Saknar mest félaganna úr Sundhöll Selfoss
Selfyssingar eru orðnir mjög óþreyjufullir eftir að útilaugin og heitu pottarnir í Sundhöll Selfoss opni aftur en þar hefur verið lokað í að verða mánuð vegna skorts á heitu vatni. Verði áfram frosthörkur eða einhverjar bilanir komi upp gæti þurft að loka íþróttahúsum og skólum líka í bæjarfélaginu.