Innlendar

Kristín Birna bætti tímann sinn í 100 metra grindahlaupi
Kristín Birna Ólafsdóttir bætti í dag sinn besta árangur í 100 metra grindahlaupi. Kristín var að keppa á móti í Árósum í Danmörku.

Kristín Birna keppir á alþjóðlegri grindahlaupshátíð
Kristín Birna Ólafsdóttir grindahlaupari úr ÍR keppir á morgun á alþjóðlegri grindahlaupshátíð sem haldin er á Aarhus-stadion í Danmörku.

Gylfi Einarsson á leiðinni aftur til Íslands
Gylfi Einarsson segir að 90% líkur séu á því að hann spili á Íslandi á næsta tímabili. Hinn 31 árs gamli Gylfi er að verða samningslaus hjá Brann í Noregi og ætlar að fara frá félaginu. Það var þó sól og blíða í Bergen þegar Fréttablaðið ræddi við Gylfa í gær en hann hefur rætt óformlega við Fylki um að ganga aftur í raðir félagsins.

Erlendur valinn besti unglingurinn og Ísland í öðru sæti
Íslenska kraftlyftingalandsliðið náði góðum árangri á Smáþjóðaleikunum í ólympískum lyftingum 2010 voru haldnir í Kýpur um síðustu helgi. Ísland sendi fjögurra manna lið til Kýpur og það náði öðru sæti á mótinu á eftir heimamönnum í Kýpur.

Meistaramótið heppnaðist vel - Ekki fleiri náð EM lágmarki í 60 ár
Úrhellis rigning á laugardaginn setti strik í reikninginn á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum í Laugardalnum. Hún stríddi keppendum í nokkrum greinum en þó var mótið vel heppnað og fín tilþrif sáust.

Stórsigur ÍR í kvennaflokki tryggði félaginu MÍ titilinn
ÍR fagnaði öruggum sigri á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem lauk á Laugardalsvelli í dag.

ÍR með mikla yfirburði á MÍ í frjálsum
Fyrri keppnisdegi Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum er lokið en ÍR er efst í keppninni. Munar mestu um gríðarlega yfirburði þess í kvennaflokki en FH er efst í karlaflokki.

Ásdís vann en var samt fjarri sínu besta
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni bar sigur úr býtum á kastmóti í Glasgow í kvöld.

Helga með sína næst bestu sjöþraut frá upphafi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni náði sinni næst bestu sjöþraut frá upphafi með 5.757 stig og varð í 2. sæti í Evrópubikarkeppninni í Tel-Aviv. Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr USÚ bætti sig og hlaup 5.123 stig og varð í 14. sæti.

Afreksíþróttamenn í lyfjaprófunarhópi
Samkvæmt Alþjóða lyfjareglunum ber þeim sem fara með lyfjaeftirlit meðal íþróttamanna að stofna skráðan lyfjaprófunarhóp. Í hópnum eiga að vera fremstu íþróttamenn hvers lands. Við val á einstaklingum er tekið mið af stöðu viðkomandi á heimslista og þátttöku á stórum Alþjóðlegum mótum.

Ísland áfram í 3. deild
Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum verður áfram í 3. deild Evrópubikarsins eftir mótið á Möltu um helgina. Ísland lauk keppni í fjórða sæti og fékk 400 stig.

Ísland í sjötta sæti eftir fyrri keppnisdag
Ísland er í sjötta sæti af þrettán þjóðum eftir fyrri keppnisdaginn á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum á Möltu. Ísland er með 327 stig.

Fimm komin með lágmark á Evrópumótið í Barcelona
ÍR-ingurinn Kristín Birna Ólafsdóttir varð um helgina fimmti íslenski frjálsíþróttamaðurinn til þess að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótinu í frjálsum sem fer fram í Barcelona í júli. Auk hennar hafa tveir FH-ingar og tveir Ármenningar náð lágmörkum á mótið.

Kristín Birna búin að ná b-lágmarki inn á EM í frjálsum
ÍR-ingurinn Kristín Birna Ólafsdóttir bætti sig í 400 metra grindarhlaupi og náði B-lágmarki á Evrópumeistaramótið í Barcelona í sumar. Hún er þar með fimmti íslendingurinn sem er kominn með lágmark á EM í frjálsum.

Jakob Jóhann í úrslitum í 100 metra bringusundi í Canet
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi synti sig í morgun inn í úrslit í 100 metra bringusundi á sundmóti í Canet í Frakklandi sem er hluti af Mare Nostrum mótaröðinni en þar keppa flestir af sterkustu sundmönnum heims.

Hundrað prósent vinningshlutfall hjá Guðmundi á HM í liðakeppni
Guðmundur E. Stephensen var í aðalhlutverki hjá íslenska landsliðinu á HM í liðakeppni fór fram í Moskvu 23. til 30. maí 2010. Íslenska landsliðið lék átta leiki og vann aðeins þrjá þeirra á móti Madagaskar, Lais og Kosta Ríka.

Bjarki og Sveinbjörg urðu Íslandsmeistarar í fjölþraut
Bjarki Gíslason úr UFA og Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr USÚ urðu um helgina Íslandsmeistarar í fjölþrautum. Þetta er í fyrsta skiptið sem þau vinna titilinn.

Ægir og SH vörðu bikarmeistaratitla sína
Sundfélagið Ægir og Sundfélag Hafnarfjarðar vörðu bikarmeistaratitla sína í Bikarkeppni SSÍ sem lauk í Reykjanesbæ í dag.

Ísland vann Andorra örugglega - Myndasyrpa
Ísland og Andorra mættust í ójöfnum æfingaleik á Laugardalsvelli í dag. Ísland fór með öruggan 4-0 sigur af hólmi.

Ellefu af 30 sterkustu kylfingum landsins vantar á fyrsta stigamótið
Fyrsta stigamót ársins í golfinu fer fram í Vestmannaeyjum um næstu helgi. Mikil spenna er á meðal golfáhugamanna fyrir mótinu enda tímabilið loksins að byrja aftur.

Afreksíþróttamenn á Íslandi fái aðstoð við að leggja skóna á hilluna
Íþróttahreyfingin þarf að koma betur að aðstoð afreksíþróttamanna sem eru að leggja skóna á hilluna og íþróttamenn ganga sér svo nærri að þeir kljást við átröskun bæði á ferlinum og eftir að honum lýkur.

Ásdís endaði í sjötta sæti í Katar - var nokkuð frá sínu besta
Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni endaði í 6. sæti af átta keppendum í spjótkasti á fyrsta móti Demanta-mótaraðarinnar sem fram fór í Katar í dag.

Ragnheiður komin inn á HM í Dúbæ eins og Hrafnhildur
Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR náði lágmarki inn á HM í Dúbæ um helgina þegar hún synti fyrsta sprett KR í 4 x 50 metra boðsundi á Vormóti Breiðabliks.

Auðunn setti tvö Íslandsmet
Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum lauk í Svíþjóð í dag. Auðunn Jónsson fór fyrir íslensku sveitinni og honum tókst að setja tvö Íslandsmet á mótinu.

Þormóður varð Norðurlandameistari í júdó
Norðurlandamótið í júdó fór fram í Laugardalshöllinni í dag og þar létu íslenskir júdókappar verulega að sér kveða.

Keppt í áströlskum fótbolta á Íslandi
Um síðustu helgi var í fyrsta skipti á Íslandi keppt í áströlskum fótbolta. Sérstakt bikarmót var haldið á félagssvæði HK í Fagralundi þar sem þrjú lið mættu til leiks.

Fjárhúsið nánast fullt klukkutíma fyrir leik
Nú styttist í fjórða leik Snæfells og Keflavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 19:15 hér í Stykkishólmi og með heimamenn tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri.

Níu gull og átján verðlaun á alþjóðlegu móti í Lúxemburg
Íslenska unglingalandsliðið í sundi náði góðum árangri á alþjóðlegu móti í Lúxemburg núna um helgina en alls tóku tíu sundmenn þátt í mótinu og unnu til 18 verðlauna þar af voru níu gull.

Múrsteinar brotnir með höfðinu
Athyglisvert mót á vegum Taekwondo-deildar Ármanns verður haldið á morgun í Ármannsheimilinu á Engjavegi.

Ragna fyrst íslenskra kvenna til að komast í 16 manna úrslit á EM
Ragna Ingólfsdóttir náði sögulegum árangri á Evrópumótinu í badminton þegar hún varð fyrst íslenskra kvenna til að komast í 16 manna úrslit á Evrópumóti.