Filippa fundin á lífi

Filippa, þrettán ára dönsk stúlka sem hvarf í smábænum Kirkerup á Sjálandi í gær, fannst á lífi í dag. 32 ára karlmaður sem handtekinn var í tengslum við málið verður leiddur fyrir dómara á morgun. Frá þessu greindi lögregla á blaðamannafundi í dag og sagði Filippu jafnframt með meðvitund. Mikil leynd hvíldi yfir aðgerðum lögreglu við hús mannsins þar sem Filippa fannst - en farsælar vendingar urðu í málinu rétt fyrir blaðamannafundinn síðdegis.

119
01:15

Vinsælt í flokknum Fréttir