lyfjastofnun Ungverjalands hefur veitt bóluefni AstraZenica og rússneska bóluefninu Sputnik V bráðabirgðaleyfi í landinu. 21.1.2021 12:07
Skáldið sem sló í gegn Skáldið unga, Amanda Gorman, baslaði við að klára ljóðið „The Hill We Climb“, eða Hæðin sem við klífum, fyrir um tveimur vikum síðan. Hún hafði nýverið fengið tímamótaverkefni og óttaðist að valda því ekki. Sá ótti hennar reyndist ekki á rökum reistur. 21.1.2021 10:57
21 látinn eftir tvær sprengjuárásir í Bagdad Að minnsta kosti 21 er látinn eftir að tvær sjálfsvígssprengjuárásir voru gerðar í íröksku höfuðborginni Bagdad í morgun. 21.1.2021 09:44
Minnst fjórir látnir og tíu særðir í Madríd Minnst fjórir eru látnir og minnst tíu særðir eftir mikla sprengingu í Madríd í gær. Sprengingin varð þegar verið var að gera við gaskerfi sjö hæða húss í Puerta de Toledo, nærri miðborg Madrídar, og olli hún gífurlegum skemmdum. 21.1.2021 09:29
Biden og Harris taka við embætti: Dagurinn í myndum Fánar blöktu þar sem venjulega stendur fólk, þjóðvarðliðar í þúsundatali gengu fylktu liði um Washington-borg og fráfarandi forseti var ekki viðstaddur þegar nýr forseti tók við embætti Bandaríkjaforseta í dag. Dagurinn var fyrir margar sakir sögulegur, ekki hvað síst vegna þess að í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna er kona orðin varaforseti. 21.1.2021 00:34
Kamala Harris nú með oddaatkvæðið í öldungadeildinni Hinn 33 ára gamli Jon Ossoff, varð í dag yngsti þingmaðurinn í öldungadeild Bandaríkjaþings en hann er jafnframt yngsti Demókratinn til að taka sæti í öldungadeildinni síðan Joe Biden varð öldungadeildarþingmaður árið 1973, þá 30 ára gamall. 20.1.2021 22:57
Biden þegar byrjaður að snúa við ákvörðunum Trumps Joe Biden skrifaði undir sínar fyrstu forsetatilskipanir í dag, fljótlega eftir að hann steig í fyrsta sinn inn á skrifstofu forseta í Hvíta húsinu eftir að hafa tekið við embætti forseta. Hann sagði tilskipanirnar vera „djarfar“ og að þær snúist um að uppfylla loforð hans gagnvart Bandarísku þjóðinni. 20.1.2021 22:47
Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar njóta áfram verndar leyniþjónustunnar Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar munu áfram njóta þjónustu leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem áfram mun annast öryggisgæslu fjölskyldunnar, nú eftir að Donald Trump hefur lokið tíð sinni í embætti forseta Bandaríkjanna. 20.1.2021 21:11
Biden mættur í Hvíta húsið Joe Biden gekk nú fyrir nokkrum mínútum inn um hliðið og í Hvíta húsið í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna. Biden gekk síðasta spölinn í stórri skrúðgöngu, sem fram fór að lokinni innsetningarathöfn, ásamt fjölskyldu sinni og er nú mættur í Hvíta húsið. Þetta er þó sannarlega ekki í fyrsta sinn sem hann kemur í Hvíta húsið enda var hann varaforseti í tíð Baracks Obama. 20.1.2021 21:04
„Lýðræðið hefur sigrað“ „Þetta er dagur Ameríku. Þetta er dagur lýðræðis. Dagur sögunnar og vonar,“ sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, við upphaf fyrstu ræðu sinnar eftir að hann sór formlega eið að embættinu við hátíðlega athöfn í dag. „Í dag fögnum við sigri, ekki sigri frambjóðenda, heldur sigri málstaðar. Málstaðar lýðræðis,“ sagði forsetinn ennfremur. 20.1.2021 17:46
Joe Biden er 46. forseti Bandaríkjanna Joe Biden sór rétt í þessu embættiseið og er nú forseti Bandaríkjanna. Kamala Harris er varaforseti, fyrst kvenna og fyrst svartra Bandaríkjamanna. Fráfarandi forseti var ekki viðstaddur athöfnina en varaforsetinn Mike Pence mætti ásamt eiginkonu sinni. 20.1.2021 16:50
Hver verða skilaboð Trump til Biden? Reagan fyrstur til að skilja eftir bréf til næsta forseta Donald Trump hefur yfirgefið Hvíta húsið í hinsta sinn og fregnir þess efnis að hann hafi ekki skilið eftir skilaboð til Biden verið dregnar til baka. 20.1.2021 15:03
Minnst þrír látnir í sprengingu í Madríd Mikil sprenging átti sér stað í Madríd á Spáni í dag og eru minnst þrír látnir. Útlit er fyrir að sprenginin hafi orðið vegna gasleka. 20.1.2021 14:31