
Skipulag

Nýr miðbær á Egilsstöðum muni laða fólk að
Uppbygging á nýjum miðbæ á Egilsstöðum er hafin. Sveitarstjóri Múlaþings segir að á næstu þremur árum verði hægt að sjá móta fyrir 160 nýjum íbúðum í bland við græn svæði í hjarta bæjarins.

„Hér verður ekki flugvöllur og hér verða ekki blokkir“
Bessastaðanes var formlega friðlýst í morgun eftir að forsetaembættið og bæjarstjórn Garðabæjar óskuðu eftir því. Forseti Íslands fagnar því að sjónarmið náttúruverndar og útivistar hafi ráðið för við ákvörðunartökuna. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir friðlýsinguna þýðingarmikla fyrir líffræðilegan fjölbreytileika.

Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða
Reykjavíkurborg hefur rift samningi sínum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík. Reykjavíkurborg ber fyrir sig vanefndir vegna tafa en Vesturbugt ehf. telur riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefur ekki enn verið samþykkt.

Telur hækkun bílastæðagjalda líklega brot á jafnræðissjónarmiðum
Sigríður Á. Andersen lögmaður, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir hækkun bílastæðagjalda harðlega og telur hana til marks um skeytingarleysi í stjórnsýslu borgarinnar.

Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort
Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort á næstu árum ef ekki verður losað um þau virkjanaáform sem sitja föst í kerfinu. Hann skorar á sveitarfélög að blanda ekki lögbundinni skipulagsskyldu inn í ágreining við ríkið um tekjustofna.

Segir að einfalt ætti að vera að fá heimild fyrir Hvammsvirkjun
Forstjóri Landsvirkjunar segir að það ætti að vera tiltölulega einfalt mál að fá aftur virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun, aðeins hafi vantað samtal milli tveggja ríkisstofnana. Hann gagnrýnir úrskurðarnefnd fyrir að fella leyfið úr gildi og koma þannig í veg fyrir að mikilvægar framkvæmdir hefjist í sumar.

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að semja um hótelveginn
Skaftárhreppur styður hóteluppbyggingu á jörðinni Orustustöðum og hefur skipulagt nýjan veg mun fjær þeim nágrönnum sem verða fyrir mestu ónæði. Sveitarstjórinn kveðst vænta þess að deiluaðilar leysi málið sjálfir með samningum.

Sigurður Ingi svarar fyrir ákvörðun um Skerjafjörð
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er meðal ræðumanna á fundi sem Flugmálafélag Íslands efnir til nú síðdegis um stöðu Reykjavíkurflugvallar. Í fundarboði segir að farið verði yfir núverandi stöðu og hvert stefnan sé sett varðandi flugvöllinn. Fundinum verður streymt beint á Vísi.

Bensínstöðin sem ferðamenn míga við verður færð
Sveitarfélagið Múlaþings hefur ákveðið að færa bensínstöð N1 á Djúpavogi út fyrir íbúabyggðina. Ferðamenn kasta af sér vatni við stöðina íbúum til ama og fyrirtækin á svæðinu vilja ekki kosta salernisaðstöðu.

„Fólk verður bara að taka mynd af sér“
„Vinsamlegast kyssist,“ stendur á nýju skilti í Ólafsvík sem sveitarstjóri vonast til að verði aðdráttarafl í bænum. Regnbogastígur á Kirkjutúni var málaður í gær við hliðina á Ólafsvíkurkirkju og undir Bæjarfossi.

Íbúar kvörtuðu og körfurnar voru settar upp aftur
Körfuboltakörfur við Seljaskóla í Reykjavík voru settar upp aftur nú síðdegis, eftir fjölda kvartana. Mikla athygli vakti þegar körfurnar voru teknar niður. Reykjavíkurborg segir körfur ekki verða fjarlægðar á skólalóðum.

Íbúar kvörtuðu og körfurnar voru teknar niður
Körfuboltakörfur á lóð Seljaskóla í Reykjavík voru teknar niður í dag, á hápunkti sumarsins, vegna kvartana íbúa.

Óvíst hvort að óligarki fái að flytja vikur frá Mýrdalssandi
Skipulagsstofnun hefur birt mjög neikvæða umsögn um vikurflutninga frá Mýrdalssandi. Eignarhald ólígarka með tengsl við Rússland og slæmt umhverfisorðspor hefur ekki verið til umræðu hjá sveitarstjórn.

Fá ekki leyfi og gefa drauminn upp á bátinn
Haraldur Þorleifsson og eiginkona hans Margrét Rut Eddudóttir hafa neyðst til þess að setja áætlanir um listamannasetur á Kjalarnesi á ís.

Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis
Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð.

Staða lóðamála í Reykjavík
Það hefur verið dapurt að fylgjast með umræðunni um lóðamál í Reykjavík. Lögaðili segir engar lóðir að fá og engar óseldar lóðir séu til en starfsmaður borgarinnar þvertekur fyrir það í svari í Morgunblaðinu. Flokkur fólksins hefur látið sig þessi mál varða enda óþolandi hversu mikill framboðsskortur er í Reykjavík þrátt fyrir að byggt hafi verið talsvert. Vissulega hefur borgarbúum fjölgað mikið.

Hafa þau grænan grun?
Þéttbýlismyndun hefur vaxið á undanliðnum áratugum. Afgerandi meirihluti Evrópubúa er nú búsettur í borgum. Búsetu í þéttu borgarumhverfi fylgja fjölmargir kostir, en búsetan takmarkar gjarnan beinan aðgang að óspilltri náttúru.

Íbúum tókst ekki að koma í veg fyrir Arnarnesveg
Úrskurðarnefnd um umhverfis og auðlindamál vísaði kærum í tveimur málum vegna Arnarnesvegar í Kópavogi frá. Eigendur fimmtán húsa auk tveggja samtaka höfðu kært framkvæmdina.

Verjum grænu svæðin fyrir ágangi meirihlutans í Reykjavík
Í vikunni ræddum við umhverfisráðherra um áhyggjur mínar af grænum svæðum í Reykjavík á Alþingi. Í nýlegri úttekt OECD um húsnæðismarkaðinn á Íslandi kom nefnilega fram að aðgengi Íslendinga að grænum svæðum í þéttbýli væri minnst allra OECD-ríkja. Það var því fullt tilefni fyrir mig, sem þingmann Reykvíkinga, að hafa þessar áhyggjur. Þær reyndust enda á rökum reistar.

Óábyrgt af ráðherra að tala gegn uppbyggingu í Skerjafirði
Íbúar í Skerjafirði í Reykjavík hafa miklar áhyggjur af uppbyggingu á svæðinu og áhrifum hennar á græn svæði. Umhverfisráðherra vill stöðva áformin en formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir uppbygginguna gríðarlega mikilvæga.

Breiðholtsstiginn meðal þess sem hlaut flest atkvæði
Umdeildur stigi sem byggður hefur verið á milli efra og neðra Breiðholts var meðal vinsælustu verkefnanna sem kosin voru til framkvæmda af íbúum Reykjavíkur á vegum samráðsverkefnis Reykjavíkur við íbúa árið 2021. Verkefnastjóri segir stigann byggðan með það í huga að hægt verði að nýta hann allan ársins hring, hann muni með tímanum falla betur inn í skóginn.

Mikill ágangur borgaryfirvalda á græn svæði sé einsdæmi á heimsvísu
Umhverfisráðherra telur ágang borgaryfirvalda á grænum svæðum höfuðborgarsvæðisins vera einsdæmi á heimsvísu. Fyrirhugaðar framkvæmdir í Skerjafirði séu mikið áhyggjuefni og yfirgnæfandi rök séu fyrir því að hætta við áformin.

„Þessi staðsetning kemur ekki til greina“
Bæjarstjóri Kópavogs segir það ekki koma til greina að endurvinnslustöð Sorpu verði byggð á landi Kópavogskirkjugarðs. Þörf sé á þarfa- og valkostagreiningu til að finna nýja staðsetningu endurvinnslustöðvar fyrir Kópavog og Garðabæ.

„Vúlgar galvaníserað járnbákn“ reist yfir skógarstíg í Breiðholti
Íbúar í Breiðholti eru missáttir við stiga sem byggður hefur verið á milli efra og neðra Breiðholts í Bökkunum. Einn íbúi segir enga grenndarkynningu hafa átt sér stað vegna stigans. Svo virðist vera sem um sé að ræða þrekstiga sem valinn var til framkvæmda í íbúakosningu í Betri Reykjavík fyrir tveimur árum.

Segja vinnubrögð Sorpu í Kópavogi verulega ámælisverð
Bæjarstjórnarmeirihluti Kópavogsbæjar telur vinnubrögð Sorpu og starfshóps á vegum hennar sem falið var staðarval fyrir nýja endurvinnslustöð, ámælisverð. Þetta kemur fram í bókun meirihlutans á bæjarstjórnarfundi sem fram fór í gær.

Rödd íbúa sé algjörlega hunsuð
Íbúasamtök Skerjafjarðar boðuðu til fundar í kvöld vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði. Gert er ráð fyrir fjórtán hundruð íbúðum sem rúma um 3500 manns í nýju deiliskipulagi og gæti íbúafjöldi hverfisins því sexfaldast.

Stendur ekki til að byggja endurvinnslu við kirkjugarðinn
Ekki stendur til að heimila byggingu endurvinnslustöðvar í landi Kópavogskirkjugarðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma.

Hætta við lokun flugvallar vegna orkuskipta í flugi
Ríkisstjórn Sviþjóðar hefur snúið við ákvörðun um lokun Bromma-flugvallar í Stokkhólmi og segir hann gegna lykilhlutverki í orkuskiptum flugsins. Ákvörðunin er þvert á vilja borgarstjórnar Stokkhólms sem stefndi að því að loka flugvellinum eftir tvö ár.

Djöflaeyjan, raunveruleikaþáttur í boði ríkisstjórnar
Allflestir íslendingar kunna þríleik Einars Kárasonar um Djöflaeyjuna, Gulleyjuna og Fyrirheitna landið utanbókar. Þríleikurinn sem öllu jöfnu er nefnd Djöflaeyjan er nýtt sem kennsluefni í skólum, hún sviðsett í áhuga- sem og atvinnuleikhúsum og auk þess hefur verið gerð um hana bíómynd. Bækur, leikrit og bíómynd sem slegið hafa öll vinsældamet.

Kópavogsbúar bálreiðir vegna hugmynda um endurvinnslu við kirkjugarð
Hugmyndir um að byggja nýja endurvinnslustöð við kirkjugarð í Kópavogi hefur kallað fram mikla reiði og mótmæli sem birtast á netinu. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri hefur séð ástæðu til að stíga fram og vekja athygli á því að þau í meirihluta bæjarstjórnar telji aðra staði heppilegri.