Rangárþing eystra
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 12 ›
Hræ af kúm og hnúfubaki legið í fjörunni í tvo mánuði Tvö kúahræ og hræ af hnúfubak hafa legið í Ásólfsskálafjöru undir Eyjafjöllum í tvo mánuði. Farið er að slá verulega í hræin og komin er af þeim lykt. Innlent 5.6.2023 22:00
Oddafélagið kynnir tillögu að nýrri höfuðkirkju Rangæinga Félag um endurreisn Odda á Rangárvöllum hefur kynnt hugmynd að útliti nýrrar höfuðkirkju Rangæinga ásamt Sæmundarstofu sem yrði fjölnota menningarhús með rými fyrir allt að fjögurhundruð manna tónleika. Innlent 4.6.2023 21:41
Rándýr samloka á Hvolsvelli Dýrtíðin á ferðamannaslóð er farin að segja til sín. Teitur Þorkelsson leiðsögumanni brá í brún þegar hann fékk til sín strimilinn eftir að hafa greitt fyrir samloku og komst að því að hún kostaði 1.045 krónur. Neytendur 22.5.2023 10:56
Allar 150 kýrnar í fjósinu með nöfn Vígdögg, Aðalborg, Stjörnuþoka, Lúpína, Hrun, Hrafnöld, Hornauga, Kleópatra , Ljósblá og Flatkaka. Hvaða nöfn skyldu þetta vera? Jú, þetta eru allt nöfn á kúm á bæ í Rangárvallasýslu en allar kýrnar í fjósinu, hundrað og fimmtíu eru með nöfn í stað númera. Innlent 30.4.2023 21:04
Tónlist fyrir óvær börn á nýrri plötu Það stendur mikið til á Hellu og á Hvolsvelli á næstunni því þar á að halda tónleika, sem kallast “Hjartans mál”. Tónlistarfólkið verður allt í náttfötum og salirnir verða myrkvaðir og allt verður þakið í mottum, teppum og pullum fyrir tónleikagesti. Lífið 23.4.2023 20:05
Karlakór Rangæinga fagnar 30 ára afmæli með fallegum söng Karlakór Rangæinga fagnar nú þrjátíu ára starfsafmæli og blæs af því tilefni til afmælis- og vortónleika á nokkrum stöðum. Kórinn er skipaður um fjörutíu körlum, aðallega bændum úr sýslunni. Innlent 19.4.2023 19:31
Telja kýrnar fjórar hafa fallið í gegnum ís Dauð kýr fannst í Víkurfjöru í gær. Þetta er fjórða kýrin sem finnst dauð á Suðurlandi síðustu daga. Fyrir höfðu tvær fundist á Ásólfsskálafjöru undir Eyjaföllum og ein við Markarfljót. Innlent 9.4.2023 13:59
Þriðja dauða kýrin fannst á Suðurlandi Dauð kýr fannst á strönd við árósa Markarfljóts í gær. Þetta er þriðja dauða kýrin sem finnst á Suðurlandi síðustu tvo daga. Héraðsdýralæknir segir ljóst að þetta verklag sé ekki samkvæmt reglunum og það sé því miður of algengt að bændur fargi hræjum þar sem þeim sýnist. Innlent 7.4.2023 13:40
Gekk fram á tvær dauðar kýr í fjörunni undir Eyjafjöllum „Ég var bara á gangi í sakleysi mínu í dag í fjörunni og þá blöstu þessar tvær dauðu kýr í fjörunni við mér. Þetta er nánast óhuggulegt, ég skil ekkert í þessu. Þetta er á Ásólfsskálafjöru hér undir Eyjafjöllum“, segir Vigfús Andrésson, bóndi í Berjanesi undir Eyjafjöllum aðspurður um dauða kýrnar en hann birti myndir af þeim á Facebook síðu sinni. Innlent 5.4.2023 18:04
Tveimur fjallgöngumönnum bjargað á Hamragarðaheiði Tveir lentu í hremmingum í nótt þar sem þeir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðaheiði við Eyjafjallajökul. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að annar maðurinn hafi fallið niður fellið nokkurn spöl og við það endaði hinn í sjálfheldu og komst ekki niður til félaga síns. Innlent 28.3.2023 07:46
Vilja Hopp-hjól í umferð á Hellu, Hvolsvelli, Snæfellsnesi og Tröllaskaga fyrir sumarið Stefnt er að því að koma Hopp-hjólum í umferð á Hellu, Hvolsvelli, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík fyrir sumarið. Viðskipti innlent 2.3.2023 06:30
Skjálfti 3,2 að stærð í Mýrdalsjökli Skjálfti 3,2 að stærð varð í Mýrdalsjökli rétt eftir klukkan hálf þrjú í dag. Töluverð skjálftavirkni hefur mælst í jöklinum síðustu daga. Innlent 27.2.2023 14:53
Lionel Messi kominn á Hvolsvöll Knattspyrnuhetjan Messi og átrúnaðargoð margra er nú mættur á Hvolsvöll, reyndar ekki í eigin persónu en níu ára strákur á staðnum fékk málverk af honum í afmælisgjöf, sem mamma hans málaði. Verkið hefur vakið mikla athygli. Lífið 12.2.2023 21:39
Eldsvoðinn reyndist ruslabrenna og slökkviliðið snýr við Ferðalangar hringdu í slökkviliðið á fimmta tímanum í dag og tilkynntu um eld rétt austan við Hvolsvöll í Rangárþingi eystra. Slökkviliðið sneri þó við á miðri leið þegar í ljós kom að um litla ruslabrennu væri að ræða. Innlent 15.1.2023 17:27
Sóttu slasaðan einstakling við Skógafoss Beiðni um útkall þyrlu Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag vegna slasaðs einstaklings við Skógafoss. Innlent 4.1.2023 18:53
Loka hringvegi milli Markarfljóts og Víkur Vegagerðin hefur lokað hringvegi á milli Markarfljóts og Víkur. Innlent 31.12.2022 09:07
Geggjað jólaskreytt 45 metra mastur á Hvolsvelli Ef einhvers staðar er hægt að tala um risa jólaskreytingu í ár, þá er það á Hvolsvelli því þar er búið að setja jólaseríur upp í fjörutíu og fimm metra hæð á símamastri, sem þar stendur. Rúmlega kílómetri af blikkandi seríum er á mastrinu. Lífið 12.12.2022 21:04
Biðu eftir björgunarsveitum á þaki bíls í Krossá í tvo tíma Björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út í dag eftir að tveir erlendir ferðamenn með leiðsögumanni í för festu bíl sinn í Krossá. Fólkið þurfti að bíða á þaki bílsins í tvo klukkutíma þar til hjálp bar að garði. Innlent 11.12.2022 15:53
Fjölmenningarhátíð á Hvolsvelli í dag Það stendur mikið til á Hvolsvelli í dag því þar verður haldin fjölmenningarhátíð í félagsheimilinu Hvolnum þar sem íbúar frá Póllandi, Búlgaríu og Portúgal kynna menningu sína fyrir öðrum íbúum í gegnum söng, dans og matarsmakk . Einnig munu íslensk ungmenni kynna sína menningu, siði og hefðir fyrir gestum og bjóða upp á hangikjöt og lifrarpylsu. Innlent 26.11.2022 12:21
Rangæingar segja Hekluskóga miklu stærri en Þorláksskóga Rangæingar vilja ekki skrifa upp á þá staðhæfingu formanns bæjarráðs Ölfuss að Þorláksskógar séu stærsta skógræktarverkefni á Íslandi. Þeir segja að Hekluskógar í Rangárþingi ytra séu miklu stærri og vitna til upplýsinga frá Skógræktinni máli sínu til stuðnings. Innlent 23.11.2022 17:05
Tvíbreið brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi vígð Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók í dag þátt í vígslu nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Hann er vongóður um að fækka einbreiðum brúm niður í 29 fyrir árslok en þær eru nú 31. Innlent 21.10.2022 19:38
Árna Bald dæmdar 32 milljónir eftir mikinn hasar við Tungufljót Samkvæmt dómsorði sem féll nýverið í Héraðsdómi Reykjaness hefur mikið laxveiðidrama átt sér stað við Tungufljót undanfarin ár þar sem hópur á vegum eigenda gerði sitt til að trufla stangveiðimenn með því að henda spúnum sínum yfir línur og flækja. Þá eru dæmi um grjótkast bakka á milli. Innlent 18.10.2022 14:45
Komu ökumanni sem sat fastur í Krossá til bjargar Skálaverðir og björgunarsveitarmenn komu ökumanni til bjargar í morgun þegar bíll hans festist í Krossá í Þórsmörk. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í æfingarflugi á svæðinu en ekki reyndist þörf á aðstoð þeirra. Innlent 7.10.2022 12:04
Ef við hefðum ekki átt nál værum við öll nakin út í móa „Margt verður til í kvenna höndum“ er yfirskrift á sýningu, sem konur í Kvenfélaginu Einingu í Hvolhreppi eru með í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Saumnálin spilar þar stærsta hlutverkið. Innlent 26.9.2022 20:05
Spartverjar á Íslandi Paramount birti í gærkvöldi mynd af Spartverjum á Íslandi og sagði að tökur á annari þáttaröð sjónvarpsþáttanna Halo, sem byggja á samnefndum tölvuleikjum, væru hafnar. Myndin sýnir fjóra Spartverja í fullum skrúða við Kvernufoss. Bíó og sjónvarp 15.9.2022 14:24
Vilja leggja hjólastíg milli Hellu og Hvolsvallar Sveitarstjórn Rangárþings ytra kannar nú möguleikann á því að leggja göngu- og hjólastíg milli Hellu og Hvolsvallar. Leiðin er rúmur tólf og hálfur kílómetri og áætlað er að verkið muni kosta 587 milljónir króna. Innlent 14.9.2022 20:18
70-90 laxa dagar í Eystri Rangá Eystri Rangá er næst aflahæsta á landsins og fer yfir 3.000 laxa múrinn í dag en hún stóð í 2.985 löxum í gær þegar tölur voru teknar saman. Veiði 9.9.2022 12:07
„Ég veit ekki nákvæmlega hvernig honum tókst að gera þetta“ Yfirleiðsögumaður í Eystri-Rangá segir að spænskur veiðimaður hafi líklega sloppið ágætlega miðað við aðstæður þegar löng veiðistöng hans rakst í háspennulínu. Karlmaðurinn, sem er vanur veiðimaður, er með brunasár víða á líkamanum. Innlent 7.9.2022 13:39
Fékk raflost við veiðar í Eystri-Rangá Veiðimaður brann víðsvegar um líkamann þegar veiðistöng hans lenti á háspennulínu í Eystri-Rangá í dag. Maðurinn var með meðvitund er hann var fluttur á sjúkrahús. Innlent 6.9.2022 13:57
Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli um helgina Þeir, sem elska íslenska kjötsúpu með miklu kjöti í ættu að drífa sig á Hvolsvöll því þar fer fram Kjötsúpuhátíð alla helgina. Kjötsúpurölt var í þorpinu í gærkvöldi og í dag býður Sláturfélag Suðurlands heimamönnum og gestum þeirra upp á kjötsúpu eins og hver vill. Innlent 27.8.2022 13:06