Lofar að óeirðaseggir verði sóttir til saka
Utanríkisráðherra Hollands lofar að Hollendingarnir sextíu, sem voru handteknir á föstudag grunaðir um að ráðast á stuðningsmenn ísraelska fótboltaliðsins Maccabi Tel Avív, verði sóttir til saka. Eins verði viðbrögð hollenskra yfirvalda rannsökuð. Þetta sagði hann að loknum fundi með utanríkisráðherra Ísrael í dag.