Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skipuleggjendur minningarathafnar ákærðir fyrir að ógna þjóðaröryggi Skipuleggjendur minningarathafnar um ódæðisverkin sem framin voru á Torgi hins himneska friðar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi Hong Kong. 10.9.2021 16:03
Svíþjóðardemókrati handtekinn grunaður um morð Karlmaður hefur verið handtekinn í Svíþjóð grunaður um að hafa myrt konu í suðurhluta Vestur-Gautlands í síðustu viku. Maðurinn er sagður stjórnmálamaður í flokki Svíþjóðardemókrata og sinnir mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. 10.9.2021 15:27
Trudeau í kröppum dansi í sjónvarpskappræðum Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, lenti í harðri sennu í sjónvarpskappræðum flokksformanna í gær, en þingkosningar fara fram þar í landi eftir tíu daga. Trudeau, sem hefur setið í stóli forsætisráðherra í sex ár, rauf óvænt þing í síðasta mánuði og boðaði til kosninga tveimur árum fyrr en ráðgert var. Þetta gerði hann í ljósi góðrar stöðu hans og Frjálslynda flokksins í skoðanakönnunum. 10.9.2021 14:25
Ný ríkisstjórn loks tekin við í Líbanon Ný ríkisstjórn hefur loks tekið við í Líbanon, um þrettán mánuðum eftir að sú síðasta hrökklaðist frá völdum í kjölfar spreningarinnar miklu í höfuðborginni Beirút í ágúst 2020. 10.9.2021 13:46
Hangandi nashyrningar og bakteríuflóra götutyggjós Hvernig er best að flytja nashyrning? Getur fullnæging dregið úr nefstíflum? Breytist líkamslykt áhorfenda í kvikmyndahúsum eftir því hvað verið er að horfa á? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem handhafar Ig Nóbelsverðlaunanna freistuðu þess að svara. 10.9.2021 08:47
Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10.9.2021 08:00
Yfir 100 manns flogið frá Kabúl til Katar Fyrsta vélin til að yfirgefa Kabúl í Afganistan með útlendinga innanborðs eftir að talíbanar tóku þar öll völd hóf sig til flugs í gærkvöldi. 10.9.2021 06:42
Ótrúlegt og rándýrt listaverkasafn á uppboð vegna hatrammrar skilnaðardeilu Uppboðshaldarinn Sotheby's mun í vetur og á næsta ári halda uppboð á einstöku listaverkasafni sem sett var á sölu að skipan dómara í hatrammri skilnaðardeilu aldraðra milljarðamæringa. Selja á bestu bitana úr safninu svo hægt sé að ljúka deilunni. 9.9.2021 23:31
Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu. 9.9.2021 21:25
Dómsmálaráðuneytið fer í hart við Texas vegna „hjartsláttarlaganna“ Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt yfirvöldum í Texas-ríki Bandaríkjanna vegna umdeildra laga um þungunarrof sem nýlega tóku gildi í ríkinu. Ráðuneytið segir lögin vera andstæð stjórnarskrá Bandaríkjanna. 9.9.2021 20:31
Eyjafrýnan nú talin í útrýmingarhættu Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin (IUCN) telja nú að eyjafrýnan, sem einnig er nefnd kómódódrekinn, sé í útrýmingarhættu. Spáð er að búsvæði þessarar stærstu eðlutegundar á jörðinni minnki um að minnsta kosti 30% á næstu 45 árum. 9.9.2021 15:48
Húsleit í þýskum ráðuneytum vegna rannsóknar á spillingardeild Saksóknarar gerður húsleit í fjármála- og dómsmálaráðuneytum Þýskalands í dag. Leitin er sögð hluti af rannsókn á opinberri stofnun sem rannsakar peningaþvætti en hún kemur á versta tíma fyrir fjármálaráðherrann sem stendur í harðri kosningabaráttu. 9.9.2021 15:17
Lýsa eftir utanbæjarmanni í tengslum við sprengjutilræði í Washington Alríkislögreglan í Bandaríkjunum (FBI) birti á vef sínum í gær myndband sem talið er sýna mann koma fyrir rörasprengjum við höfuðstöðvar Demókrata og Repúblikana í Washingtonborg að kvöldi 5. janúar síðastliðins. 9.9.2021 14:05
Hóta stjórnarslitum verði útgöngusamningnum ekki breytt Flokkur sambandssinna á Norður-Írlandi hótar því að sprengja heimastjórnina þar verðir breytingar ekki gerðar á útgöngusamningi Bretland og Evrópusambandsins á næstu vikum. Bresk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að aðlögunartímabil yrði framlengt á Norður-Írlandi. 9.9.2021 12:08
Getnaðarvarnir verða gjaldfrjálsar fyrir franskar konur 25 ára og yngri Franskar konur upp að 25 ára aldri munu ekki þurfa að greiða fyrir getnaðarvarnir þar í landi frá og með áramótum. Olivier Veran heilbrigðisráðherra tilkynnti þetta fyrr í dag, en fram kemur í frétt Reuters að áður hafi mörkin fyrir gjaldfrjálsar getnaðarvarnir verið dregin við átján ára aldur. 9.9.2021 12:07
Norðurkóreskt varnarlið marseraði í hlífðarbúningum Norður-Kórea fagnaði því að 73 ár eru liðin frá stofnun ríkisins í nótt með skrúðgöngu. Athygli hefur vakið að allir þeirra sem tóku þátt í skrúðgöngunni voru klæddir í appelsínugula hlífðarbúninga en engin flugskeyti voru til sýnis, sem gjarnan eru sýnd á slíkum viðburðum í Norður-Kóreu. 9.9.2021 11:33
Reykur í Alþjóðlegu geimstöðinni Viðvörunarkerfi í rússneska hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu fór í gang þegar reykur greindist um borð. Geimfarar eru sagðir hafa ýmist séð reyk eða fundið lykt af brenndu plasti. 9.9.2021 08:36
Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka. 9.9.2021 08:33
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. 9.9.2021 07:46
Breska strandgæslan fær heimild til að snúa flóttamönnum við Innanríkisráðherra Breta, Priti Patel, hefur gefið bresku landamæragæslunni leyfi til að skipa bátum sem flytja flóttafólk yfir Ermarsund að snúa til baka til Frakklands. 9.9.2021 07:04
Gætu annað 40% af raforkuþörf Bandaríkjanna með sólarorku Mögulegt er að framleiða allt að 40% alls rafmagns í Bandaríkjunum með sólarorku innan fimmtán ára samkvæmt nýrri skýrslu Bandaríkjastjórnar. Til þess þyrfti þó meiriháttar fjárfestingu í raforkukerfinu. 8.9.2021 23:44
Stefna á að skjóta upp stærsta geimsjónauka heims fyrir jól Geimstofnanir Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada hafa sammælst um að stefna að því að skjóta James Webb-geimsjónaukanum út í geim 18. desember. Hann verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni. 8.9.2021 22:50
Fjarlægðu einn stærsta minnisvarðann um Suðurríkjaleiðtoga sem eftir var Verkamenn fjarlægðu styttu af Robert E. Lee, hershöfðingja gömlu Suðurríkjanna, í höfuðborg Virginíuríkis í Bandaríkjunum í dag. Fögnuður braust út þegar styttunni var lyft af stalli sínum. 8.9.2021 21:17
Meðstofnandi Nxivm á leið í fangelsi Nancy Salzman, annar stofnandi kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi. 8.9.2021 21:12
Ekkja Bobbys vill ekki að morðinginn sleppi Ethel Kennedy, ekkja Roberts F. Kennedy, sem var ráðinn af dögum í miðri kosningabaráttu árið 1968, segist andvíg því að banamanni eiginmanns hennar, Sirhan Sirhan, verði veitt reynslulausn. Yfirlýsing þess efnis birtist á Twittersíðu dóttur hennar, Kerry Kennedy, í gær. 8.9.2021 16:57
Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta. 8.9.2021 12:11
Rússneskur ráðherra dó við að stökkva eftir manni sem féll í vatn Yevgeny Zinichev, neyðarmálaráðherra Rússlands, dó á æfingu á heimskautasvæði Rússlands í dag. Ráðherrann er sagður hafa dáið við að reyna að bjarga tökumanni sem féll ofan í vatn. 8.9.2021 10:55
Réttarhöld vegna hryðjuverkanna í París hafin Réttarhöld hefjast í dag yfir tuttugu mönnum sem sakaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í París haustið 2015. Alls létust 130 manns og hundruð særðust þegar níu menn vopnaðir byssum og sprengjuvestum létu til skarar skríða við þjóðarleikvanginn Stade de France, tónleikahúsinu Bataclan og veitingastöðum og kaffihúsum víða um borgina. 8.9.2021 10:51
Vopnað rán og eltingaleikur um hábjartan dag Tveir menn eru í haldi lögreglu og fimm annarra er leitað eftir að vopnaðir þjófar réðust inn í verslun Bulgari í miðborg Parísar og höfðu á brott með sér skartgripi sem metnir eru á 1,5 milljarð króna. 8.9.2021 08:30
Sautján sjúklingar létust þegar flæddi inn á sjúkrahús Að minnsta kosti sautján sjúklingar létust þegar á flæddi inn í spítala í Hidalgo-héraði í Mexíkó í nótt. Áin sem rann í nágrenni sjúkrahússins flæddi yfir bakka sína og það leiddi til rafmagnsleysis á spítalanum. 8.9.2021 07:59
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af bráðabirgðastjórninni Bandarísk stjórnvöld segjast hafa áhyggjur af nýskipaðri bráðabirgðastjórn í Afganistan sem talíbanar kynntu til sögunnar í gær. 8.9.2021 07:03
Glataðir boltar og léleg logsuða orsök mannskæðs brúarhruns Sérfræðingar sem rannsaka mannskætt lestarslys sem varð í Mexíkóborg í Mexíkó í maí telja að glataðir boltar og léleg logsuða hafi á verið meðal orsaka þess að slysið varð. 26 létust þegar brú hrundi í þann mund sem lest ók á henni. 7.9.2021 22:44
Íranir halda áfram að auðga úran Stjórnvöld í Teheran halda áfram að bæta í forða sinn af auðguðu úrani sem hægt væri að nota til framleiðslu á kjarnavopnum, að sögn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA). Eftirlitsmenn hennar hafa átt erfitt um vik að fylgjast með þróun mála í Íran á þessu ári. 7.9.2021 20:24
Telja að brennuvargur hafi kveikt gróðurelda í Galisíu Yfirvöld í Galisíu á norðvestanverðum Spáni telja að einhver hafi vísvitandi tendrað gróðurelda sem geisa nú í sjálfstjórnarhéraðinu. Eldurinn brennur enn stjórnlaust þrátt fyrir að fjöldi slökkviliðsmanna berjist við hann með hjálp flugvéla og þyrla. 7.9.2021 17:57
Talibanar skipa bráðabirgðastjórn Talibanar tilkynntu í dag að þeir hefðu skipað bráðabirgðaríkisstjórn í Afganistan. Þar eru fremstir í flokki margir af eldri forystumönnum samtakanna sem hafa leitt baráttuna gegn fjölþjóðaliðinu og kjörnum stjórnvöldum síðustu tvo áratugina. 7.9.2021 17:02
Hækkar skatta vegna Covid-19 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag frumvarp um að leggja 1,25 prósenta skatt á Breta og bresk fyrirtæki. Þannig á að safna um 36 milljörðum punda (rúmum sex billjónum króna) á þremur árum sem verja á til heilbrigðis -og félagsmála. 7.9.2021 17:00
Skutu að hópi mótmælenda í Kabúl Sveitir Talibana leystu upp mótmæli í höfuðborginni Kabúl í dag og tóku marga blaðamenn höndum. Þetta eru talin fjölmennustu mótmælin sem fram hafa farið eftir að Talibanar tóku völdin í landinu í síðasta mánuði. 7.9.2021 14:50
Mæta þörfum danska vinnumarkaðarins með fleiri eldri borgurum og háskólastúdentum Stjórnvöld í Danmörku vonast til þess að fjölga fólki á vinnumarkaði um rúm tíu þúsund á næstu níu árum. Mette Fredriksen forsætisráðherra og Nicolai Wammen fjármálaráðherra kynntu aðgerðapakka þar að lútandi í morgun, undir yfirskriftinni „Danmörk getur gert meira 1“. 7.9.2021 11:28
Skaut fjölskyldu til bana: „Hann er illskan holdi klædd“ Maður sem skaut heila fjölskyldu til bana í Flórída um helgina hefur ekki sagt af hverju hann framdi ódæðið að öðru leyti en að guð hafi sagt honum að gera það. Bryan Riley er sakaður um að hafa myrt par, þriggja mánaða son þeirra og ömmu barnsins á sunnudagskvöldið. 7.9.2021 11:19
Ný lög um þungunarrof versta tegund kynbundinnar mismununar Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna á sviðið mannréttinda- og jafnréttismála fordæma harðlega ný lög um þungunarrof í Texas í Bandaríkjunum og segja þau meðal annars fela í sér verstu tegund kynbundinnar mismununar. 7.9.2021 10:50
Bjóða fram tvo eins Borisa til að stela atkvæðum frá þeim rétta Boris Vishnevsky, rússneskur frambjóðandi stjórnarandstöðuflokks, sakar stjórnina um kosningasvindl í komandi borgarstjórnarkosningum í Pétursborg. Þegar listi yfir frambjóðendur var birtur síðasta sunnudag mátti finna á honum tvo aðra sem báru sama nafn og Vishnevsky og voru skuggalega líkir honum. 7.9.2021 08:54
Vilja að sett verði sérstök lög um þjófnað á gæludýrum Stjórnvöld á Englandi skoða nú að setja sérstök lög um þjófnað á gæludýrum eftir aukinn fjölda þjófnaðarmála í kórónuveirufaraldrinum. Eins og stendur er farið með þjófnað á gæludýrum eins og þjófnað á hverri annarri eign. 7.9.2021 08:39
Smásteinum kastað í Trudeau Smásteinum var kastað í kanadíska forsætisráðherrann Justin Trudeau eftir heimsókn hans í brugghús í gær en hann stendur nú í miðri kosningabaráttu. Trudeau var á leið aftur í rútu sína þegar mótmælandur létu smásteina rigna yfir forsætisráðherrann. 7.9.2021 07:39
Segjast nú hafa landið allt á valdi sínu en andspyrnan gefst ekki upp Talíbanar hafa nú ítrekað þær fullyrðingar sínar að þeir hafi náð fullum yfirráðum yfir Panjshir-dal norður af Kabúl í Afganistan. 7.9.2021 06:37
Fjölmiðlamógúll mildar loftslagsafneitun Fjölmiðlar Ruperts Murdoch í heimalandinu Ástralíu er nú sagðir leggja drög að ritstjórnargreinum sem tala fyrir kolefnishlutleysi. Þeir hafa fram að þessu verið þekktir fyrir afneitun og að þyrla upp moðreyk um loftslagsmál. 6.9.2021 23:41