Báðir sammála um að breyta þurfi skattkerfi
Tveir hyggjast bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Báðir frambjóðendur eru sammála um að harkalega hafi verið ráðist að lægst launuðu hópum samfélagsins og endurskoða þurfi skattkerfið. Von er á hörðum vetri þegar litið er til kjaramála en fjölmargir samningar losna um áramótin.