Innlent

Fréttamynd

Útfærslan á kjöttollinum er enn óljós

Óljóst er hvernig útfærslan á niðurfellingu tolla á kjötvörum verður. Hún þarf að skýrast fyrir áramót ef aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að lækka matarverð eiga að taka gildi 1. mars 2007, segir Erna Bjarnadóttir hjá Bændasamtökunum.

Innlent
Fréttamynd

Góð reynsla af einkarekinni öryggisleit

Reynslutími einkarekinnar öryggisleitar í Leifsstöð er senn á enda. Innlendar og erlendar eftirlitsstofnanir hafa gert úttekt á gæðum hennar og reynslan er góð, segir yfirmaður öryggissviðs Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Börn allt niður í níu ára í sjálfsvígshættu

Yngsta barnið sem kom á Barna- og unglingageðdeild á síðasta ári vegna mats á sjálfsvígshættu var níu ára. Yngsta barnið sem komið hefur af sömu sökum á þessu ári er tíu ára. Helstu ástæður slíkrar líðanar eru þunglyndi og kvíði.

Innlent
Fréttamynd

Þingmenn segja Björgvin ljúga

Þingmenn deildu hart í upphafi þingfundar á þriðjudag um kosningaloforð Framsóknarflokksins frá árinu 1999 um að veita milljarði til baráttunnar gegn fíkniefnum. Sæunn Stefánsdóttir, Framsóknarflokki, hóf umræðuna og ásakaði Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingunni, um að slá ryki í augu kjósenda með því að segja að ekki hefði verið staðið við loforðið.

Innlent
Fréttamynd

Bótaskyldan er enn óljós

Pólverji féll af uppslætti eða plötu við húsbyggingu í Borgartúni í júní og slasaðist alvarlega. Hann er nú í endurhæfingu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins og kanna hugsanlega bótaskyldu en enn er allt óljóst um hana.

Innlent
Fréttamynd

120 hafa slasast í umferðinni

Alvarlegum slysum hefur fjölgað um 43,6 prósent á fyrstu níu mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs urðu 102 alvarleg slys þar sem 120 manns slösuðust.

Innlent
Fréttamynd

Stefna í nítján hæðir

Skuggahverfi hf. hefur enn ekki fengið endanlegt samþykki byggingarfulltrúa fyrir nýjum háhýsaklasa ofan við Skúlagötu. Reisa á sex blokkir ofan á sameiginlegum bílkjallara fyrir 169 íbúðir. Hæsta blokkin verður nítján hæða, eða jafnhá hæstu blokkinni á Höfðatorgsreitnum sem íbúar þar í

Innlent
Fréttamynd

Von er á skýrslu um jarðgöng

Unnið er að greinargerð um hagkvæmustu legu jarðganga frá Sæbraut að Gufunesi og væntir samgönguráðherra niðurstaðna á næstu vikum.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að tjá sig um málið

Árni Johnsen, sem á dögunum varð í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, neitaði að svara spurningum blaðamanns vegna ummæla sem hann lét falla í sjónvarpsfréttatíma Ríkisútvarpsins á þriðjudagskvöld, þess efnis að lögbrot hans hefðu verið „tæknileg mistök sem enginn hafi tapað á“.

Innlent
Fréttamynd

Lögin nái einnig til prófkjara

Nefnd sem fjallaði um lagaumhverfi stjórnmálaflokkanna hefur lokið við drög að frumvarpi um fjármál flokkanna. Ná þau ekki einvörðungu til fjármála stjórnmálaflokka heldur til flestra þátta er snerta stjórnmál, til dæmis til prófkjara.

Innlent
Fréttamynd

Þrjátíu sækjast eftir sæti hjá VG

Þrjátíu gefa kost á sér í sæti á listum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi. Frestur til þátttöku rann út um síðustu helgi.

Innlent
Fréttamynd

Þrettán ára piltar játa íkveikjur

Tveir þrettán ára piltar hafa játað að hafa kveikt í á tveimur stöðum á Akranesi í júní á þessu ári. Annars vegar kveiktu þeir í brettastæðum við Sementsverksmiðju bæjarins og hins vegar í tjörhreinsitanki við birgðastöð Olís.

Innlent
Fréttamynd

Opna skrifstofu í Reykjavík

Norska ál- og orkufyrirtækið Norsk Hydro hyggst opna Norður-Atlantshafsskrifstofu í Reykjavík á næstunni. Fyrirtækið hefur áform um frekari starfsemi hér á landi í tengslum við opnun skrifstofunnar. Torstein Dale Sjøtveit, varaforstjóri Hydro og forstjóri Hydro Aluminium Metal, og nokkrir af æðstu yfirmönnum álbræðslu- og súrálsmála fyrirtækisins funda með Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra í dag.

Innlent
Fréttamynd

Nítján milljónum veitt til eldis sjávardýra

Heildarúthlutun AVS styrktarsjóðs í sjávarútvegi nemur 640 milljónum frá því sjóðurinn tók til starfa árið 2003 og alls hafa 210 styrkir verið afgreiddir. AVS rannsóknarsjóður veitir styrki til rannsóknaverkefna, sem auka verðmæti sjávarfangs og eru styrkir veittir til verkefna sem taka á öllum þáttum sjávarútvegs og fiskeldis.

Innlent
Fréttamynd

Tíu hjúkrunarrýmum bætt við

Áætlað er að byggja tíu ný hjúkrunarrými á Ísafirði á næstu fjórum árum. Þetta kemur fram í bréfi frá Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi Ísafjarðarbæjar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Saltfélagið stofnar verslun

Á morgun, föstudag, verður opnuð ný verslun í gamla Alliance-húsinu að Grandagarði 2. Það er Saltfélagið sem stendur að baki versluninni en Saltfélagið samanstendur af Pennanum, Lumex, Te og kaffi og Eymundsson.

Innlent
Fréttamynd

Undirbúningur á fullu skriði

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra vísar á bug fullyrðingum borgarstjóra um að seinagangur í ráðuneytinu tefji byggingu nýrra hjúkrunarheimila í borginni. „Hér er unnið af fullum krafti. Verkið er komið á þann góða rekspöl að við erum að ganga frá útboðsteikningum og kanna möguleika á útboði á jarðvinnu um áramótin,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýnir dómstólana

Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra, segir dómstóla hér á landi ekki í stakk búna til þess að taka á stórum og flóknum málum eins og Baugsmálinu. „Mér finnst hafa komið í ljós að dómstólar, líkt og kerfið á öllum stigum, séu ekki búnir til þess að taka á stórum málum eins og Baugsmálinu. Það vantar reynslu og þekkingu en sem betur fer koma stór og flókin mál sjaldan upp.“

Innlent
Fréttamynd

Rektor kærður til siðanefndar skólans

Rektor Háskólans á Bifröst boðaði til fundar í gær vegna kæru til siðanefndar á hendur honum. Hann er ásakaður um óeðlileg samskipti við nemendur og alvarleg embættisafglöp. Trúnaðargögn send sem viðhengi með fundarboðinu.

Innlent
Fréttamynd

Svaraði ekki spurningunni

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, Framsóknarflokki, um hleranir á símum alþingismanna í fyrirspurnartíma í þinginu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fyllti á án þess að greiða

Tvítug kona var á þriðjudag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir gripdeild vegna síendurtekins bensínstuldar í júlí á þessu ári. Konan gerði sér sex sinnum ferð á tvær mismunandi bensínstöðvar Olís á áðurnefndu tímabili og dældi eldsneyti á bifreið sína án þess að greiða fyrir það.

Innlent
Fréttamynd

Undrast metnaðarleysi ráðherra

Ekki er gert ráð fyrir lengingu flugbrautarinnar á Akureyrarflugvelli í núgildandi samgönguáætlun og því tómt mál að tala um að ráðast nú þegar í verkefnið. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra svaraði þessu aðspurður á Alþingi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Kosta 50 milljónir króna á ári

Í ráði er að dreifa dagskrá útvarps og sjónvarps Ríkisútvarpsins um gervitungl. Nemur árlegur kostnaður við útsendingarnar um 50 milljónum króna og hefur Alþingi samþykkt að verja 150 milljónum af Símapeningunum til að standa straum af kostnaðinum næstu þrjú árin.

Innlent
Fréttamynd

Deiliskipulagið á lokaspretti

Tillaga um deiliskipulag Lýsislóðarinnar í vesturbæ Reykjavíkur kemur fljótlega til auglýsingar. Verði tillagan samþykkt í skipulagsráði og borgarráði verður hún auglýst. Margrét Þormar, hverfisarkitekt hjá borginni, segir að deiliskipulagið verði samþykkt í fyrsta lagi í lok janúar.

Innlent
Fréttamynd

Áramótaskaup truflar Alþingi

Þingfundur truflaðist og lét þingvörður sussa á Reyni Lyngdal leikstjóra og hans fólk úti á Austurvelli á þriðjudagskvöldið. Upptökur stóðu yfir á áramótaskaupinu og hafði hópurinn fengið leyfi lögreglunnar til starfans.

Innlent
Fréttamynd

17 ára tekinn á ofsahraða

Lögreglan í Kópa-vogi stöðvaði á þriðjudagskvöld ökumann eftir að bifreið sem hann ók mældist á 161 kílómetra hraða á Reykjanesbraut til móts við Smáralind. Hámarkshraði á þessum slóðum er 70.

Innlent