Þrír af hverjum fjórum læknum opnir fyrir einkarekinni heilsugæslu
Þrír af hverjum fjórum læknum eru opnir fyrir einkarekinni heilsugæslu. Í nýrri könnun kemur fram að tæplega helmingur lækna telur að ekki einungis ríkið eigi að reka sjúkrahús. Formaður Læknafélagsins segir stjórnvöld hafa vanmetið stöðuna í heilbrigðismálum og landlæknir segir álagið á læknum meira en nokkur átti von á.