Viðskipti

Fréttamynd

Svenn Dam skipaður forstjóri og varastjórnarformaður

Svenn Dam var í gær skipaður forstjóri og varastjórnarformaður 365 Media Scandinavia A/S. Félagið er í eigu Dagsbrúnar hf. Svenn mun bera ábyrgð á uppbyggingu fjölmiðlastarfsemi í Danmörku en jafnframt kanna ný viðskiptatækifæri á sviði fjölmiðlunar á Norðurlöndunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5 prósent

Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5 prósent á fyrsta fjórðungi 2006 þrátt fyrir töluverðar lækkanir síðustu vikur. Greiningardeild KB banka segir í hálf fimm fréttum að sé hækkunin sett í samhengi við lengra tímabil megi sjá að hækkun fjórðungsins er nokkuð yfir meðaltals ársfjórðungshækkun frá upphafi vísitölunnar, sem nemur um 5,9 prósentum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Milestone tæpir 14 milljarðar

Hagnaður Milestone ehf. nam tæpum 14 milljörðum króna á síðasta ári. Fyrir skatta nam hagnaðurinn 17,8 milljörðum króna. Starfsemi félagsins einkenndist af viðamiklum fjárfestingum og breytingum á efnahagsreikningi félagsins. Félagið keypti m.a. 66,6 prósenta hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Smáragarðs tæpar 189 milljónir

Hagnaður Smáragarðs ehf. nam 188,8 milljónum króna á síðasta ári. Þetta er 12,3 milljónum meira en árið 2004. Heildareiginir félagsins námu í lok árs 9.34 milljörðum króna og nam aukning milli ára um 93 prósentum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Samherja hf. 3,1 milljarður króna

Hagnaður Samherja hf. nam rétt rúmum 3 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er 190 milljónum króna meira en árið 2004. Rekstrartekjur námu tæpum 21,3 milljörðum króna og jukust þær um ríflega 27 prósent frá árinu á undan.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikil ásókn í erlend verðbréf

Mikil sókn hefur verið í erlend verðbréf síðustu mánuði. Í Morgunkorni Glitnis segir að það endurspegli að líkindum væntingar um gengislækkun krónunnar. Í leiðinni hafi sóknin í erlend verðbréf átt þátt í gengislækkun krónunnar undanfarið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Síldarvinnslunnar 413 milljónir

Síldarvinnslan hf. á Neskaupsstað var rekin með 413 milljóna króna hagnaði í síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 1,6 milljarðar króna, eða 22 prósent, af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri var 1,1 milljarður og nam handbært fé frá rekstri 1 milljarði króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vöruskiptin óhagstæð um 7,2 milljarða

Vöruskipti voru óhagstæð um 7,2 milljarða króna í febrúar. Á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 4,8 milljarða. Vörur voru fluttar út fyrir fyrir 14,8 milljarða króna í febrúar og inn fyrir 22,0 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ísland og ESB semja um tollalækkanir

Tollar á ýmsar landbúnaðarvörur verða felldir niður í viðskiptum á milli Íslands og landa Evrópusambandsins (ESB) 1. janúar á næsta ári. Er búist við að samkomulag á milli Íslands og ESB leiði til lægra verðs á innfluttum á landbúnaðarafurðum um leið og það skapar ný sóknarfæri til útflutnings íslenskra landbúnaðarafurða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikil viðskipti á skuldabréfamarkaði

Viðskipti á skuldabréfamarkaði fóru hratt af stað við opnun markaðarins í morgun en alls hafa átt sér stað viðskipti fyrir rúma 6 milljarða króna um ellefuleytið í morgun. Viðskiptin voru komin í rúma 11 milljarða um klukkustund síðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Smáralind tapaði 101 milljón króna

Smáralind ehf. tapaði 101 milljón króna á síðasta ári samanborið við 43 milljóna króna tap árið áður. Rekstarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 684 milljónum króna en var 601 milljón árið 2004. Heildartekjur félagsins námu 1.259 milljónum króna og hækkuðu um tæp tíu prósent á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krónan styrktist

Gengi krónunnar hækkaði nokkuð eftir 0,75 prósenta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun. Gengið hækkaði um rúmt prósent skömmu eftir hækkun bankans en hefur sveiflast nokkuð og styrktist um rúm 1,8 prósent þegar mest lét.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aðeins minni síldarkvóti í ár

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hlutdeild íslenskra skipa í veiðum á norsk-íslensku síldinni verði 154 þús. tonn í ár. Það er lítil breyting frá árinu 2005, eða lækkun um 2,5 prósent. Til samanburðar var kvótinn árið 2004 128 þús. tonn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætti við yfirtökutilboð í LSE

Bandaríski verðbréfamarkaðurinn Nasdaq hætti í dag við 2,4 milljarða punda yfirtökutilboð sitt í kauphöll Lundúna, London Stock Exchange (LSE), án nokkurra útskýringa. Ákvörðun Nasdaq að hætta við tilboðið, sem hljóðaði upp á 950 pens á hlut, varð til þess að gengi bréfa í LSE lækkaði um 8,7 prósent í dag.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nýtt met í norsku kauphöllinni

Met var slegið í kauphöllinni í Ósló í Noregi í dag þegar vísitalan fór í fyrsta sinn yfir 400 stig. Vísitalan hækkaði um 1,1 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins, sem er hækkun um 4,37 punkta, og endaði hún í 400,03 stigum. Ástæða hækkunarinnar liggur í hærra gengi Statoil og Norsk Hydro, fjarskiptafyrirtækisins Telenor og DnB NOR, sem er stærsti banki Noregs.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hátt lokagengi í Japan

Gengi hlutabréfa hækkaði í kauphöllinni í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan hækkaði um 106,93 punkta, 0,63 prósent, og endaði í 17.045,34 stigum, sem er hæsta lokagildi vísitölunnar í fimm og hálft ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Stýrivextir hækkaðir um 75 punkta

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 75 punkta frá og með 4. apríl. Eftir hækkun verða stýrivextir bankans 11,5 prósent. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,75 prósentustig frá 1. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Segir Seðlabankann taka mið af rangri vísitölu

Í nýlegri greiningu norska bankans Skagen Fondene er vaxtastefna Seðlabanka Íslands gagnrýnd og sögð ýta undir ójafnvægi á fjármálamörkuðum. Óeðlilegt sé að taka mið af verðbólgu með húsnæðisverði. Seðlabankinn, sem í dag birtir ákvörðun um stýrivexti, segir gagnrýnina óréttmæta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sparisjóður Skagafjarðar selur stofnfé

Sparisjóður Skagafjarðar, sem áður nefndist Sparisjóður Hólahrepps, tapaði þrettán milljónum króna á síðasta ári samanborið við sex milljóna króna tap árið áður. Eigið fé sparisjóðsins nam um 42 milljónum í árslok og voru heildareignir 652 milljónir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Eskju 40 milljónir

Eskja hf á Eskifirði var rekin með 40 milljón króna hagnaði á síðasta ári. Tekjur félagsins námu 2855 milljónum og lækka nokkuð á milli ára. Rekstrargjöld voru 2152 milljónir og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 703 milljónum sem er um 4% lækkun frá fyrra ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bjartsýni í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn eru sagðir bjartsýnir um efnahag þjóðarinnar og hefur væntingavísitala neytenda ekki verið hærri í fjögur ár. Búist var við því að væntingavísitalan færi í 102 stig í þessum mánuði. Hækkunin nam hins vegar 4,5 punktum og endaði hún í 107,2 stigum. Í maí árið 2002 mældist væntingavísitalan í Bandaríkjunum 110,3 stig.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ekkert nýtt í gögnum aðjúnkts

Ríkisendurskoðun segir í bréfi til formanns fjárlaganefndar að ekkert nýtt hafi komið fram í þeim gögnum sem stofnunin aflaði sem stutt geti þær ályktanir sem Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands, dró af þeim gögnum og upplýsingum sem hann hefur undir höndum vegna sölu á hlut ríkisins á Búnaðarbankanum til svonefnds S-hóps.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spá 0,5 prósenta hækkun stýrivaxta

Seðlabankinn kynnir vaxtaákvörðun sína í fyrramálið auk þess sem verðbólguspá verður birt. Greiningardeildir bankanna búast almennt við 0,5 prósenta hækkun stýrivaxta. Verði það raunin verða stýrivextir 11,25 prósent hér á landi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hlutabréf lækkuðu í Ísrael

Gengi hlutabréfa lækkaði um rúmlega eitt prósent í Ísrael í dag í kjölfar þess að Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra landsins, lýsti yfir sigri Kadimaflokksins í þingkosningunum í Ísrael í gær.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lægri væntingavísitala

Væntingavísitala Gallup lækkaði í mars eftir að hafa náð hámarki í febrúar en vísitalan mælist nú 127,7 stig. Mat neytenda á efnahagslífinu er nú lægra en áður og á stærstan þátt í lækkun vísitölunnar ásamt því sem dregið hefur verulega úr væntingum þeirra til efnahagslífsins eftir sex mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Deutsche Bank ráðleggur Pliva

Króatíska lyfjafyrirtækið Pliva hefur valið Deutsche Bank til að ráðleggja sér í viðræðum við íslenska lyfjaframleiðandann Actavis sem hefur hug á að taka yfir fyrirtækið.

Viðskipti innlent