Verjandi furðar sig á gæsluvarðhaldi
Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Þ. Árnasonar, furðar sig á gæsluvarðhaldi yfir honum í ljósi þess hversu langt er liðið frá meintum brotum og hruni bankans. Sigurjón var leiddur fyrir dómara laust fyrir klukkan tvö í dag og úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald.