Reiknað með að May standist vantraust
Greidd verða atkvæði um vantraust gegn Theresu May forsætisráðherra Bretlands núna um klukkan sjö eftir að útgöngusáttmálinn við Evrópusambandið var kolfelldur í breska þinginu í gær. Þrátt fyrir sögulegt tap fyrir forsætisráðherra er fastlega reiknað með því að May standi af sér vantraustið