Vestmannaeyjar

„Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“
Læknir segir læknalaust á Rangárvallasýslu vegna þess að Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur markvisst auglýst starfið með kjörum undir gildandi kjarasamningum til að fæla frá verktaka. Hérað HSU sé eyðimörk hvað varðar mönnun í dag.

Slippurinn allur að sumri loknu
Veitingastaðurinn Slippurinn í Vestmannaeyjum mun loka eftir næsta sumar. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum staðarins

Útköll víða vegna óveðurs
Björgunarfélag Akraness var kallað út undir hádegið vegna báts í Akraneshöfn sem var við það að slitna frá bryggju vegna hvassviðris.

Vilja ekki sjá listaverk á Eldfelli
Fjöldi Eyjamanna hefur skrifað undir undirskriftarlista þar sem áformum um gerð listaverks á Eldfelli er mótmælt.

Full ástæða til að ætla að það gæti orðið loðnuvertíð
Fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun segir fulla ástæðu til að ætla að loðnuvertíð gæti orðið í vetur. Fyrsta leitarleiðangri vetrarins lauk í morgun.

Borgaði barni fyrir kynferðislega mynd en sleppur
Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að afla sér kynferðislegrar ljósmyndar af fimmtán ára stúlku. Dómurinn taldi sannað að hann hefði framið brotið en miðað við þágildandi hegningarlög hefði hann aðeins fengið sekt fyrir athæfi sitt. Brot sem aðeins sekt liggur við fyrnast á tveimur árum og fyrningarfrestur rann út í málinu.

Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar
Landsréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms frá því í fyrra um að íslenska ríkið þurfi að greiða sjávarútvegsfyrirtækinu Vinnslustöðinni bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 og 2018.

Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi í síðustu viku að vísa til bæjarstjórnar tillögu um byggingu nýs baðlóns á Skanshöfða í Vestmannaeyjum. Byggja á lónið og hótelið ofan á hrauni sem rann úr eldgosinu í Heimaey árið 1973.

Þörf á ítarlegri rannsóknum vegna Vestmannaeyjaganga
Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag.

Bein útsending: Kynna skýrslu um fýsileika jarðgangna til Vestmannaeyja
Starfshópur um könnun á fýsileika jarðgangna milli lands og Vestmannaeyja kynnir skýrslu sína fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á opnum kynningarfundi í ráðuneytinu í dag klukkan 13. Sjá má kynninguna í beinni útsendingu hér að neðan.

Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman
Flugmenn tveggja flugvéla sem rákust saman í samflugi yfir Vestmannaeyjum ætluðu að fljúga í hring yfir Vestmannaeyjar þegar vélarnar rákust saman. Þeir létu flugumferðarstjórn ekki vita af árekstrinum fyrr en skemmdir á vélunum komu í ljós á Keflavíkuflugvelli.

Ræddi við konuna og fékk bingó: „Tími til að fara aftur til Eyja
Eftir ævintýri í Hong Kong, Portúgal og Svíþjóð er komið að næsta kafla á þjálfaraferli Þorláks Árnasonar sem hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem leikur í Bestu deildinni á næsta ári. Láki, eins og hann er jafnan kallaður, er spenntur að snúa aftur til Eyja þar sem að hann átti góðar stundir sem krakki. Hann vill að ÍBV liðið sýni hinn sanna anda sem einkennir Eyjamenn.

Varaþingmaður hættur í flokknum og úthúðar Ásthildi Lóu
Georg Eiður Arnarson, varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, hefur sagt sig úr flokknum. Hann segir Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann flokksins í kjördæminu, hafa sagst ekki hafa tíma fyrir kjördæmið og ekki efni á að kalla inn varaþingmann.

Fjögur félög Bergvins gjaldþrota
Þann fjórtánda október voru fjórir gjaldþrotaúrskurðir kveðnir upp í Héraðsdómi Suðurlands. Öll félögin fjögur eru í eigu Bergvins Oddsonar, veitingamanns og fyrrverandi formanns Blindrafélags Íslands, eða eiginkonu hans.

Karl Gauti til í oddvitann eftir óvænt brotthvarf Tómasar
Karl Gauti Hjaltason lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir að búið sé að hafa samband við sig varðandi það að taka sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann segist munu íhuga það vandlega að taka sæti á lista ef honum yrði boðið oddvitasætið.

Gefur ekki kost á sér í landsmálin að sinni
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi alþingiskosningum.

Minnist Baldocks með hlýju: „Honum þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar“
Fyrrverandi samherji Georges Baldock hjá ÍBV minnist hans með hlýhug. Hann segir að hann hafi verið mjög vinnusamur og smellpassað inn í samfélagið í Vestmannaeyjum. Baldock fannst látinn á heimili sínu í Grikklandi í fyrradag, aðeins 31 árs.

Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Óbyggðanefnd kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hefur nú framlengt kröfulýsingarfrest þeirra til 13. janúar 2025.

Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur
Vegagerðin hefur samið við Mýflug um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur á tímabilinu desember til og með febrúar næstu þrjú ár.

Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka
Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum.

Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita
Allir bátarnir, sem fluttu Eyjamenn til landsins í eldgosinu 1973 hafa verið málaðir á vita í Vestmannaeyjum en vitinn vekur alltaf mikla athygil ferðamanna.

Úr kirkjunni í brúna hjá Herjólfi
Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, sem þjónað hefur Seljakirkju og Lindakirkju, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Herjólfs ohf..

Hermann hættur með ÍBV
ÍBV verður með nýjan mann í brúnni þegar það spilar í Bestu deild karla í fótbolta á næsta tímabili. Hermann Hreiðarsson er hættur sem þjálfari liðsins.

Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni
Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði karlaliðs ÍBV í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið og mun því taka slaginn með liðinu í deild þeirra bestu á næsta tímabili.

Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“
Gary Martin segist aldrei munu firra sig ábyrgð frá því sem átti sér stað árið 2021, þegar að hann sem leikmaður ÍBV sýndi af sér athæfi sem varð til þess að hann var rekinn frá félaginu.

Tryggir ÍBV Bestu deildar sæti í dag? | „Þetta eru leikirnir sem þú vilt spila“
Eyjamenn eru með örlögin í sínum höndum fyrir lokaumferð Lengjudeildar karla í fótbolta í dag. Sigur gegn Leikni Reykjavík gulltryggir sæti ÍBV í Bestu deildinni á næsta tímabili og myndi um leið binda endi á stutta veru liðsins í næstefstu deild. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV segir sína menn klára í alvöru leik gegn hættulegu liði Leiknis sem hefur að engu öðru að keppa nema stoltinu.

Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE lokið
Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE í Vestmannaeyjum er nú lokið. Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir lögreglu hafa lokið rannsókn sinni nýlega, í lok sumars, og hafi þá sent málið til ákærusviðs. Hann á von á ákvörðun þeirra á næstu vikum.

Biður forseta um breytt fyrirkomulag á skólamáltíðum
Nemandi við Grunnskólann í Vestmannaeyjum leggur til að að grunnskólar landsins taki upp staðlaðan vikumatseðil. Slíkt segir hann myndu koma í veg fyrir matarsóun og að hann lendi í því að fá sama matinn í hádegis- og kvöldmat. Hann býður forseta Íslands á fund sinn til að kynna hugmyndina betur og vita hvort hún geti komið henni áleiðis.

Óvenjuleg björgunaraðgerð um borð í Herjólfi
Líf og fjör var um borð í Herjólfi í fyrradag, þegar fjölskyldur úr Vestmannaeyjum drógu lundapysjur upp úr kössum og slepptu þeim á haf út.

Hafa ekki fundið árásarmennina í Eyjum
Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir að mál tveggja manna sem urðu fyrir stórfelldri líkamsárás á Þjóðhátíð séu ennþá í rannsókn. Enginn sé grunaður eins og er.