

Besta deild kvenna
Leikirnir

Besta upphitunin: Segir mömmu sína ekki hafa þorað því að reyna að fá hana yfir í Val
Helena Ólafsdóttir fékk til sín góða gesti í upphitunþætti sínum fyrir 23. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Jóhann Kristinn: „Það er ekki oft sem maður tapar svona rosalega ósanngjarnt“
Stjarnan vann 3-1 sigur á Þór/KA norður á Akureyri í fjórðu umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í dag. Heimakonur komust yfir í fyrri hálfleik en gestirnir skoruðu þrjú mörk í þeim seinni þar sem varamaðurinn Hulda Hrund Arnarsdóttir skoraði tvö mörk. Stjarnan á enn möguleika á öðru sæti eftir sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik 3 - FH 1 | 2. sætið innan seilingar
Breiðablik vann sannfærandi 3-1 sigur á FH í Bestu deild kvenna í dag. Annað sætið er innan seilingar fyrir Blika en úrslitin ráðast þó ekki fyrr en í lokaumferðinni.

„Skiptir okkur svo ótrúlega miklu máli“
Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, var að vonum ánægð eftir sigur sín liðs gegn FH í Bestu deild kvenna í dag þar sem liðið fór langleiðina með að tryggja sér 2. sætið í deildinni.

Leik lokið: Þór/KA 1 - 3 Stjarnan | Stjörnukonur með þrjú mörk í seinni hálfleik
Stjarnan gerði góða ferð norður í land í dag og bar 3-1 sigur úr býtum gegn Þór/KA í fjórðu og næstsíðustu umferð í efri hluta Bestu deildar kvenna. Þór/KA komst yfir seint í fyrri hálfleik en Stjarnan skoraði þrjú mörk í þeim seinni þar sem varamaðurinn Hulda Hrund Arnarsdóttir stal senunni með tvö mörk

Besta upphitunin: Íslandsmeisturum boðið í spjall
Úrslitin eru ráðin í Bestu deild kvenna þetta árið en þó eru enn tvær umferðir eftir í efri hlutanum. Helena Ólafsdóttir hitaði upp fyrir umferð morgundagsins í Bestu upphituninni og fékk til sín góða gesti að vanda.

Fékk bestu gjöf ævi sinnar eftir óhugnanlegt atvik í Víkinni
Knattspyrnukonan unga María Sól Jósepsdóttir, sem fékk flogakast á leik Víkings og KR á dögunum, er á batavegi. Hún átti þá draumakvöld með leikmönnum liðsins í kjölfarið.

Besti þátturinn: Veigar Páll rifjar upp gamla takta og setur boltann í vinkilinn
Í sjötta þætti af Bestu þættinum mættust lið Stjörnunnar og Selfoss. Besti þátturinn gengur út á að para saman leikmenn, stuðningsmenn eða aðra velunnara íslenskra félagsliða gegn hvorum öðrum í kostulegri keppni.

Íslandsmeistaraþjálfarinn framlengir til 2026
Pétur Pétursson hefur framlengt samning sinn um að þjálfa áfram lið Vals í Bestu deild kvenna.

Allir titlarnir í sögu úrslitakeppninnar hafa unnist í sófanum
Víkingar urðu í gær þriðja liðið á síðustu fjórum árum sem verður Íslandsmeistari í sófanum í úrvalsdeild karla í fótbolta.

Sjáðu mörkin úr langþráðum Blikasigri og góðri heimsókn Akureyringa í Laugardalinn
Eftir fimm leiki í röð án sigurs vann Breiðablik Stjörnuna, 2-0, í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í gær.

„Höfðum það í höndum okkar að ná öðru sætinu en réðum ekki við pressuna“
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var svekktur á svip 0-2 tap á heimavelli gegn Þór/KA. Þróttur missti þar af gullnu tækifæri til að koma sér upp fyrir Breiðablik og blanda sér í baráttuna um Evrópusætið.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 3-1 | Valur aftur á sigurbraut
Valskonur komust aftur á sigurbraut eftir tap í síðasta leik gegn Stjörnunni. Staðan var jöfn í hálfleik en tvær kollspyrnur frá Örnu Sif og Laura Frank gerðu útslagið í seinni hálfleik. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Pétur: FH spilar fótbolta sem mér finnst skemmtilegt að horfa á
Valur komst aftur á sigurbraut þegar liðið vann 3-1 sigur gegn FH. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 2-0 | Langþráður sigur Blika kemur liðinu upp í annað sætið
Breiðablik lagði Stjörnuna að velli með tveimur mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í Bestu deild kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í dag.


Sif Atladóttir leggur skóna á hilluna
Landsliðskonan fyrrverandi Sif Atladóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril. Hún hefur undanfarin ár spilað með Selfossi í Bestu deild kvenna en liðið er fallið niður í Lengjudeildina.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - ÍBV 7-2 | Stólarnir felldu ÍBV með risasigri
Það var mikið undir þegar Tindastóll og ÍBV mættust í Bestu deild kvenna í dag. Tindastóll fyrir leikinn í 7 sæti með 23 stig og ÍBV í 8 sæti með 21 stig sem og Keflavík sem átti leik á sama tíma.

Keflavík tryggði sætið með sigri gegn föllnum Selfyssingum
Keflavík tryggði sér áframhaldandi veru í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu með 1-0 sigri gegn föllnum Selfyssingum.

Besta upphitunin: Sigur eða fall hjá Keflvíkingum
Fallbaráttan verður í algleymingi á morgun þegar lokaumferð úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildar kvenna fer fram. Þrjú lið eru í fallhættu.

„Eitthvað sem má alveg tala meira um“
Valur varð í fyrrakvöld Íslandsmeistari kvenna í fótbolta þriðja árið í röð. Tvöföld gleði er fyrir Elísu Viðarsdóttur, fyrirliða liðsins, sem fagnar ekki aðeins titli heldur á von á sínu öðru barni. Þá hvarflar ekki að henni að hætta knattspyrnuiðkun á næstunni, sem hún þakkar brautryðjendum sem á undan komu.

„Gríðarlega gott að taka þrjú stig af Val“
Stjarnan sótti þrjú stig gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum Vals fyrr í kvöld. Leiknum leik með 1-0 sigri í jöfnum og spennandi leik. Stjarnan fer með þessum sigri upp í annað sæti deildarinnar.


Ekki sami sjarmi en stoltið mikið
Arna Sif Ásgrímsdóttir, varnarmaður Vals, kveðst stolt af árangri liðsins sem varð Íslandsmeistari kvenna í fótbolta þriðja mótið í röð í gærkvöld. Titillinn var vís eftir tap Breiðabliks í gær og segir hún tilfinninguna aðeins frábrugðna, að verða meistarar uppi í sófa.

Skoraði sigurmarkið á Pæjumótinu í fyrra en lék í Bestu deildinni í gær
Hin þrettán ára Bríet Fjóla Bjarnadóttir lék sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna þegar Þór/KA sigraði Breiðablik, 3-2, í gær.

Sjáðu sigurmark Þór/KA í uppbótatíma sem tryggði Val titilinn
Þór/KA vann í gær 3-2 dramatískan sigur á lánlausu liði Breiðabliks, sem sýndi þó karakter í leiknum, í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta. Sigurmark Þór/KA kom í uppbótatíma seinni hálfleiks en úrslit leiksins sáu til þess að Valur hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, þriðja tímabilið í röð.

„Þetta er úrslitabransi“
Gunnleifur Gunnleifsson, þjálfari Breiðabliks, var vonsvikinn eftir 3-2 tap gegn Þór/KA fyrir norðan í dag þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Þór/KA komst í 2-0 snemma í seinni hálfleik en Blikar náðu að jafna metin seint í seinni hálfleik með tveimur mörkum frá Öglu Maríu Albertsdóttur áður en Una Móeiður Hlynsdóttir skoraði sigurmarkið.

Umfjöllun: Þór/KA 3 - 2 Breiðablik | Blikar töpuðu og Valur er Íslandsmeistari
Þór/KA vann 3-2 sigur á Breiðabliki á Akureyri í dag með sigurmarki í uppbótartíma eftir að hafa komist 2-0 yfir. Með sigrinum lyftir Þór/KA sér upp fyrir FH í 5. sæti deildarinnar. Breiðablik er áfram í 2. sæti og Valskonur eru orðnar Íslandsmeistarar í kjölfar þessara úrslita.

FH-ingar rændir jöfnunarmarki á heimavelli: „Ég þoli ekki svona“
Mark var dæmt af FH í uppbótartíma seinni hálfleiks í leik liðsins í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta gegn Þrótti Reykjavík í Kaplakrika í gær. Markið var skorað í stöðunni 3-2 fyrir Þrótti R. en myndbandsupptökur sýna að ekki var um rangstöðu að ræða.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Þróttur 2-3 | Þróttur heldur áfram að setja pressu á Evrópusætið
Þróttur hafði betur gegn FH 2-3 í hörkuleik. Þróttur jafnar Breiðablik að stigum og baráttan um Evrópusæti er orðin mikil.