Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómari hafnaði samkomulaginu við feðgana Dómari í Bandaríkjunum hafnaði í gærkvöldi því að gert yrði samkomulag við feðgana Greg og Travis McMichael. Samkomulagið hefði falið í sér að þeir hefðu komist hjá réttarhöldum um það hvort það hafi verið hatursglæpur þegar þeir myrtu Ahmaud Arbery. 1.2.2022 09:26
Um 14 prósent vígðra innan kaþólsku kirkjunnar á Nýja-Sjálandi verið sökuð um ofbeldi Kaþólska kirkjan á Nýja-Sjálandi hefur greint frá því að 14 prósent vígðra innan kirkjunnar hafi verið sökuð um brot gegn börnum og fullorðnum frá árinu 1950. 1.2.2022 08:55
Deildu hart um ástandið á landamærum Rússlands og Úkraínu Rússar og Bandaríkjamenn deildu hart á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York í nótt. 1.2.2022 07:57
Goldberg vekur reiði með ummælum um Helförina Leikkonan og sjónvarpsþáttastjórnandinn Whoopi Goldberg hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum með því að staðhæfa í spjallþættinum The View á ABC að Helförin hefði ekki snúist um ólíka kynþætti. 1.2.2022 07:30
Veita fullvissu um að skýrslan verði birt í heild sinni Talsmenn Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, hafa nú fullvissað þingmenn Íhaldsflokksins um að skýrsla Sue Gray, sem rannsakaði partýstand á ríkisstjórninni og starfsmönnum Downingstrætis 10 á tímum kórónuveirunnar, verði birt í heild sinni að lokinni lögreglurannsókn. 1.2.2022 07:05
Danir kveðja grímuna, „kórónupassann“ og fjöldatakmarkanir Covid-19 er ekki lengur skilgreindur sem sjúkdómur sem ógnar dönsku samfélagi frá deginum í dag og hefur það í för með sér víðtækar afléttingar. 1.2.2022 06:19
„Það er eins og þið viljið að það komi til átaka“ Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í dag til að ræða ástandið á landamærum Úkraínu en óttast er að Rússar hyggist ráðast inn í landið. Fulltrúi Rússa segir stjórnmálamenn vesturlanda ímynda sér aðstæður með orðagjálfri og dylgjum. 31.1.2022 23:26
Handteknir fyrir að hafa skotið þýska lögreglumenn Tveir hafa verið handteknir grunaðir um að hafa skotið tvo lögreglumenn til bana í Þýskalandi í nótt. 31.1.2022 22:30
Trudeau ósáttur: Þúsundir mótmæltu sóttvarnaaðgerðum Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada gagnrýnir harðlega þá sem mótmæla nú sóttvarnaaðgerðum þar í landi. Fjöldi mótmælenda safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í Ottowa um helgina og aðrir hyggjast hvergi nærri hættir. 31.1.2022 20:23
Móðir Arbery segir samkomulag við morð-feðgana vera svik Saksóknari hefur boðið feðgunum Greg og Travis McMichael að gera samkomulag sem felst í því að þeir feðgar gætu komist hjá frekari réttarhöldum. 31.1.2022 18:57
Segir „erfitt að réttlæta“ samkvæmin og að leiðtogar hafi brugðist Sue Gray, sem hefur haldið utan um rannsókn á tíðum samkvæmum að Downingstræti tíu, þar sem heimili og skrifstofa Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er til húsa, segir erfitt að réttlæta samkvæmin. Það sé sérstaklega erfitt í ljósi þeirra sóttvarnarreglna og samkomutakmarkana sem voru þá í gildi. 31.1.2022 14:58
Kínverjar spýta í lófana í geimnum „Að kanna alheiminn, þróa geimiðnaðinn og gera Kína að geimveldi er eilífur draumur okkar.“ Á þessari tilvitnun í Xi Jinping, forseta Kína, ný hvítbók Geimvísindastofnunar Kína um helstu áætlanir hennar á næstu árum. 31.1.2022 13:45
Bráðabirgðaútgáfa Gray-skýrslunnar komin á borð Johnson Forsætisráðherra hefur fengið afhent afrit af bráðabirgðaniðurstöðum Sue Gray um partýhald í Downing-stræti þegar sóttvarnaaðgerðir stóðu yfir á Bretlandseyjum. Ráðherrann mun flytja yfirlýsingu um skýrsluna í þinginu seinna í dag. 31.1.2022 12:38
Sýknuð af því að hafa logið til um hópnauðgun Hæstiréttur Kýpur hefur fellt niður dóm yfir konu sem var dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa logið til um hópnauðgun sem hún sagði hafa átt sér stað á hóteli árið 2019. 31.1.2022 11:28
Einn sviptur valdi sínu sem lögga eftir skothríðina í Nasvhille Forsvarsmenn lögreglunnar í Nashville í Bandaríkjunum hafa svipt einn lögregluþjón valdi eftir atvik þar sem fjölmargir lögregluþjónar skutu mann sem vopnaður var dúkahníf. Umræddur lögregluþjónn skaut síðustu skotunum, eftir að aðrir lögregluþjónar hættu að skjóta. 31.1.2022 10:58
Óttast nýjar tilraunir með langdrægar eldflaugar Yfirvöld í Kína staðfestu í morgun að meðaldrægri eldflaug, sem gæti verið skotið að Gvam, hafi verið skotið á loft um helgina. Þetta var stærsta og langdrægasta eldflaug sem Kóreumenn gera tilraunir með um árabil. 31.1.2022 09:29
Íhuga að falla frá skyldubólusetningu heilbrigðisstarfsmanna Stjórnvöld á Englandi hafa það nú til skoðunar að falla frá skyldubólusetningum framlínustarfsmanna í heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt gildandi reglum ber öllum þeim sem falla í þann hóp að vera fullbólusettir 1. apríl næstkomandi. 31.1.2022 08:51
Tveir þýskir lögreglumenn skotnir til bana Tveir lögreglumenn voru skotnir til bana þar sem þeir voru að sinna umferðareftirliti í vesturhluta Þýskalands í nótt. Enn hefur enginn verið handtekinn vegna málsins. 31.1.2022 08:09
Einn stærsti einkaskóli Queensland setur samkynhneigða undir sama hatt og barnaníðinga Einn af stærstu einkareknu skólum Queensland í Ástralíu hefur sent foreldrum barna sem hyggjast sækja um í skólanum samninga, þar sem kveðið er á um að „samkynhneigðir gjörningar“ séu ósiðlegir og á pari við barna- og dýraníð. 31.1.2022 07:57
Rogan biður Spotify afsökunar og heitir bót og betrun Hlaðvarpsþáttastjórnandinn Joe Rogan hefur heitið því að reyna að fá fólk með ólík sjónarmið í þáttinn til sín og að gera sitt besta til að kynna sér þau mál sem hann tekur fyrir í þættinum. 31.1.2022 07:29
Portúgalskir Sósíalistar unnu óvæntan sigur Sósíalistaflokkurinn í Portúgal vann óvæntan sigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær. Þetta var í annað sinn í sögunni sem flokkurinn nær hreinum meirihluta á þingi. 31.1.2022 07:18
Öryggisráðið kemur saman vegna ástandsins í Úkraínu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hittist síðar í dag til að ræða ástandið í Úkraínu en óttast er að Rússar hyggist ráðast inn í landið. 31.1.2022 07:00
Íbúar á austurströndinni moka eftir gríðarlega ofankomu Íbúar á austurströnd Bandaríkjanna hamast nú við að moka snjó eftir að honum kyngdi niður um helgina. Ekki hefur snjóað svo mikið á svæðinu í um fjögur ár en verst var ástandið í borgum á borð við Boston og Atlantic City. 31.1.2022 06:54
Nokkrir látnir af völdum stormsins Að minnsta kosti sex hafa látið lífið í storminum Malik sem geysað hefur víðsvegar um Evrópu síðasta sólarhringinn. Þúsundir heimila hafa verið rafmagnslaus í Evrópu. 30.1.2022 22:17
Öldungadeild nálægt því að samþykkja „móður allra refsiaðgerða“ Öldungadeildin í Bandaríkjunum er nálægt því að samþykkja harðar aðgerðir gegn Rússum vegna spennu á landamærum Rússlands og Úkraínu. Öldungadeildarþingmenn telja að Vladimir Pútín Rússlandsforseti muni ekki hætta aðgerðum á landamærum, nema vesturveldin svari. 30.1.2022 20:22
Í aðdraganda Vetrarólympíuleika: Mesti fjöldi smitaðra í átján mánuði Mesti fjöldi smitaðra í eitt og hálf ár greindist í Peking, höfuðborg Kína, í gær. Aðeins fimm dagar eru í Vetrarólympíuleikana sem haldnir verða í borginni. 30.1.2022 18:51
Eldflaugaskot Norður-Kóreu það stærsta síðan 2017 Norður-Kóreumenn halda áfram eldflaugatilraunum og skutu í gær stærsta eldflaugaskoti sínu síðan 2017. Skotið er það sjöunda í þessum mánuði. 30.1.2022 16:11
Níu létust eftir ofsaakstur í Las Vegas 9 manns létust og nokkrir slösuðust í bílslysi í Las Vegas í gær. Ökumaðurinn, sem lést sjálfur í árekstrinum, keyrði gegn rauðu ljósi og er talinn hafa ekið langt yfir löglegum hámarkshraða. 30.1.2022 14:30
Trump ætlar að náða óeirðaseggina ef hann vinnur Donald Trump segist ætla að náða þá sem voru dæmdir vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6.janúar í fyrra ef hann verður forseti á ný. Hann hélt fjöldafund í Texas í gær þar sem hann gældi við mögulegt forsetaframboð. 30.1.2022 13:59
Óljóst hve mikil alvara er á bakvið hótanir um viðskiptaþvinganir Bretar íhuga að tvöfalda herafla sinn í Austur-Evrópu vegna átakanna við landamæri Úkraínu. Þeir segja að öllum tilraunum Rússa til innrásar verði mætt með hörðum viðskiptaþvingunum. 30.1.2022 12:03
Mattarella endurkjörinn sem forseti Ítalíu Sergio Mattarella var endurkjörinn forseti Ítalíu af ítalska þinginu í gær. Forsetakosningar á þinginu hafa staðið yfir svo vikum skiptir og þingflokkarnir ekki komist að samkomulagi um næsta forseta fyrr en nú. 30.1.2022 09:39
Tugir dæmdir til dauða fyrir morðið á sérfræðingum SÞ í Kongó Um fimmtíu manns voru dæmdir til dauða í Austur-Kongó í gær í tengslum við morðið á tveimur sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna árið 2017. 30.1.2022 08:44
Níu ára drengur fórst í Englandi vegna veðurofsa Níu ára gamall drengur og sextug kona létust þegar tré féll á þau vegna stormsins Malik, sem ríður yfir Bretlandseyjar. Þúsundir heimila hafa verið rafmagnslaus í Skotlandi og Englandi vegna stormsins. 30.1.2022 07:59
Íslendingur í Boston óhræddur við hríðarbyl Snjó kyngir nú niður í miklum hríðarbyl sem nú gengur yfir austurströnd Bandaríkjanna í fyrsta sinn í fjögur ár. Neyðarástandi hefur meðal annars verið lýst yfir en Íslendingur sem búsettur er í Boston lætur ekki mikið á sig fá. 29.1.2022 22:52
Fjalla ítarlega um mál Nöru sem beit tungu eiginmannsins í sundur Breska blaðið The Guardian fjallar ítarlega um mál Nöru Walker sem kærði íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Mál hennar er nú til meðferðar en hún var sakfelld hér á landi fyrir að hafa bitið hluta úr tungu eiginmanns síns. 29.1.2022 20:17
Á hælum raðmorðingja sem vildi teikna fórnarlömbin Lögreglan í San Francisco telur sig aldrei hafa verið nær því að upplýsa um hinn svokallaða Doodler morðingja sem grunaður er um hafa myrt sex samkynhneigða karlmenn í borginni á áttunda áratugnum. 29.1.2022 16:09
Tólf þúsund olíutunnur láku úr olíuhreinsunarstöð í Perú Olíuleki í Perú er sagður mun umfangsmeiri en upprunalega var gert ráð fyrir. Lekinn er sagður náttúruharmleikur en milljónir sjávardýra og fugla hafa dáið frá því að lekinn varð. 29.1.2022 11:13
Blóðsöfnun rússneska hersins eykur áhyggjur Bandaríkjanna Ótti Bandaríkjamanna og annarra NATO-ríkja um innrás Rússa í Úkraínu eykst með hverjum deginum. Joe Biden forseti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að bandarískir hermenn verði fluttir til Austur-Evrópu á næstu dögum. 29.1.2022 10:30
Lafhræddir Demókratar vilja drífa sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill tilnefna nýjan hæstaréttardómara eins fljótt og auðið er og koma tilnefningu hennar fljótt í gegnum öldungadeildina. Þar á bæ hafa Repúblikanar þegar gefið í skyn að þeir vilji draga ferlið á langinn. 29.1.2022 07:01
Bandaríkjamenn reyna að bjarga herþotu úr sjó Bandaríkjamenn leita nú ráða til að bjarga F-35C herþotu úr Suður-Kínahafi eftir óhapp við lendingu á flugmóðurskipi. Flugmanninum tókst að skjóta sér út úr vélinni áður en hún hrapaði í hafið. 28.1.2022 23:55
Vann rúman einn og hálfan milljarð í Eurojackpot Heppinn Slóveni fékk fyrsta vinning í Eurojackpot og hlýtur tæpan 1,6 milljarð í sinn hlut. Tveir Þjóðverjar skipta með sér öðrum vinningi og fá þeir rúmar 131 milljónir króna hver. 28.1.2022 23:01
Brú hrundi skömmu fyrir heimsókn Bandaríkjaforseta Tíu eru slasaðir eftir að brú hrundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í dag. Enginn er talinn vera í lífshættu. 28.1.2022 20:03
Dómur Joe Exotic styttur í dag Bandarískur dómari í Oklahoma-borg mun í dag ákveða nýja refsingu fyrir Joseph Maldonado -Passage, sem er betur þekktur sem Joe Exotic eða „Tígrisdýrakonungurinn“. Það er eftir að áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að stytta ætti dóm sem hann hlaut fyrir að reyna að ráða leigumorðingja til að myrða óvin sinn. 28.1.2022 13:19
Minnst níu löggur skutu mann með dúkahníf Minnst níu lögregluþjónar skutu mann til bana í Nashville í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn var vopnaður dúkahníf og höfðu lögregluþjónar verið að ræða við hann í um hálftíma þegar þeir skutu hann til bana. 28.1.2022 11:32
Lést eftir að hafa verið hafnað um þungunarrof eftir að fóstrin dóu Þúsundir mótmæltu á götum pólskra borga í gærkvöld eftir að 37 ára gömul kona lést í kjölfar þess að hafa verið hafnað um þungunarrof. Eitt ár er liðið síðan einar ströngustu þungunarrofsreglur í Evrópu voru innleiddar í Póllandi. 28.1.2022 10:33