Innlendar

Fréttamynd

Níu af síðustu tíu Íþróttamönnum Reykjavíkur eru konur

Stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valdi í gær Íþróttamann Reykjavíkur í 31. sinn og fyrir valinu varð frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir úr Glímufélaginu Ármanni. Ásdís er níunda konan á síðustu tíu árum sem hlýtur þessa útnefningu.

Sport
Fréttamynd

Íslenska badmintonlandsliðið átti ekki möguleika gegn Dönum

Íslenska karlalandsliðið í badminton tapaði 0-5 fyrir Dönum í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu en það má búast við að þetta hafi verið erfiðasti leikur íslenska karlalandsliðsins í mótinu þar sem danska liðið er sigurstranglegast á mótinu og ríkjandi Evrópumeistarar.

Sport
Fréttamynd

ÍR gjörsigraði stigakeppnina á MÍ í frjálsum

Nú er keppni lokið á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um helgina. FH fór með sigur af hólmi í karlaflokki með 12.023 stig en ÍR vann í kvennaflokki með 18.608 stig.

Sport
Fréttamynd

Óðinn Björn hafði betur gegn Bergi Inga í kúluvarpi

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum hófst í dag með pomp og prakt en þar eru samankomnir flestir af bestu frjálsíþróttamönnum landsins. Mikil eftirvænting var eftir einvígi FH-inganna Óðins Björns Þorsteinssonar og Bergs Inga Péturssonar en þar hafði Óðinn Björn betur.

Sport
Fréttamynd

Ásdís vann einvígið gegn Helgu í kúluvarpi á MÍ

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum stendur nú yfir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal en þar er samankomið fremsta frjálsíþróttamót landsins. Keppni hófst í dag kl. 12.30 og stendur til um 16 leytið og heldur svo áfram á morgun frá kl. 11 til 16.

Sport
Fréttamynd

Þetta var áratugurinn hans Ólafs

Handboltamaðurinn Ólafur Stefánsson endurskrifaði í gær sögu kjörs Samtaka íþróttamanna á Íþróttamanni ársins þegar hann var kosinn Íþróttamaður ársins með fullu húsi annað árið í röð.

Sport
Fréttamynd

Ólafur sá fyrsti sem fær fullt hús tvö ár í röð

Ólafur Stefánsson fékk í kvöld fullt hús atkvæða í kosningu Samtaka Íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins. Þetta var annað árið í röð sem allir meðlimir Samtaka Íþróttamanna setja hann í efsta sæti á sínum lista og er það í fyrsta sinn sem sami maður fær fullt hús tvö ár í röð.

Sport
Fréttamynd

Sigursæl saga Ólafs Stefánssonar í kjöri Íþróttamanni ársins

Ólafur Stefánsson hefur verið mjög áberandi síðasta rúma áratuginn í kjöri Samtaka Íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins. Ólafur hefur fengið stig í tólf af síðustu þrettán kjörum og hefur komist á topp tíu listann í ellefu skipti frá árinu 1997.

Sport
Fréttamynd

Ólafur kominn í hóp með Vilhjálmi Einarssyni

Ólafur Stefánsson skipar nú sess með silfurmanninum Vilhjálmi Einarssyni sem einu Íþróttamennirnir sem hafa hlotið sæmdartitilinn Íþróttamaður ársins oftar en þrisvar sinnum. Vilhjálmur var kosinn fimm sinnum Íþróttamaður ársins á fyrstu sex árum kjörsins.

Sport
Fréttamynd

Bergur og Ásdís sköruðu fram úr í frjálsum

Bergur Ingi Pétursson og Ásís Hjálmsdóttir voru valin af stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands sem frjálsíþróttafólk ársins 2009. Bergur er úr FH en Ásdís úr Ármanni. Bæði eru 24 ára gömul.

Sport
Fréttamynd

Ársþing evrópska sundsambandsins verður haldið á Íslandi

Ársþing evrópska sundsambandsins, LEN, verður haldið á Íslandi í maí 2011 en þetta var samþykkt á stjórnarfundi LEN sem haldinn var í Tyrklandi 13. desember síðastliðinn. SSÍ var stofnað 25. febrúar 1951 og heldur því upp á sextíu ára afmæli sitt þá. „Þetta er mikil og góð viðurkenning fyrir okkur hér á Íslandi," segir í frétt á heimasíðu Sundsambands Íslands.

Sport
Fréttamynd

Íslenska boðssundsveitin í áttunda sæti á EM

Íslenska boðssundsveitin hafnaði í áttunda sæti af tíu þjóðum í 4 x 50 metra skriðsundi á EM í stutti laug í Istanbul í Tyrklandi. Íslenska sveitin missti þær írsku fram úr sér á lokasprettinum en stelpurnar settu nýtt íslandsmet með því að synda á 1:42,88 mínútum.

Sport
Fréttamynd

Ragnheiður syndir fyrsta sprettinn í sögulegu sundi

Ragnheiður Ragnarsdóttir mun synda fyrsta sprettinn þegar íslenska kvennalandsliðssveitin syndi í úrslitum á 4 x 40 metra skriðsundsboðssundi. Þrettán landssveitir voru skráðar til leiks en nú hafa þrjár dregið skráningar sínar til baka því var óþarfi að synda undanrásirnar í fyrramálið. Þetta er örugglega í fyrsta sinn í sögunni sem íslensk kvennasveit syndir í úrslitum á Evrópumeistaramóti í sundi.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur semur við sænskt borðtennislið

Guðmundur Eggert Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðinu BTK Warta um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils. Guðmundur varð sænskur meistari með Eslövs árin 2007 og 2008.

Sport
Fréttamynd

Hrafnhildur sú eina sem bætti sig í Tyrklandi í morgun

Íslensku keppendurnir hafa lokið keppni á fyrsta mótsdegi á EM í stuttri laug sem fram fer í Istanbul í Tyrklandi. Fjórir íslenskir sundmenn syntu í undanrásum í dag en enginn þeirra komast áfram í úrslitin seinna í dag.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að hlaupa hundrað kílómetra á hlaupabretti

Gunnlaugur Júlíusson ætlar að svitna vel við það að kynna bók sína „Að sigra sjálfan sig“ sem er komin út hjá Vestfirska forlaginu. Á laugardaginn ætlar hann að hlaupa 100 km á hlaupabretti í World Class í Laugum.

Sport
Fréttamynd

Skytturnar sigruðu á Gimli Cup

Skytturnar frá Akureyri tryggðu sér sigur á þriðja krullumóti vetrarins hjá Krulludeild Skautafélags Akureyrar. Mótið heitir Gimli Cup og er þar keppt um veglegan bikar sem gefinn var af Vestur-Íslendingunum Alma og Ray Sigurdsson í Gimli í Manitóba í tilefni af opnun Skautahallarinnar árið 2000. Fyrst var keppt um bikarinn 2001 og er mótið nú því það níunda í röðinni.

Sport
Fréttamynd

Sex sundmenn og konur á leiðinni til Tyrklands

Ísland mun eiga sex fulltrúa á Evrópumótinu í 25 metra laug sem fer fram í Istanbul í Tyrklandi 8. til 14. desember næstkomandi. Það verður keppt í hinni frægu Abdi İpekçi Arena höll í Istanbul en þar fór meðal annars fram Evrópumótið í körfubolta og Eurovision söngvakeppnin.

Sport