Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
47 aðgerðasinnar ákærðir fyrir brot á öryggislögum í Hong Kong Lögreglan í Hong Kong hefur kært 47 aðgerðasinna fyrir að grafa undan kínverskum yfirvöldum. Um er að ræða brot á umdeildum öryggislögum sem innleidd voru í lok maí í fyrra. Lögin eru sögð takmarka frelsi íbúa umtalsvert, sem kínversk stjórnvöld og stjórnvöld í Hong Kong hafa neitað. 28.2.2021 23:26
Navalní fluttur í fangabúðir: „Þær eru hræðilegar“ Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur í fangabúðir rétt fyrir utan Moskvu þar sem hann á að sitja af sér tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Navalní var fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu á fimmtudag og var aðstandendum hans ekki gert viðvart um tilfærslu hans. 28.2.2021 18:21
Minnst tíu mótmælendur drepnir í Mjanmar Lögregla í Mjanmar hefur orðið minnst tíu mótmælendum að bana víða um landið. Harka hefur færst í viðbrögð hersins við mótmælum gegn valdaráni sem framið var í Mjanmar fyrr í mánuðinum. Tugir mótmælenda hafa þá særst. 28.2.2021 14:03
Læknir hugðist bera vitni á Zoom í miðri aðgerð Heilbrigðisyfirvöld í Kaliforníu rannsaka nú mál skurðlæknis sem hugðist bera vitni við réttarhöld gegnum Zoom, á meðan hann gerði aðgerð á sjúkling. Dómarinn í málinu sagði fyrirætlun læknisins ekki viðeigandi og frestaði fyrirtökunni. 28.2.2021 13:12
Bóluefni Janssen fær grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt leyfir fyrir notkun bóluefnis Janssen fyrir Covid-19 í landinu. Um er að ræða þriðja bóluefnið sem samþykkt er í Bandaríkjunum og það fyrsta sem gefið er í einni sprautu. Áður hafa bóluefni Pfizer og Moderna fengist samþykkt í landinu. 28.2.2021 08:46
Dóminíska lýðveldið girðir af landamærin við Haítí Dóminíska lýðveldið mun hefja framkvæmdir við að reisa girðingu á landamærum þess að Haítí síðar á þessu ári. Um er að ræða 376 kílómetra löng landamæri og segir forseti lýðveldisins verkefnið miða að því að stemma stigu við smygli og koma í veg fyrir að óskráðir innflytjendur fari yfir landamærin. 27.2.2021 22:55
Stóðu heiðursvörð við útför kafteins Tom Moore Útför kafteins Tom Moore, sem safnaði milljörðum til styrktar breska heilbrigðiskerfinu síðasta vor, fór fram í dag. Breskir hermenn stóðu heiðursvörð og herflugvélar flugu yfir útförinni til heiðurs kafteininum. 27.2.2021 20:06
Sendiherra Mjanmar hjá SÞ rekinn fyrir að biðja um hjálp Herforingjastjórn Mjanmar, sem rændi völdum í byrjun febrúarmánaðar, hefur rekið Kyaw Moe Tun, sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, eftir að hann óskaði eftir aðstoð SÞ til þess að hrekja herforingjastjórnina frá völdum. 27.2.2021 17:28
Yfir fjögur hundruð fangar flúðu úr yfirfullu fangelsi Yfir fjögur hundruð fangar flúðu úr fangelsi skammt frá Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, á fimmtudag. Yfirmaður fangelsisins lést í uppþotunum sem leiddu að fjöldaflóttanum. 27.2.2021 13:47
Þriðjungur bandaríska hermanna afþakkar bólusetningu Þriðjungur bandaríska hermanna hefur afþakkað bólusetningu gegn Covid-19. Sums staðar, til dæmis í Fort Bragg í Norður-Karolínu, hefur minna en helmingur látið bólusetja sig. 27.2.2021 13:29
Grípa til refsiaðgerða en ekki gegn krónprinsinum sjálfum Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa bannað fjölda einstaklinga frá Sádi Arabíu að ferðast til Bandaríkjanna og íhuga að endurskoða vopnasölu til ríkisins. Bandaríkjamenn birtu í gær skýrslu þar sem fram kemur að krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi. 27.2.2021 10:20
Biden skrefinu nær því að ná björgunarpakkanum í gegn Björgunarpakkafrumvarp Joes Biden Bandaríkjaforseta var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í nótt. Frumvarpið gerir ráð fyrir opinberum útgjöldum upp á 1.900 milljarða dollara. 27.2.2021 09:35
Hundar Lady Gaga komnir heim heilir á húfi Koji og Gustav, frönskum bolabítum bandarísku tónlistarkonunnar Lady Gaga, hefur verið skilað til eiganda síns heilum á húfi. Þeir voru teknir ófrjálsri hendi og Ryan Fischer, aðstoðarmaður Gaga, skotinn í bringuna síðastliðinn miðvikudag. 27.2.2021 08:01
ISIS-brúður fær ekki að snúa aftur til Bretlands Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöður að Shamima Begum gekk til liðs við Íslamska ríkið þegar hún var fimmtán ára gömul, megi ekki snúa aftur til Bretlands til að berjast fyrir ríkisborgararétti sínum. 26.2.2021 21:46
Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi. 26.2.2021 15:46
Vilja sprengja þinghúsið og drepa þingmenn Starfandi yfirmaður lögreglu Bandaríkjaþings segir öfgamenn sem komu að árásinni á þinghúsið þann 6. janúar, hafa rætt sín á milli um að sprengja þinghúsið í loft upp og drepa eins marga þingmenn og þeir gætu. Það vilji þeir gera þegar Joe Biden flytur fyrstu stefnuræðu sína til þingsins. 26.2.2021 14:18
Ætlar að leiða leitina að þremenningunum: „Megi Allah vera með okkur“ „Á síðustu vikum hef ég gengið í gegnum eina mest krefjandi og trámatísku reynslu á ævinni. Ég vil ekki muna tíma örvæntingar og ótta. Ég vinn að því að græða sjálfan mig og freista þess að hjálpa fjölskyldunni minni að gera slíkt hið sama.“ 26.2.2021 12:45
Hundruðum skólastúlkna rænt í Nígeríu Vopnaðir menn hafa rænt nokkur hundruð skólastúlkum í norðvesturhluta Nígeríu. Það er önnur árás af þessu tagi en fyrir rétt rúmri viku síðan var fjölmörgum drengjum rænt úr heimavistarskóla á svæðinu. 26.2.2021 12:42
Skotárásin og rán á hundum Lady Gaga náðist á myndband Árásin á aðstoðarmann söngkonunnar Lady Gaga, sem var á gangi með hunda hennar, náðist á myndband. Tveir menn á hvítum bíl veittust að aðstoðarmanninum á miðvikudaginn og reyndu að ræna hundum söngkonunnar af honum. 26.2.2021 11:21
„Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ 26.2.2021 11:04
Kastaði börnum sínum út um glugga á fjórðu hæð Tyrknesk móðir bjargaði börnum sínum frá bruna í Istanbúl í vikunni með því að kasta þeim út um gluggann á íbúð þeirra á fjórðu hæð sex hæða húss. 26.2.2021 10:39
Yfirgáfu Norður-Kóreu á handknúnum járnbrautavagni Rússneskir erindrekar og fjölskyldur þeirra þurftu að nota handknúinn járnbrautarvagn til að ferðast frá Norður-Kóreu, þar sem landamærin eru alfarið lokuð vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. 26.2.2021 10:02
Bandaríkjaher gerir loftárás í austurhluta Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gærkvöldi loftárásir á mannvirki við landamærastöð í Sýrlandi sem notuð er af fjölda vígasamtaka sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist um mannfall. 26.2.2021 08:01
Navalní fluttur milli fangelsa með leynd Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu hvar honum hefur verið haldið að undanförnu. Ekki liggur fyrir hvert hann hefur verið fluttur. 25.2.2021 23:30
Fjórir menn fundust látnir í vök Fjórir karlmenn drukknuðu í ísilögðu stöðuvatni skammt frá Sävsjö í suðurhluta Svíþjóðar í dag. Þeir voru á sjötugs- og áttræðisaldri. 25.2.2021 22:45
Fannst látinn sama dag og hann var ákærður fyrir mansal og kynferðisofbeldi John Geddert, fyrrverandi þjálfari bandaríska fimleikalandsliðsins, fannst látinn í Grand Ledge í Michigan í Bandaríkjunum. Hann er talinn hafa stytt sér aldur, en hann var fyrr í dag ákærður fyrir mansal, kynferðisofbeldi og fleira, eftir því New York Times greinir frá. 25.2.2021 21:15
Saksóknarar komnir með skattgögn Trumps Saksóknarar í Manhattan í New York eru komnir með skattskýrslur og önnur fjármálagögn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Það er eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði kröfu Trumps um að ekki mætti veita saksóknunum gögnin. 25.2.2021 17:19
Sendi teikningar af þinghúsi Þýskalands til rússnesks njósnara Þýskir alríkissaksóknarar hafa ákært þýskan ríkisborgara fyrir að hafa útvegað rússneskum manni, sem grunaður er um að vera njósnari, teikningar og önnur gögn um þinghús Þýskalands. 25.2.2021 16:20
Umfangsmiklar framkvæmdir við leynilega kjarnorkustöð í Ísrael Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við leynilega kjarnorkurannsóknarstöð í Ísrael. Gervihnattamyndir sýna að framkvæmdirnar fara fram nærri gömlum kjarnakljúfi sem Ísraelar notuðu til að framleiða kjarnorkuvopn sín, sem þeir hafa aldrei formlega opinberað. 25.2.2021 15:02
Aðstoðarmaður Lady Gaga skotinn og hundum hennar rænt Tveir menn réðust að aðstoðarmanni söngkonunnar Lady Gaga í Los Angeles í gærkvöldi og skutu hann einu sinni í bringuna. Því næst rændu mennirnir tveimur af þremur hundum söngkonunnar og flúðu af vettvangi. 25.2.2021 14:06
Þurfa að velja milli sjúklinga vegna súrefnisskorts Víða í Afríku og Suður-Ameríku glíma heilbrigðisstarfsmenn við súrefnisskort. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og læknar segja skortinn hafa verið fyrirsjáanlegan og að hann hafi leitt til óþarfa dauðsfalla. 25.2.2021 12:23
Kannast ekki við að erindrekar hafi verið þvingaðir til að gefa sýni úr endaþörmum þeirra Talsmaður utanríkisráðuneytis Kína segir rangt að bandarískir erindrekar þar í landi hafi verið skikkaðir í skimun fyrir Covid-19, þar sem sýni voru tekin úr endaþörmum þeirra. 25.2.2021 11:06
Nýtt afbrigði veirunnar breiðist hratt út í New York Nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur skotið upp kollinum í New York og breiðist nú hratt út í borginni. Stökkbreytingin veldur vísindamönnum nokkrum áhyggjum þar sem þeir óttast að hún veiki virkni bóluefna gegn veirunni. 25.2.2021 10:59
Herinn krefur forsætisráðherra Armeníu um afsögn Forsvarsmenn hers Armeníu hafa krafist þess að Nikol Pashinyan, forsætisráðherra ríkisins, og ríkisstjórn hans láti af völdum. Pashinyan segist líta á kröfuna sem tilraun til valdaráns og hvetur hann stuðningsmenn sína til að mótmæla á götum úti. 25.2.2021 09:58
Finnar lýsa yfir neyðarástandi og loka í þrjár vikur Stjórnvöld í Finnlandi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar í landinu. Sumar aðgerðir stjórnvalda taka gildi þegar í stað, en aðrar 8. mars. Munu aðgerðirnar gilda í þrjár vikur. 25.2.2021 09:12
Komst lífs af eftir fjórtán tíma volk í sjónum Sjómaður frá Litháen sem féll fyrir borð á skipi sínu í Kyrrahafi komst lífs af eftir fjórtán klukkustunda volk í sjónum án björgunarvestis. 25.2.2021 07:41
Bóluefni Janssen metið öruggt og með góða virkni Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að bóluefnið frá Janssen sé öruggt í notkun og með góða virkni gegn kórónuveirunni. Eftirlitið hefur nú lokið rannsóknum sínum á efninu og er búist við því að það fái markaðsleyfi í Bandaríkjunum á allra næstu dögum. 25.2.2021 07:29
Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður. 24.2.2021 23:33
Port Elizabeth verður Gqeberha: Suður-Afríkubúar þræta um hinn nýja tungubrjót Suður-Afríkubúar deila nú um nafnabreytingar sem tekið hafa gildi. Á samfélagsmiðlum kýta menn um ákvörðunina sjálfa en ekki síður nýju nöfnin, sem sum eru sannkallaðir tungubrjótar fyrir þá sem ekki tala málið. 24.2.2021 23:27
Telur mögulega ekki þörf á grímum í sumar Mögulegt er að grímuskylda verði afnumin innandyra í Bretlandi yfir sumarmánuðina. Þetta kom fram í máli Jenny Harries, eins helsta heilbrigðismálaráðgjafa breskra stjórnvalda, á blaðamannafundi vegna kórónuveirufaraldursins í Bretlandi í dag. 24.2.2021 23:26
Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk. 24.2.2021 20:59
Herða takmarkanir í Svíþjóð og Noregi Norðmenn og Svíar kynntu hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar í dag. 24.2.2021 19:30
Sendiherra ESB skipað að yfirgefa Venesúela Ríkisstjórn Venesúela hefur skipað sendiherra Evrópusambandsins þar að yfirgefa landið. Það var gert í kjölfar þess að ESB beitti nítján embættismenn í Venesúela viðskiptaþvingunum. 24.2.2021 16:53
Bjóða hjúkrunarfræðinga í stað bóluefna frá Bretum og Þjóðverjum Yfirvöld á Filippseyjum hyggjast leyfa þúsundum hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna að sækja vinnu til Bretlands og Þýskalands gegn því að ríkin gefi stjórnvöldum bóluefni við Covid-19. 24.2.2021 15:15
75 fangar létu lífið í átökum í Ekvador Að minnsta kosti 75 fangar létu lífið í blóðugum átökum liðsmanna tveggja glæpagengja innan veggja þriggja fangelsa í Ekvador í gær. Fangaverðir þurftu að leita aðstoðar hjá bæði lögreglu og hernum til að ná aftur stjórn á ástandinu í fangelsunum. 24.2.2021 12:35