Viðskipti

Fréttamynd

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar

Þrátt fyrir ört hækkandi húsnæðisverð þá hefur vísitala byggingarkostnaðar lækkað um 0,1 prósent frá síðasta mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Ef litið er tólf mánuði aftur í tímann hefur vísitalan sem endurspeglar byggingarkostnað hækkað um rétt rúm átta prósent, mest í maí í fyrra og janúar í ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Oddi fær aukna samkeppni

Edda Printing and Publishing Ltd., hefur keypt prentsmiðjuna Prentmet ehf og dótturfélag þess Prentverk Akraness af Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Fyrir á Edda PP allt hlutafé í Edda Printing LLC, prentsmiðju í Pétursborg í Rússlandi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Actavis hagnast um 5 milljarða

Hagnaður Actavis í fyrra var minni en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og framlegð af rekstrinum var umtalsvert minni en gert hafði verið ráð fyrir. Hagnaður Actavis var 62,7 milljónir evra. Það samsvarar ríflega fimm miljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrsta heimsendingarapótek opnað

Lyfjaver opnar í dag fyrsta heimsendingarapótekið hér á landi sem sérhæfir sig í að afgreiða lyfseðilsskyld lyf á hagstæðu verði. Viðskiptavinir eiga kost á að fá lyfin send heim á sama verði og væru þau keypt í búðinni, hvort sem þeir búa í miðborg Reykjavíkur eða úti á landi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Upplýsingagjöf til skoðunar

Kauphöllin skoðar hvort rétt hafi verið staðið að upplýsingagjöf um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði segir að skýrsla matsfyrirtækisins Standard og Poors hafi legið fyrir í heild sinni í nokkurn tíma áður en sjóðurinn sendi frá sér tilkynningu. Eftir á að hyggja hefði hún þó mátt vera ítarlegri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ný bensínstöð við Sprengisand

Fyrsta bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík var opnuð í dag og fleiri eru á teikniborðinu. Markaðsstjóri fyrirtækisins segir áfangann stóran og hann geri fyrirtækið enn sterkara í samkeppni á olíumarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vildarpunktar verði taldir fram

Þeir sem safna vildarpunktum í flugi sem vinnuveitandi hefur greitt fyrir verða að telja ígildi punktanna fram til skatts. Segir í Morgunblaðinu í dag að ríkisskattstjóri telji ekki hægt að líta á söfnun vildarpunkta sem lið í samningi um afsláttarkjör þegar vinnuveitandi greiði fyrir farmiðann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samið um fjarskiptaþjónustu

Landsvirkjun, Fjarski og Síminn hafa gert með sér samning um samvinnu á sviði fjarskiptaþjónustu. Samstarfið felur í sér að Síminn veitir Landsvirkjun og Fjarska þá fjarskiptaþjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja öryggi og skilvirkni í rekstri Landsvirkjunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flytja skiptiborð til Ísafjarðar

Íslandsbanki hefur ákveðið að flytja símaskiptiborð bankans til Ísafjarðar og er gert ráð fyrir að starfsmönnum í útibúinu þar fjölgi um helming vegna þessa. Samkvæmt tilkynningu frá bankanum mun breytingin verða í áföngum. Tveir starfsmenn hefja störf við símaskiptaborðið á Ísafirði á næstu vikum og er gert ráð fyrir að stöðugildin verði orðin yfir tíu á fyrri hluta ársins 2006.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Seðlabanki hækkar stýrivexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 22. febrúar næstkomandi, þ.e. úr 8,25 prósentum í 8,75 prósent. Aðrir vextir bankans hækka um 0,5 prósentur frá 21. febrúar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stýrivextir hækkaðir í 8,75%

Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósentustig í kjölfar þess að bankinn sendi ríkisstjórninni greinargerð í tilefni þess að verðbólgan mælist nú yfir þolmörkum peningamálastefnunar. Stýrivextirnir eru nú 8,75 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkið kaupir Landsvirkjun

Ríkið mun kaupa hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun en bæjarfélögin eiga helming í félaginu á móti ríkinu. Frá því var greint á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu fyrir stundu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Landsvirkjun verður hlutafélag

Ríkið kaupir Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ út úr Landsvirkjun um næstu áramót með yfirtöku lífeyrisskuldbindinga, ef samningar nást um verð, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í dag. Orkufyrirtæki ríkisins verða um leið sameinuð í einn orkurisa sem ætlunin er að breyta í hlutafélag eftir þrjú ár og bjóða nýjum fjárfestum að koma inn í. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þjóðhagsspáin röng segir LÍÚ

Landssamband íslenskra útvegsmanna segir að endurskoðuð þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sé beinlínis röng þegar kemur að þætti sjávarútvegsins. Þar sé gengið út frá mun lægra gengi krónunnar en það er í raun og veru til að fegra afkomu sjávarútvegsins

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður SPRON aldrei meiri

Afkoma Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis náði sögulegu hámarki á síðasta ári. Hagnaður af rekstri SPRON-samstæðunnar fyrir skatta nam 1.820 milljónum króna samanborið við 846 milljónir árið áður. Hagnaður eftir skatta var 1.465 milljónir króna og arðsemi eigin fjár var 32%.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fimmtíu milljarða samdráttur

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs drógust saman um 50 milljarða á seinni helmingi síðasta árs. Hlutdeild bankanna á fasteignalánamarkaði hefur aukist úr fimm prósentum í tæp 19 prósent á síðustu tveimur árum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krefist svara um atkvæði

Fjármálaeftirlitið hefur sent 30 stærstu hluthöfum Íslandsbanka bréf þar sem þess er krafist þeir geri grein fyrir því hvernig þeir hyggjast beita atkvæðarétti sínum á aðalfundi bankans á þriðjudaginn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vöruskiptahallinn tvöfalt meiri?

Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að vöruskiptahallinn í desember hafi numið 4-6 milljörðum króna en Hagstofan birtir tölur sínar á morgun. Ef það gengur eftir verður vöruskiptahallinn í fyrra samtals um 40 milljarðar króna eða meira en tvöfalt meiri en árið áður þegar hann var sautján milljónir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Iceland sækir ekki um einkaleyfi

Forráðamenn bresku matvælakeðjunnar Iceland hafa fallið frá hugmyndum um að sækja um einkaleyfi á notkun nafnsins í heiminum. Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, sem nú er í eigu Íslendinga, sendi forsætisráðherra bréf þess efnis í gærkvöldi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krónan í fjórða sæti

Íslenska krónan er í fjórða sæti yfir þá gjaldmiðla heimsins sem mest hafa hækkað gagnvart dollarnum undanfarið ár. Frá þessu er greint í nýjasta tímariti <em>Economist</em>.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tveir taka við af Sigurði

Ragnhildur Geirsdóttir, 33 ára verkfræðingur, var í dag ráðin forstjóri Flugleiða. Þá var Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, ráðinn forstjóri dótturfélagsins Icelandair. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Orkuveitunnar þrefaldast

Orkuveita Reykjavíkur hagnaðist um 3,7 milljarða á síðasta ári. Þetta er nærri þrefalt meiri hagnaður en árið 2003 þegar Orkuveitan hagnaðist um 1,3 milljarða. Ársreikningur fyrirtækisins var samþykktur á stjórnarfundi í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja halda kverkataki á neytendum

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir bankana standa á bak við hækkandi fasteignaverð og ýjar að því að þeir séu að "leggja grunn að stærsta "ráni" sögunnar".

Innlent
Fréttamynd

Ríkulega lagt á búsið

Skýrsla, sem unnin var að ósk samgönguráðherra, sýnir að veitingamenn leggja á bilinu 170-250 prósent ofaná innkaupsverð algengra tegunda bjórs, léttvíns og sterkra vína. Af verðinu sem greitt er yfir barborðið renna á bilinu 50 til 60 prósent til veitingamanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ragnhildur ráðin forstjóri

Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarstýringar Icelandair og stjórnarmaður í Flugleiðum, var ráðin forstjóri Flugleiða í dag. Jón Karl Ólafsson var hins vegar ráðinn forstjóri Icelandair. Ragnhildur er þrjátíu og þriggja ára gömul.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fallið frá einkaleyfi á Iceland

Forstjóri bresku verslunarkeðjunnar Iceland Food hefur sent Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra svarbréf vegna umsóknar fyrirtækisins um einkaleyfi á vörumerkinu Iceland í löndum Evrópusambandsins þar sem hann segir að fallið verði frá umsókn um einkaleyfi á notkun nafnsins í öllum löndum utan Bretlands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dæmi um vanskil 100% íbúðalána

"Það eru farin að berast inn á borð til okkar nokkur dæmi um fólk sem hefur fengið hundrað prósent lán og nær ekki að standa í skilum," segir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Þau auknu lán sem almenningi bjóðast til húsnæðiskaupa nýtast illa þeim sem minnst hafa milli handanna enda húsnæðisverð víða um land margfaldast og engin endir á hækkununum í sjónmáli.

Viðskipti innlent