Stjórnlausir skógareldar nærri Aþenu
Þykkur reykur liggur að hluta yfir Aþenu í Grikklandi vegna skógarelda sem loga nærri borginni. Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín og skóli í bænum Varnas, sem er um þrjátíu kílómetrum fyrir utan Aþenu, brann til grunna í dag.