Forseti Íslands

Forsetinn fundar með Pence varaforseta
Fundurinn fer fram í Höfða klukkan 14:00.

Mike Pence hættir við hádegisverð með Guðna vegna breyttrar ferðatilhögunar
Pence er væntanlegur til landsins á morgun en hann mun meðal annars funda með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra en síðar um kvöldið mun hann funda með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem einnig er væntanleg til landsins.

„Ég er ekki handtaska eiginmanns míns“
Eliza Reid, forsetafrú, segir að sér þyki það skammarlegt hvernig sjálfstæðar og klárar konur séu álitnar aukahlutir á pólitískum fundum eiginmanna sinna.

Megum ekki þola afneitun á glæpum gegn mannkyni
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verður viðstaddur minningarathöfn í Póllandi um upphaf seinni heimsstyrjaldar í Evrópu. Hann segir mikilvægt að ólíkar skoðanir fái að koma fram en aldrei megi afneita óvéfengjanlegum staðreyndum.

Orkan okkar fundaði með forseta Íslands
Forsetinn tók við bréfi samtakanna með áskoruninni og umsögnum frá liðnu vori um málið ásamt ásamt nýlegri gögnum um málið.

Á annað þúsund gestir heimsóttu forsetahjónin á Bessastaði
Um 1200 manns heimsótti Bessastaði á menningarnótt en þar var opið hús þar sem hægt var að skoða húsakynni staðarins og merka hluti þar.

Guðni mælir ekki með Mustang
Meðlimir Mustang-klúbbsins heimsóttu í gær Bessastaði þar sem fornminjar voru skoðaðar ásamt gömlum forsetabílum.

Megi setja orkupakkann í uppnám þrátt fyrir samþykkt forseta
Fordæmalausar og erfiðar pólitískar aðstæður kæmu upp að mati lagaprófessors ef forseti Íslands myndi neita að samþykkja þriðja orkupakkann, eins og þúsundir Íslendinga hafa hvatt hann að gera

Guðni ávarpaði gesti Unglingalandsmóts UMFÍ
Unglingalandsmót UMFÍ hófst í dag en mótið fer fram á Höfn í Hornafirði um helgina. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði hátíðargesti á setningu mótsins í gær en hann er á mótinu ásamt Elizu Reid og tveimur af börnum þeirra.

Forsetahjónin verða með á Unglingalandsmóti UMFÍ í ár
Fjölskylda forseta Íslands ætlar að eyða Verlsunarmannahelginni á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði.

Forsetinn minnist kveðju forvera síns til tunglfaranna
Kristján Eldjárn var á meðal 73 þjóðarleiðtoga sem sendi kveðju með Apolló 11-leiðangrinum fyrir fimmtíu árum.

Kenísku fótboltastrákarnir hittu Guðna forseta sem hvatti þá til dáða
Hópur ungra drengja frá Got Agulu í Kenía eru komnir hingað til lands til þess að keppa á fótboltamótinu Rey Cup seinna í þessum mánuði.

Breyta á aðkomu að Bessastöðum
Breytingar á deiliskipulagi Bessastaða eru í farvatninu með það að markmiði að bæta öryggi og aðgengi ferðamanna og annarra gesta Bessastaða.

24 Íslendingar neitað að þiggja fálkaorðuna
Síðastliðna þrjá áratugi hefur forseti Íslands sæmt um níu hundruð Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Tuttugu og fjórir hafa hins vegar hafnað því að þiggja þetta æðsta heiðursmerki íslenska ríkisins.

Sextán hlutu Fálkaorðuna á þjóðhátíðardaginn
Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2019, sæmdi forseti Íslands sextán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Hundrað ára boðið í veislu með Guðna forseta
Hrafnista býður landsmönnum, sem eiga 100 ára afmæli á árinu, til afmælisveislu á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. júní klukkan 14.

Segir Þjóðverja geta lært af Íslendingum
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands og eiginkona hans Elke Büdenbender komu í dag, ásamt fylgdarliði, í opinbera heimsókn hingað til lands. Forsetinn segir Þjóðverja geta lært margt af Íslendingum í loftslagsmálum ekki síst í því hve hröð orkuskiptin eru að verða á Íslandi.

Forsetahjónin frá Þýskalandi í rjómablíðu á Bessastöðum
Frank-Walter Steinmeier er mættur hingað til lands ásamt Elke Büdenbender og fylgdarliði.

Guðni forseti segist kunna að grilla en gerir þó ekki mikið af því
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands tók að sér að grilla lambakótelettur á bæjarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi í dag.

Húsgögnum suðurstofu Bessastaða skipt út fyrir íslenska hönnun
Í dag var húsgögnum suðurstofu Bessastaða skipt út. Flest húsgögn á Bessastöðum eru ensk að uppruna en í ljósi þess frábæra árangurs sem íslenskir hönnuðir hafa náð við gerð á húsgögnum á undanförnum áratugum má segja að tímabært sé að helga einn af sölum Bessastaða íslenskri hönnun og húsgagnagerð.

Forseti Íslands grillar til góðs
Kótelettan BBQ Festival, SS, Golfklúbburinn Tuddi og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna taka enn og aftur höndum saman og halda styrktarsölu á grilluðum kótelettum, svokölluðum styrktarlettum SKB.

Hlýðir á Víking Heiðar og heimsækir meðal annars Árbæjarsafn og Vestmannaeyjar
Forseti Þýskalands og forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í næstu viku ásamt fylgdarliði.

Forsetinn segir bróður sinn hafa rekið smiðshöggið á uppbyggingu föður þeirra á Selfossi
Guðni Th. Jóhannsson, forseti Íslands, hefur sent karlaliði Selfoss í handbolta hamingjuóskir með Íslandsmeistaratitilinn sem liðið hampaði í kvöld í fyrsta skipti með sigri á Haukum.

Svuntur sem forsetahjónin fengu að gjöf í Reykjanesbæ vekja athygli
Mynd af forsetahjónununum sem fylgir kveðju frá bæjarstjóra Reykjanesbæjar í síðasta tölublaði Víkurfrétta hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum.

Málflutningur ekki uppbyggilegur
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi aðkomu Kínverja að norðurslóðamálum á fundi norðurskautsráðsins í Finnlandi í vikunni og gaf í skyn að þeir hefðu einhver annarleg markmið í huga sem stöfuðu ekki af áhyggjum af loftslagsbreytingum.

Guðni forseti: „Ég er ekki í hópi ofurplokkara“
Forseti Íslands er ekki í hópi ofurplokkara en segist gjarnan með sér poka fyrir rusl þegar hann fer út að skokka. Nokkur hundruð tóku þátt í skipulögðu plokki á höfuðborgarsvæðinu og enn fleiri um land allt á stóra plokkdeginum 2019 sem fór fram í dag.

Forseti Íslands fer Píslargöngu umhverfis Mývatn
Tæplega hundrað manns, þar á meðal Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, lögðu af stað í hina árlegu Píslargöngu umhverfis Mývatn. Þátttakendur eru ýmist gangandi, á hjólum eða á hjólaskíðum.

„Hvernig í ósköpunum stendur á því að þú talar ekki eins góða rússnesku og forseti Íslands?“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heillaði fundarmenn með rússneskukunnáttu sinni þegar hann tók til máls í pallborðsumræðum um norðurslóðir í gær.

Vonast eftir góðri samvinnu á vettvangi Norðurskautsráðsins
Forsetarnir ræddu meðal annars málefni norðurslóða.

Guðni heillaði fundarmenn með rússneskukunnáttu sinni
Forseti Íslands sótti ráðstefnu um málefni Norðurslóða ásamt Rússlandsforseta og leiðtogum annarra Norðurlanda.