Innlent Ríkið sparar í lyfjakaupum Lækka á kostnað ríkisins vegna lyfjakaupa um hálfan milljarð króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Innlent 3.10.2006 21:02 Þremur föngum var ráðinn bani Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal, sem sátu í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu í tvö ár, fullyrða að ekki færri en þrír menn hafi verið myrtir þar, þótt bandarísk yfirvöld hafi haldið fram að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Nær útilokað hafi verið að fremja sjálfsvíg vegna mikillar öryggisgæslu. Þá segjast þeir vita til þess að vörður hafi gengið í skrokk á geðsjúkum manni. Ahmed og Iqbal eru hér á landi í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar Leiðin til Guantanamo, og kom þetta fram í pallborðsumræðum um fangabúðirnar í Iðnó í gær. Innlent 3.10.2006 21:02 Ekki frekar rætt af borginni Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra, lagði það til á fundi borgarstjórnar í gær að þeim tilmælum yrði beint til stjórnar Landsvirkjunar að hámarkshæð vatnsborðs í Hálslóni yrði lækkuð um 20 metra. Með því yrði öryggi mannvirkja aukið, dregið yrði úr hættu á stíflurofi og umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar minnkuð. Við það myndi flatarmál lónsins minnka um 20 ferkílómetra. Innlent 3.10.2006 21:02 Lítil breyting milli mánaða Fylgi stjórnmálaflokkanna breytist nær ekkert milli mánaða, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Innlent 3.10.2006 21:02 Fjárfestar erlendis eiga helming íslenskra ríkisskuldabréfa Fjárfestar sem búsettir eru erlendis áttu íslensk ríkisskuldabréf fyrir 51 milljarð íslenskra króna að markaðsvirði í lok júlí. Þetta nemur helmingi íslenskra ríkisskuldabréfa á móti eign innlendra aðila. Þetta er talsverð aukning á milli ára en á svipuðum tíma í fyrra áttu fjárfestar með búsetu erlendis 27 prósent ríkisskuldabréfa að verðmæti 24 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 3.10.2006 20:17 85 milljónir til ráðstöfunar Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa samtals 85 milljónir króna til frjálsrar ráðstöfunar samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Það er sama fjárhæð og á árinu sem er að líða. Menntamálaráðherra fær mest, 18 milljónir króna, iðnaðar- og viðskiptaráðherra fær 11 milljónir og dómsmála- og heilbrigðisráðherra fá 8 milljónir hvor. Sjávarútvegsráðherra fær minnst, 3 milljónir en aðrir ráðherrar ýmist 5 eða 6 milljónir króna. Innlent 3.10.2006 21:02 Farbann yfir Sainz staðfest Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir Jesus Sainz, einum fimmmenninganna sem sakaðir eru um að hafa stolið vísindaniðurstöðum og viðskiptaupplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í farbann 29. september. Innlent 3.10.2006 21:02 Kjartan Gunnarsson hættur sem framkvæmdastjóri Andri Óttarsson tók í gær við af Kjartani Gunnarssyni sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Staða flokksins er virkilega sterk nú, segir Kjartan. Hlakka til að takast á við krefjandi verkefni, segir Andri. Innlent 3.10.2006 21:03 Gamla hvalstöðin gerð upp Verið er að gera Hvalstöðina í Hvalfirði upp til að hún verði tilbúin ef stjórnvöld ákveða að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni. Innlent 3.10.2006 21:02 Standast prófið Fjármálaeftirlitið hefur reiknað út áhrif af álagsprófi á bankana. Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar á hlutabréfum, markaðsskuldabréfum, vaxtafrystum/virðisrýrðum útlánum og fullnustueignum og áhrifa af lækkun á gengi íslensku krónunnar án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir lögboðið lágmark. Innlent 3.10.2006 21:02 Alvöru karlmenn pissa sitjandi Innlent 3.10.2006 21:03 Lést í slysi Konan sem lést í umferðarslysi á Miklubraut um helgina hét Ragnheiður Björnsdóttir, til heimilis á Kleppsvegi 126. Ragnheiður var á gangi eftir brautinni þegar hún varð fyrir bifreið á austurleið. Talið er að hún hafi látist samstundis. Ragnheiður var fædd 10. júní 1951 og því 55 ára þegar hún lést. Hún lætur eftir sig sambýlismann og uppkominn son. Innlent 3.10.2006 21:02 Aflagt bann við hundaeign Innlent 3.10.2006 21:02 Icelandair skráð í Kauphöllina Áætlanir FL Group um sölu á hlutabréfum í Icelandair tóku óvænta stefnu í gær þegar félagið greindi frá áformum sínum um skráningu Icelandair Group í Kauphöll fyrir áramót. Innlent 3.10.2006 21:02 Vörubifreið full af fiski valt Vörubifreið með eftirvagn fullan af fiski valt á Reykjanesbrautinni í fyrrinótt. Þegar lögreglan kom á staðinn lá vörubifreiðin á hliðinni og hindraði för annarra bíla um aðra akrein vegarins. Lítilsháttar umferðartafir urðu á meðan að beðið var eftir kranabifreið til að hífa vörubifreiðina og eftirvagninn í burtu. Innlent 3.10.2006 21:02 Gaf upp kennitölu annars Tæplega tvítugur maður var stöðvaður af lögreglunni í Reykjavík um miðnættið á mánudagskvöld þar sem skrásetningarnúmer vantaði á framhlið bifreiðar sem hann ók. Innlent 3.10.2006 21:02 Aðdragandinn var nokkur Innlent 3.10.2006 21:02 Brenndist á hálsi og baki Fernt var flutt á slysadeild á mánudaginn. Fjögurra ára stúlka brenndist á hálsi og herðum á meðan hún var í baði. Hún hafði átt við blöndunartækin án þess að faðir hennar yrði þess var með þessum afleiðingum. Brunasár hennar voru þó minniháttar. Innlent 3.10.2006 21:02 Barnshafandi með 122 karton Tæplega þrítug barnshafandi kona var stöðvuð við reglubundið eftirlit tollvarða aðfaranótt síðastliðins sunnudags með 122 karton af sígarettum í fórum sínum. Sígaretturnar voru faldar í tveimur troðfullum ferðatöskum en mjög óvenjulegt er að gerðar séu tilraunir til að smygla viðlíka magni af þess konar varningi með flugi hingað til lands. Innlent 3.10.2006 21:02 Engin sátt um kvótakerfið Um kvótakerfið ríkir engin sátt og við í Frjálslynda flokknum munum leggja hiklaust í baráttu gegn óbreyttu kerfi sem veikir byggðir landsins eins og dæmin sanna, hvert af öðru, nú síðast þegar 42 prósent af atvinnurétti Grímseyinga var seldur í dag, sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frálslynda flokksins í sinni ræðu. Innlent 3.10.2006 21:02 Ákærður fyrir frelsissviptingu Aðalmeðferð hófst í gær í máli rúmlega sextugs manns sem er ákærður fyrir að hafa í febrúar síðastliðnum haldið konu á þrítugsaldri nauðugri í um hálftíma. Atburðurinn átti sér stað á skrifstofu fyrirtækis í Kópavogi. Innlent 3.10.2006 21:02 Ísþjófur gengur laus í Reykjavík Ísþjófur lét á sér kræla í austurbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. Hann braust inn í flutningabíl og hafði með sér á brott nokkurt magn af hinum ýmsu ístegundum. Auk ísþjófsins bíræfna var tilkynnt um tvö önnur innbrot í borginni. Innlent 3.10.2006 21:02 Öll spil á borðið Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í ræðu á Alþingi í kvöld vera sammála formanni Vinstri grænna um að mikilvægt væri að fá öll spil á borðið varðandi Kaldastríðs árin á Íslandi. Tími sé kominn til að draga fram afstöðu manna á hverjum tíma. Ræða þurfi hvaðan flokkar hafi fengið fjárstuðning á liðnum árum og sagði hann að formenn Samfylkingar og Vinstri grænna hefðu báðir dregið taum utanríkisstefnu Sovétríkjanan á áttunda áratug liðinnar aldar. Innlent 3.10.2006 22:13 Langdýrasta félagsmálastofnun landsins Sjáfstæðisflokkurinn að breytast í langdýrstu félagsmálastofnun landsins þar sem vinum og öðrum er úthlutað embættum, þetta sagði Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, í ræðu sinni á Alþingi í kvöld. Innlent 3.10.2006 22:02 Vill friðlýsa Skerjafjörð Friðlýsing Skerjafjarðar, frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð og undurbúningshópur sem vinnur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum voru meðal umræðuefna Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, á Alþingi í kvöld. Innlent 3.10.2006 21:51 Of mikið hugað að hagsmunum bankanna Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslyndaflokksins, sagði í ræðu sinni á Alþingi í kvöld að brottför hersins væri ánægjuefni. Hernaðarstefna Bush, Bandaríkjaforseta, hefði ekki aukið á vinsældir hans og Bandaríkjahers. Guðjón gerði einnig bankana að umtalsefni sínu en ofverndun væri hér á landi á viðskiptum með lánsfé. Innlent 3.10.2006 21:24 Gera þarf upp Kalda stríðið á Íslandi Nauðsynlegt er að gera upp atburði kalda stríðsins í kjölfar brotthvarfs hersins að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði að leggja þyrfti öll spil á borðið og upplýsa um símhleranir og njósnir sem fólk virðist hafa mátt sæta vegna skoðana sinna. Stofna þyrfti sannleiksnefnd í því máli. Innlent 3.10.2006 21:21 Rangfærslur og misskilningur um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir hafa orðið vart við ótrúlegar rangfærslur og misskilning í umræðunni um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði andstæðinga framkvæmdanna hafa sáð fræjum ótta og kvíða með málflutningi sínum. Ráðherra sagði unnið að samfelldri heildaráætlun um nýtingu og vernd auðlinda. Megin stefnan væri að ráðdeild og aðgát, varúð og virðing ráði ferð við nýtingu þeirra. Innlent 3.10.2006 21:11 Ríkisstjórnin mætir tómhent til leiks Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mætir tómehnt til leiks á nýju þingi að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi í kvöld. Hún segir forsætisráðherra ekki hafa talað um framtíðina í stefnuræðu sinni á þingi í kvöld og sá forsætisráðherra sem geri það ekki sé saddur og fullmettur og hafi ekki brennandi áhuga á að laga það sem betur megi fara. Innlent 3.10.2006 21:01 Hugmyndir um lækkun matvælaverðs kynntar fljótlega Hugmyndir um lækkun matvælaverðs eru á lokastigi og verða kynntar fljótlega. Þetta sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld en vildi þó ekkert segja nánar um útfærsluna. Innlent 3.10.2006 20:14 « ‹ 218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Ríkið sparar í lyfjakaupum Lækka á kostnað ríkisins vegna lyfjakaupa um hálfan milljarð króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Innlent 3.10.2006 21:02
Þremur föngum var ráðinn bani Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal, sem sátu í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu í tvö ár, fullyrða að ekki færri en þrír menn hafi verið myrtir þar, þótt bandarísk yfirvöld hafi haldið fram að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Nær útilokað hafi verið að fremja sjálfsvíg vegna mikillar öryggisgæslu. Þá segjast þeir vita til þess að vörður hafi gengið í skrokk á geðsjúkum manni. Ahmed og Iqbal eru hér á landi í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar Leiðin til Guantanamo, og kom þetta fram í pallborðsumræðum um fangabúðirnar í Iðnó í gær. Innlent 3.10.2006 21:02
Ekki frekar rætt af borginni Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra, lagði það til á fundi borgarstjórnar í gær að þeim tilmælum yrði beint til stjórnar Landsvirkjunar að hámarkshæð vatnsborðs í Hálslóni yrði lækkuð um 20 metra. Með því yrði öryggi mannvirkja aukið, dregið yrði úr hættu á stíflurofi og umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar minnkuð. Við það myndi flatarmál lónsins minnka um 20 ferkílómetra. Innlent 3.10.2006 21:02
Lítil breyting milli mánaða Fylgi stjórnmálaflokkanna breytist nær ekkert milli mánaða, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Innlent 3.10.2006 21:02
Fjárfestar erlendis eiga helming íslenskra ríkisskuldabréfa Fjárfestar sem búsettir eru erlendis áttu íslensk ríkisskuldabréf fyrir 51 milljarð íslenskra króna að markaðsvirði í lok júlí. Þetta nemur helmingi íslenskra ríkisskuldabréfa á móti eign innlendra aðila. Þetta er talsverð aukning á milli ára en á svipuðum tíma í fyrra áttu fjárfestar með búsetu erlendis 27 prósent ríkisskuldabréfa að verðmæti 24 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 3.10.2006 20:17
85 milljónir til ráðstöfunar Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa samtals 85 milljónir króna til frjálsrar ráðstöfunar samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Það er sama fjárhæð og á árinu sem er að líða. Menntamálaráðherra fær mest, 18 milljónir króna, iðnaðar- og viðskiptaráðherra fær 11 milljónir og dómsmála- og heilbrigðisráðherra fá 8 milljónir hvor. Sjávarútvegsráðherra fær minnst, 3 milljónir en aðrir ráðherrar ýmist 5 eða 6 milljónir króna. Innlent 3.10.2006 21:02
Farbann yfir Sainz staðfest Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir Jesus Sainz, einum fimmmenninganna sem sakaðir eru um að hafa stolið vísindaniðurstöðum og viðskiptaupplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í farbann 29. september. Innlent 3.10.2006 21:02
Kjartan Gunnarsson hættur sem framkvæmdastjóri Andri Óttarsson tók í gær við af Kjartani Gunnarssyni sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Staða flokksins er virkilega sterk nú, segir Kjartan. Hlakka til að takast á við krefjandi verkefni, segir Andri. Innlent 3.10.2006 21:03
Gamla hvalstöðin gerð upp Verið er að gera Hvalstöðina í Hvalfirði upp til að hún verði tilbúin ef stjórnvöld ákveða að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni. Innlent 3.10.2006 21:02
Standast prófið Fjármálaeftirlitið hefur reiknað út áhrif af álagsprófi á bankana. Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar á hlutabréfum, markaðsskuldabréfum, vaxtafrystum/virðisrýrðum útlánum og fullnustueignum og áhrifa af lækkun á gengi íslensku krónunnar án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir lögboðið lágmark. Innlent 3.10.2006 21:02
Lést í slysi Konan sem lést í umferðarslysi á Miklubraut um helgina hét Ragnheiður Björnsdóttir, til heimilis á Kleppsvegi 126. Ragnheiður var á gangi eftir brautinni þegar hún varð fyrir bifreið á austurleið. Talið er að hún hafi látist samstundis. Ragnheiður var fædd 10. júní 1951 og því 55 ára þegar hún lést. Hún lætur eftir sig sambýlismann og uppkominn son. Innlent 3.10.2006 21:02
Icelandair skráð í Kauphöllina Áætlanir FL Group um sölu á hlutabréfum í Icelandair tóku óvænta stefnu í gær þegar félagið greindi frá áformum sínum um skráningu Icelandair Group í Kauphöll fyrir áramót. Innlent 3.10.2006 21:02
Vörubifreið full af fiski valt Vörubifreið með eftirvagn fullan af fiski valt á Reykjanesbrautinni í fyrrinótt. Þegar lögreglan kom á staðinn lá vörubifreiðin á hliðinni og hindraði för annarra bíla um aðra akrein vegarins. Lítilsháttar umferðartafir urðu á meðan að beðið var eftir kranabifreið til að hífa vörubifreiðina og eftirvagninn í burtu. Innlent 3.10.2006 21:02
Gaf upp kennitölu annars Tæplega tvítugur maður var stöðvaður af lögreglunni í Reykjavík um miðnættið á mánudagskvöld þar sem skrásetningarnúmer vantaði á framhlið bifreiðar sem hann ók. Innlent 3.10.2006 21:02
Brenndist á hálsi og baki Fernt var flutt á slysadeild á mánudaginn. Fjögurra ára stúlka brenndist á hálsi og herðum á meðan hún var í baði. Hún hafði átt við blöndunartækin án þess að faðir hennar yrði þess var með þessum afleiðingum. Brunasár hennar voru þó minniháttar. Innlent 3.10.2006 21:02
Barnshafandi með 122 karton Tæplega þrítug barnshafandi kona var stöðvuð við reglubundið eftirlit tollvarða aðfaranótt síðastliðins sunnudags með 122 karton af sígarettum í fórum sínum. Sígaretturnar voru faldar í tveimur troðfullum ferðatöskum en mjög óvenjulegt er að gerðar séu tilraunir til að smygla viðlíka magni af þess konar varningi með flugi hingað til lands. Innlent 3.10.2006 21:02
Engin sátt um kvótakerfið Um kvótakerfið ríkir engin sátt og við í Frjálslynda flokknum munum leggja hiklaust í baráttu gegn óbreyttu kerfi sem veikir byggðir landsins eins og dæmin sanna, hvert af öðru, nú síðast þegar 42 prósent af atvinnurétti Grímseyinga var seldur í dag, sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frálslynda flokksins í sinni ræðu. Innlent 3.10.2006 21:02
Ákærður fyrir frelsissviptingu Aðalmeðferð hófst í gær í máli rúmlega sextugs manns sem er ákærður fyrir að hafa í febrúar síðastliðnum haldið konu á þrítugsaldri nauðugri í um hálftíma. Atburðurinn átti sér stað á skrifstofu fyrirtækis í Kópavogi. Innlent 3.10.2006 21:02
Ísþjófur gengur laus í Reykjavík Ísþjófur lét á sér kræla í austurbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. Hann braust inn í flutningabíl og hafði með sér á brott nokkurt magn af hinum ýmsu ístegundum. Auk ísþjófsins bíræfna var tilkynnt um tvö önnur innbrot í borginni. Innlent 3.10.2006 21:02
Öll spil á borðið Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í ræðu á Alþingi í kvöld vera sammála formanni Vinstri grænna um að mikilvægt væri að fá öll spil á borðið varðandi Kaldastríðs árin á Íslandi. Tími sé kominn til að draga fram afstöðu manna á hverjum tíma. Ræða þurfi hvaðan flokkar hafi fengið fjárstuðning á liðnum árum og sagði hann að formenn Samfylkingar og Vinstri grænna hefðu báðir dregið taum utanríkisstefnu Sovétríkjanan á áttunda áratug liðinnar aldar. Innlent 3.10.2006 22:13
Langdýrasta félagsmálastofnun landsins Sjáfstæðisflokkurinn að breytast í langdýrstu félagsmálastofnun landsins þar sem vinum og öðrum er úthlutað embættum, þetta sagði Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, í ræðu sinni á Alþingi í kvöld. Innlent 3.10.2006 22:02
Vill friðlýsa Skerjafjörð Friðlýsing Skerjafjarðar, frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð og undurbúningshópur sem vinnur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum voru meðal umræðuefna Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, á Alþingi í kvöld. Innlent 3.10.2006 21:51
Of mikið hugað að hagsmunum bankanna Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslyndaflokksins, sagði í ræðu sinni á Alþingi í kvöld að brottför hersins væri ánægjuefni. Hernaðarstefna Bush, Bandaríkjaforseta, hefði ekki aukið á vinsældir hans og Bandaríkjahers. Guðjón gerði einnig bankana að umtalsefni sínu en ofverndun væri hér á landi á viðskiptum með lánsfé. Innlent 3.10.2006 21:24
Gera þarf upp Kalda stríðið á Íslandi Nauðsynlegt er að gera upp atburði kalda stríðsins í kjölfar brotthvarfs hersins að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði að leggja þyrfti öll spil á borðið og upplýsa um símhleranir og njósnir sem fólk virðist hafa mátt sæta vegna skoðana sinna. Stofna þyrfti sannleiksnefnd í því máli. Innlent 3.10.2006 21:21
Rangfærslur og misskilningur um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir hafa orðið vart við ótrúlegar rangfærslur og misskilning í umræðunni um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði andstæðinga framkvæmdanna hafa sáð fræjum ótta og kvíða með málflutningi sínum. Ráðherra sagði unnið að samfelldri heildaráætlun um nýtingu og vernd auðlinda. Megin stefnan væri að ráðdeild og aðgát, varúð og virðing ráði ferð við nýtingu þeirra. Innlent 3.10.2006 21:11
Ríkisstjórnin mætir tómhent til leiks Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mætir tómehnt til leiks á nýju þingi að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi í kvöld. Hún segir forsætisráðherra ekki hafa talað um framtíðina í stefnuræðu sinni á þingi í kvöld og sá forsætisráðherra sem geri það ekki sé saddur og fullmettur og hafi ekki brennandi áhuga á að laga það sem betur megi fara. Innlent 3.10.2006 21:01
Hugmyndir um lækkun matvælaverðs kynntar fljótlega Hugmyndir um lækkun matvælaverðs eru á lokastigi og verða kynntar fljótlega. Þetta sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld en vildi þó ekkert segja nánar um útfærsluna. Innlent 3.10.2006 20:14