Njarðvíkingar semja við Argentínumann í körfunni Deildarmeistarar Njarðvíkur hafa gengið frá samningi við nýjan leikmann fyrir komandi tímabil í Subway deild karla í körfubolta. Körfubolti 28. júlí 2022 15:31
Bjóða Rússum skipti á körfuboltakonunni og Kaupmanni dauðans Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að fá bandarísku körfuboltakonuna Brittney Griner heim og nú berast fréttir um að bandarísk yfirvöld hafi nú gert Rússum tilboð. Körfubolti 28. júlí 2022 07:30
Selur hringana sem hann vann með Kobe og Shaq Fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta ætlar að safna fyrir Úkraínu með sérstökum hætti. Körfubolti 27. júlí 2022 12:31
Eftirmaður Baldurs fundinn Tindastóll, silfurliðs Subway-deildar karla á síðasta tímabili, hefur ráðið nýjan þjálfara. Sá heitir Vladimir Anzulovic og er 44 ára Króati. Körfubolti 27. júlí 2022 09:37
Hildur Björg semur við Namur í Belgíu Hildur Björg Kjartansdóttir, landsliðskona í körfubolta, hefur samið við belgíska liðið Basket Namur Capitale um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Körfubolti 26. júlí 2022 11:31
Kristbjörn Albertsson er látinn Kristbjörn Albertsson, fyrrum körfuboltamaður, körfuboltadómari og formaður KKÍ, er látinn. Kristbjörn lést eftir baráttu við krabbamein þann 18. júlí síðastliðinn en Kristbjörn hefði orðið 78 ára þann 6. ágúst næstkomandi. Körfubolti 26. júlí 2022 09:31
Blikar tilkynna liðsstyrk | Eiga bara eftir að sækja Kana Breiðablik hefur bætt við nýjum leikmanni í leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Subway-deild karla. Liðið sótti Clayton Riggs Ladine frá Hraunamönnum í næst efstu deild. Körfubolti 25. júlí 2022 19:31
Íslendingar eiga tvo fulltrúa í úrvalsliði EM Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri á tvo fulltrúa í úrvalsliði B-deildar Evrópumótsins sem lauk í Tbilisi í Georgíu í gær. Körfubolti 25. júlí 2022 08:01
Íslenska liðið þarf að sætta sig við silfur Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri laut í lægra haldi 81-67 þegar liðið mætti Serbíu í úrslitaleik B-deildar Evrópumótsins í Tblisi í Georgíu í dag. Körfubolti 24. júlí 2022 19:57
Ísland tryggði sér sæti í A-deild Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri er komið í úrslitaleik B-deildar Evrópumótsins en íslenska liðið tryggði sér farseðilinn þangað með sigri gegn Finnlandi í kvöld. Körfubolti 23. júlí 2022 19:03
A-deildarsæti og úrslitaleikur undir hjá strákunum U20 ára landslið karla í körfubolta komst í gær í undanúrslit á Evrópumóti B-deildar í Georgíu eftir sigur á Svíum. Finnar bíða íslenska liðsins í undanúrslitunum þar sem mikið er undir. Körfubolti 23. júlí 2022 13:01
Þórsarar fá reynslumikinn Spánverja til Þorlákshafnar Þór Þorlákshöfn hefur fengið spænska bakvörðinn Josep Pérez til liðs við sig fyrir komandi átök í Subway-deildinni og Evrópubikarkeppni karla í körfubolta. Körfubolti 22. júlí 2022 15:16
Bertone framlengir við Íslandsmeistarana Argentínski körfuboltamaðurinn Pablo Bertone hefur framlengt samningi sínum við Íslandsmeistara Vals. Bertone verður því áfram í herbúðum Valsmanna næstu tvö árin í það minnsta. Körfubolti 21. júlí 2022 16:31
Harden hjá 76ers næstu tvö árin: „Eina sem skiptir mig máli er að keppa um titilinn“ James Harden hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við NBA-liðið Philadelphia 76ers. Þessi 32 ára skotbakvörður hóf síðasta tímabil með Brooklyn Nets en færði sig svo yfir til Philadelphia á þessu ári. Körfubolti 21. júlí 2022 07:35
Ákærður fyrir að ráðast á eiginkonu sína fyrir framan börnin Körfuboltamaðurinn Miles Bridges, leikmaður Charlotte Hornets, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á eiginkonu sína fyrir framan börn þeirra tvö í síðasta mánuði. Körfubolti 20. júlí 2022 16:00
Sá mikilvægasti framlengir við Íslandsmeistarana Kári Jónsson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Subway-deildar karla á seinasta tímabili, hefur framlengt samningi sínum við Íslandsmeistara Vals. Körfubolti 20. júlí 2022 14:31
Nýliðarnir fá reynslubolta frá Spáni Nýliðar Hattar hafa samið við leikstjórnandan Obie Trotter um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Subway-deild karla í körfubolta. Trotter kemur frá HLA Alicante á Spáni. Körfubolti 19. júlí 2022 13:45
Stjarnan semur við Adama Darboe „Það verða ekki bara danskir dagar í Hagkaup næsta vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar sem hefur öflugan liðsstyrk fyrir næsta tímabil frá KR-ingum í Dananum Adama Darboe. Körfubolti 16. júlí 2022 07:02
Þór Þorlákshöfn sækir liðsstyrk Þór Þorlákshöfn hefur samið við Spánverjann Pablo Hernandez og kemur hann til að leika með liðinu á næsta leiktímabili. Körfubolti 15. júlí 2022 19:30
Þór Þorlákshöfn mætir kýpversku meisturunum í Evrópubikarnum Þór Þorlákshöfn mætir kýpversku meisturunum Petrolina AEK í fyrstu umferð undankeppni Evrópubikarsins í körfubolta, en dregið var í dag. Körfubolti 14. júlí 2022 15:30
Ægir Þór semur við HLA Alicante Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur fundið sér nýtt lið á Spáni og hefur samið við HLA Alicante í LEB Oro deildinni. Ægir skrifaði undir eins árs samning við liðið. Körfubolti 13. júlí 2022 21:30
Utah Jazz tilbúið að hlusta á tilboð í Donovan Mitchell Kevin Durant setti alla NBA-deildina í körfubolta í uppnám þegar hann tilkynnti að hann vildi yfirgefa Brooklyn Nets fyrir komandi leiktíð. Nú er nær öll lið deildarinnar til í að íhuga að skipta sínum bestu leikmönnum í von um að fá Durant í sínar raðir, Utah Jazz þar á meðal. Körfubolti 13. júlí 2022 08:31
Hættur með Tindastól og heldur til Þýskalands Baldur Þór Ragnarsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari Tindastóls í Subway deild karla í körfubolta til að taka við starfi í Þýskalandi. Körfubolti 12. júlí 2022 19:47
Þór Þorlákshöfn fær sænskan bakvörð Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar hefur samið við sænska bakvörðinn Adam Ronnqvist um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Subway-deild karla. Körfubolti 11. júlí 2022 18:00
Isabella framlagshæst í sigri Isabella Ósk Sigurðardóttir átti fínan leik þegar lið hennar South Adelaide Panthers vann 26 stiga sigur á Central Districts Lions, 78-52, í NBL One Central deildinni í Ástralíu. Körfubolti 9. júlí 2022 16:00
Þór Þorlákshöfn verður með í Evrópukeppni í vetur Þór Þorlákshöfn mun taka þátt í Evrópubikarkeppni karla í körfubolta, FIBA Europe Cup, á næstu leiktíð. Hefur Körfuknattleikssamband Evrópu staðfest þátttökulið keppninnar. Fjögur efstu lið Íslandsmótsins fengu boð um þátttöku en Þórsarar voru eina liðið sem tók boðinu. Körfubolti 8. júlí 2022 16:37
Zion ætlar ekki að bregðast neinum Zion Williamson, leikmaður New Orleans Pelicans, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann kom fyrst inn í NBA deildina. Hann hefur glímt við ýmis meiðsli en virðist nú vera á batavegi og treystir Pelicans honum nægilega mikið til að gefa honum fimm ára samning upp á nærri 200 milljónir Bandaríkjadala. Körfubolti 7. júlí 2022 16:01
Griner játar sök og gæti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm Bandaríska körfuboltastjarnan Brittney Griner játaði sök þegar hún mætti fyrir dóm í Rússlandi í dag. Griner var handtekin í febrúar á þessu ári með hassolíu í rafrettu sinni. Körfubolti 7. júlí 2022 14:37
Sanja Orozovic til liðs við Breiðablik á ný Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við Sönju Orozovic um að leika með liðinu á komandi tímabili í Subway-deild kvenna í körfubolta. Körfubolti 6. júlí 2022 12:31
Fjögur möguleg skipti fyrir Durant sem Brooklyn Nets gæti samþykkt Það verður frekar erfitt að átta sig á landslaginu í NBA-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð fyrr en við vitum hvar hinn frábæri Kevin Durant muni spila. Kappinn hefur beðið um að komast frá Brooklyn Nets þrátt fyrir að eiga fjögur ár eftir af samningi sínum. Körfubolti 5. júlí 2022 15:01