

Forsetakosningar í Bandaríkjunum fóru fram 5. nóvember 2024 þar sem Repúblikaninn Donald Trump hafði betur gegn Demókratanum Kamölu Harris.
*Skv. New York Times
Joe Biden Bandaríkjaforseti segist ætla að klára kjörtímabil sitt. Hins vegar væri komin tími til að ný og yngri kynslóð tæki við keflinu af honum.
Elon Musk, einn ríkasti maður heims, hefur neitað fregnum þess efnis að hann hyggist gefa 45 milljónir dala mánaðarlega til forsetaframboðs Donald Trump.
Myndskeið er í dreifingu á netinu sem sýnir J.D. Vance, varaforsetaefni Donald Trump, gera lítið úr Kamölu Harris og fleiri Demókrötum vegna barnleysis.
Kamala Harris mælist með tveggja prósenta forskot á Donald Trump í skoðanakönnun sem framkvæmd var eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann myndi draga framboð sitt til forseta til baka.
Framboð Donald Trump hefur skilað inn kvörtun til alríkiskjörnefndarinnar sem hefur umsjón með forsetakosningum í Bandaríkjunum. Ástæðan er yfirfærsla fjármuna í kosningasjóðum Joe Biden til Kamölu Harris.
Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ávarpa Bandaríkjamenn frá Hvíta húsinu annað kvöld klukkan átta að staðartíma, á miðnætti á íslenskum. Forsetinn hefur ekki sést síðan greint var frá því 17. júlí að hann hefði greinst með Covid-19.
Andy Beshear, Roy Cooper, Mark Kelly, Wes Moore, JB Pritzker, Josh Shapiro, Gretchen Whitmer og Pete Buttigieg.
Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna verður forsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningunum í nóvember að öllu óbreyttu en hún virðist hafa tryggt sér stuðning yfir 1.976 kjörmanna, sem er sá fjöldi sem þarf til að tryggja sér útnefninguna.
Sagan mun fara mjúkum höndum um Joe Biden og ákvörðun hans um að hætta við að sækjast eftir endurkjöri, að mati sérfræðinga um bandarísk stjórnmál. Kamala Harris varaforseti er langlíklegust til að taka við keflinu af forsetanum, en hún mun eiga á brattann að sækja gegn Trump.
Margrét Hrafnsdóttir, mikil áhugakona um bandarísk stjórnmál, þekkir Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna og líklegt forsetaefni Demókrataflokksins. Hún hefur mikla trú á sinni konu í baráttunni við Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og frambjóðanda Repúblikana.
Eins og sakir standa eru allar líkur á að Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, verði forsetaefni Demókrata í forsetakosningunum í nóvember. Harris nýtur mikils en þó ekki afdráttarlaus stuðnings og þá mæla praktískar ástæður með því að hún taki við keflinu.
Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og varaþingmaður er sannfærður um að Kamala Harris varaforsetaefni Demókrataflokksins taki við sem forsetaefni flokksins nú þegar Joe Biden hefur dregið sig úr leik.
Margar stórstjörnur í Hollywood hafa stigið fram og lofað Joe Biden Bandaríkjaforseta fyrir að hafa fallið frá því að sækjast eftir endurkjöri en á sama tíma kalla Repúblikanar eftir því að hann segi tafarlaust af sér.
„Með þessu óeigingjarna og þjóðrækna verki gerir Biden forseti það sem hann hefur ætíð gert á ævi tileinkaðri þjónustu við aðra: Að setja bandarísku þjóðina og landið okkar ofar öllu öðru.“
Stjórnmálafræðingur segir þá ákvörðun Bidens Bandaríkjaforseta að draga framboð sitt til baka hafa endurstillt baráráttu demókrata og repúblikana um Hvíta húsið í nóvember. Ekki eru fordæmi fyrir því að forsetaefni stigi til hliðar svo seint í baráttunni.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og forsetaefni Demókrata hyggst draga framboð sitt til endurkjörs til baka. Vaxandi fjöldi flokksmanna hefur á síðustu vikum kallað eftir því að Biden stígi til hliðar. Hann vill að Kamala Harris varaforseti taki við keflinu en um þrír og hálfur mánuður eru nú til kosninga.
Eins og sakir standa á Joe Biden ekki möguleika á að sigra Donald Trump í bandarísku forsetakosningunum, að mati stjórnmálafræðings. Trump hélt sinn fyrsta kosningafund frá banatilræðinu við hann í gær, og þakkaði guðlegri forsjá fyrir að vera á lífi.
Í gær hélt Donald Trump fyrsta kosningafund sinn eftir að honum var ráðið banatilræði á kosningafundi í Pennsylvaníuríki á laugardaginn síðasta. Einn lést og tveir særðust ásamt því að eitt skotið hæfði Trump í hægra eyrað og særði hann lítillega. Fundurinn var haldinn í Michiganríki.
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að framboð sitt til forseta hafi breytt sýn hans á alla frambjóðendur. Hann telji sig skilja betur það sem þeir gangi í gegnum.
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var fagnað eins og rokkstjörnu þegar hann steig á svið á landsþingi Repúblikanaflokksins í gær. Hann sagði guðlega forsjá hafa bjargað sér frá banatilræði um helgina og lofaði hugrekki stuðningsmanna sinna.
Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir það gæti orðið erfitt að vinna með Donald Trump, verði hann endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, en hann óttist ekki erfiði. Hann kveðst tilbúinn til að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum.
Landsfundur Repúblikana stendur nú yfir í Milwaukee í Wisconsin, og mikil spenna er í loftinu fyrir ræðu Donalds Trumps sem hann skrifaði upp á nýtt eftir banatilræðið. Búist er við því að ræðan hefjist um klukkan tvö í nótt á íslenskum tíma.
Greint var frá því fyrr í dag að Thomas Matthew Crooks, maðurinn sem reyndi að skjóta Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta um síðustu helgi hefði skrifað færslu sem virðist, eftir á að hyggja, gefa árásina til kynna. Núna er hins vegar talið að færslan sé fölsuð.
Landsþing Repúblikanaflokksins fer fram þessa dagana í Milwaukee í Bandaríkjunum. Donald Trump var formlega útnefndur forsetaefni flokksins og hann tilkynnti þá um varaforsetaefni sitt, hann J.D. Vance.
Forysta Demókrataflokksins virðist vera farin að setja þrýsting á Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stíga til hliðar í forsetakosningunum og hleypa öðrum að.
Athygli heimsbyggðarinnar beindist að Bandaríkjunum um helgina þegar fréttir bárust af skotárás í Pennsylvaníuríki þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaframbjóðandi, var skotmarkið. Trump var skotinn í eyrað en slapp nokkuð vel, en ekki mátti miklu muna á því að hann hefði hlotið bana af.
Árásarmaðurinn sem særði Donald Trump og myrti áhorfanda á kosningafundi í Pannsylvaníu á laugardag datt inn á radar lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) um klukkustund áður en hann lét til skarar skríða.
„Ég heiti hverjum Bandaríkjamanni því, hvaða flokk sem þú kýst, að gefa allt sem ég hef. Að þjóna ykkur og gera þetta land að stað þar sem þeir draumar sem þú átt fyrir sjálfan þig, fjölskyldu þína og landið þitt geta orðið að raunveruleika.“
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur greinst með Covid-19. Samkvæmt upplýsingum frá hvíta húsinu finnur hann fyrir vægum einkennum.
Erna Magnúsdóttir dósent í læknadeild Háskóla Íslands skrifaði athugasemd við færslu á Facebook þar sem hún sagðist hafa óskað þess að skotmaðurinn sem gerði banatilræði gegn Donaldi Trump forsetaframbjóðanda hefði hæft hann. Erna segist standa við orð sín en að auðvelt sé að taka þau úr samhengi.