Lög og regla

Fréttamynd

Lögbannsmál þingfest

Mál Jónínu Benediktsdóttur á hendur Fréttablaðinu og Kára Jónassyni ritstjóra þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjvíkur í gærmorgun. Krafist er staðfestingar á lögbanni sem sett var á birtingu einkagagna Jónínu og upptöku á gögnum hjá blaðinu, auk bóta og refsingar.

Innlent
Fréttamynd

Albani enn í gæsluvarðhaldi

Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins.

Innlent
Fréttamynd

Hnuplað fyrir milljarða

Búðarþjófar leggja oft mikið á sig við iðju sína og beita ótrúlegustu aðferðum. Íslendingar stálu úr verslunum á síðasta ári fyrir einn komma átta milljarða króna. Spenna, gróðafíkn eða fátækt býr gjarnan að baki búðahnuplinu.

Innlent
Fréttamynd

Fékk milljónasekt og skilorð

Jón Axel Ólafsson, fyrrum fjölmiðlamaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir brot á skatta- og hegningarlögum árin 1998 og 1999.

Innlent
Fréttamynd

Beindu byssu að vegfarendum

Tveir menn sem beindu skotvopni að vegfarendum út um glugga á bifreið á Akureyri í gærkvöldi voru handteknir eftir að lögreglunni bárust tilkynningar um athæfi þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn á 146 kílómetra hraða

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á Grindavíkurvegi eftir að bifreið hans hafði mælst á 146 kílómetra hraða. Hámarkshraðinn er hins vegar 90 kílómetrar á klukkustund. Tveir ökumenn voru svo kærðir fyrir ölvun við akstur.

Innlent
Fréttamynd

Erill hjá lögreglu

Maður var handtekinn þegar hann reyndi að brjótast inn í einbýlishús í Mosfellsbæ í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um innbrotið og var maðurinn handtekinn á staðnum.

Innlent
Fréttamynd

Slys á Hellu

Kona og maður á sjötugsaldri voru flutt á sjúkrahúsið á Hellu eftir að jeppi með pallhýsi sem þau voru farþegar í keyrði út af veginum á Hvolsvelli upp úr klukkan níu í gærmorgun. Brákaðist konan á fæti. Fengu þau bæði að fara heim að lokinni skoðun.</font />

Innlent
Fréttamynd

Rólegt hjá lögreglu í nótt

Tiltölulega rólegt var hjá lögreglunni um land allt að öðru leyti á landinu í nótt en maður var þó stöðvaður grunaður um ölvun við akstur á Selfossi á fjórða tímanum í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Rúta út af vegi

Kalla þurfti á björgunarsveit þegar rúta með 50 grunnskólabörn frá Höfn í Hornafirði fór út af veginum við Oddsskarð, Eskifjarðarmegin, um tíuleytið í fyrrakvöld. Engin slys urðu á farþegunum.

Innlent
Fréttamynd

Vill fimm milljónir

Jónína Benediktsdóttir hefur stefnt Fréttablaðinu fyrir að birta upplýsingar upp úr einkatölvupósti sem Fréttablaðið hafði undir höndum.

Innlent
Fréttamynd

Skallaði hurð

Lögreglan í Reykjanesbæ handtók karlmann á þrítugsaldri í gærkvöldi en á honum fannst amfetamín og töflur sem taldar eru E-töflur að sögn lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Írarnir hafa ekki sótt um leyfi

Hópur Íra, sem gripinn hefur verið við ólöglega sölu ýmiss varnings hér á landi undanfarið, virðist ekki hafa ráðið bót á sínum málum. Á meðal þess sem mennirnir hafa boðið til sölu eru rafstöðvar, borvélar og háþrýstidælur.

Innlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir nauðgun í Bretlandi

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri bíður nú dóms í Englandi vegna nauðgunarákæru. Maðurinn mun, samkvæmt frétt vefmiðilsins Surrey Online, hafa átt kynmök við 15 ára stúlku en heldur því fram að hann hafi hvort tveggja talið hana eldri, auk þess sem hann haldi því fram að hún hafi veitt fullt samþykki fyrir kynmökunum og því hafi ekki verið um eiginlega nauðgun að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Hluthöfum lofað skjótfengnum gróða

Svo virðist sem hluthöfum í Skúlason Limited hafi verið lofað skjótfengnum gróða, fjárfestu þeir í fyrirtækinu. Grunur leikur á að fleiri íslensk fyrirtæki en Skúlason Limited tengist rannsókn á umfangsmiklu peningaþvætti.

Innlent
Fréttamynd

Málið tekið upp aftur?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er nú að láta lögmann sinn í Englandi kanna hvort hann geti fengið meiðyrðadóm Jóns Ólafssonar á hendur sér tekinn upp aftur fyrir dómstólum þar. Jón kveðst sömuleiðis vera að skoða hvort ummæli Hannesar í hádegisfréttum Bylgjunnar á miðvikudag hafi verið brot á lögbanni sem breskir dómstólar settu á að Hannes endurtæki ummæli sín.

Innlent
Fréttamynd

Jón Ólafsson býður sættir

Jón Ólafsson er tilbúinn til að sættast við Hannes Hólmstein Gissurarson ef hann biðst afsökunar á ummælum sínum um að Jón hafi auðgast á fíkniefnainnflutningi. Hannes segist hins vegar aðeins hafa verið að segja sannleikann.

Innlent
Fréttamynd

Átti 38 þúsund skrár með barnaklám

Lögreglan í Reykjavík fann gríðarlegt magn af barnaklámi í tölvu Reykvíkings á fertugsaldri. Hann hafði tengt sig við barnaklámsvefi í Finnlandi og vistað tugþúsundir ljósmynda og hreyfimyndir sem taka tólf klukkustundir í sýningu. >

Innlent
Fréttamynd

Einn áfram í haldi lögreglu

Lögregla hefur farið fram á að einn þremenninganna, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar í Garðabæ aðfaranótt sunnudags þar sem sveðjum var m.a. beitt, verði áfram í gæsluvarðhaldi. Tveimur félögum mannsins var sleppt úr gæsluvarðahaldi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald framlengt

Gæsluvarðhald yfir manni sem sakaður er um alvarlega líkamsárás í Garðabæ aðfaranótt sunnudags, hefur verið framlengt til 2. desember næst komandi. Gæsluvarðhaldsúrkurður yfir honum og tveimur félögum hans rann út í dag og var félögunum tveimur sleppt en krafist lengra gæsluvarðhalds yfir manninum fyrir Héraðsdómi Reykjaness, sem féllst á beiðni lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af skaðabótakröfu upp á 94 milljónir króna. Sækjandi í málinu, sem er norskur athafnamaður, stefndi Arngrími á þeim forsendum að hann hafi skuldbundið sig til að gerast aðili að fyrirtæki stefnanda, Scandinavian Historic Flight, og til að leggja tiltekna fjármuni til félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Sluppu ómeidd úr eldsvoða

Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur ómerkti sýknudóminn

Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps með því að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar, og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms. Sýknudómurinn vakti undrun á sínum tíma þar sem hann byggðist á því að enginn hafi séð verknaðinn nægilega vel.

Innlent
Fréttamynd

15 mánuðir fyrir nauðgunartilraun

Maður á þrítugsaldri var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir tilraun til nauðgunar. Hann réðst á jafnöldru sína á réttarballi í Biskupstungum haustið 2004 og beitti hana talsverðu ofbeldi og hafði í hótunum við hana. Tilviljun réð því að hann kom ekki fram vilja sínum og fullframdi brotið, en maður kom aðvífandi og við það flúði hann af vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Húsleitin gerð hjá Skúlason ehf.

Fyrirtækið sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá í gær að beiðni bresku lögreglunnar heitir Skúlason ehf. og er til húsa að Laugavegi 26. Fyrirtækið er að miklum meirihluta í eigu UK Ltd. í Bretlandi og svo Vestmannaeyjabæjar.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnahundar í VMA

Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur skorið upp herör gegn fíkniefnanotkun. Nemendur geta nú vænst þess að lögreglumenn með sérþjálfaðan hund leiti að fíkniefnum í skólanum hvenær sem er.

Innlent
Fréttamynd

Ríkislögreglustjóri verst frétta

Ríkislögreglustjóri verst allra frétta af húsleit efnahagsbrotadeildar í gær sem gerð var að beiðni bresku lögreglunnar, enda sé aðgerðin ekki að frumkvæði Ríkislögreglustjóra.

Innlent
Fréttamynd

Fundað um fjárnámskröfu

Lögmenn Jóns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins funda nú um fjárnámskröfu Jóns á hendur Hannesi í húsakynnum sýslumannsins í Reykjavík. Hannes hefur lýst því yfir að hann muni láta lögmann sinn gera þá kröfu að fjárnámskröfu á hendur sér verði vísað til héraðsdóms.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur ómerkti sýknudóm

Hæstiréttur ómerkti og vísaði heim í hérað til aðalmeðferðar sýknudómi héraðsdóms yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í fyrra. Maðurinn var sakaður um að hafa lagt til leigubílstjóra með óþekktu eggvopni, með þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut átján sentimetra langan skurð á hálsi.

Innlent
Fréttamynd

Bílstjóri fagnar áfangasigri

Hæstiréttur hefur vísað aftur til héraðsdóms máli leigubílstjóra sem varð fyrir því í fyrra­sumar að maður teygði sig inn um gluggann hjá honum og skar hann á háls með hnífi. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í lok nóvember í fyrra manninn sem grunaður var um verknaðinn. 

Innlent