Innlent

Fréttamynd

Fær ekki að keyra sportbílinn aftur

Ungur ökumaður, sem mældist á ofsahraða skammt frá Húsavík, fær ekki að aka kraftmiklum bíl aftur. Móðir hans lét lögregluna taka kraftmeiri bílinn af honum eftir hraðaksturinn.

Innlent
Fréttamynd

Stórslys í Laxá í Leirársveit

Fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun segir stórslys hafa orðið í Laxá í Leirársveit vegna lagningar hitaveitu efst í ánni. Starfsmenn Hitaveitu Hvalfjarðar segjast vera vinna verk sem þeim var falið og fyrir því séu leyfi.

Innlent
Fréttamynd

Tvö flugfélög bjóða í flug til Eyja

Tvö flugfélög hafa gert tilboð í tímabundna flugþjónustu á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, Flugfélag Íslands og Landsflug. Vegagerðin hefur skilað inn minnisblaði þessa efnis til samgönguráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Frjálslyndi armurinn hefur náð yfirhöndinni

Frjálslyndur armur Sjálfstæðisflokksins hefur náð yfirhöndinni, segir stjórnmálafræðingur í framhaldi af því að Kjartan Gunnarsson hættir sem framkvæmdastjóri flokksins. Ungur lögmaður, Andri Óttarsson, tekur við þessari valdamiklu stöðu af Kjartani.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn takast á í Norðvesturkjördæmi

Sjálfstæðismenn takast á um það í Norðvesturkjördæmi hvort halda eigi prófkjör eða hvort stillt verði upp á lista flokksins fyrir næstu Alþingiskosningar. Tveir ungir sjálfstæðismenn hafa lýst yfir áhuga á því að vera á lista flokksins í kjördæminu.

Innlent
Fréttamynd

Geir flytur stefnuræðu sína í kvöld

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, flytur í kvöld stefnuræða sína á Alþingi. Geir flytur ræðuna klukkan 19:50 en í framhaldinu fara svo fram umræður. Sýnt verður beint frá stefnuræðunni og umræðunum á Vísir.is.

Innlent
Fréttamynd

Á að tryggja að ekki sé óeðlileg mismunun

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um breytingar á lögum um heimild til samning um álbræðslu á Grundartanga. Frumvarpið er í tengslum við stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga

Innlent
Fréttamynd

Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar

Nýtt frumvarp um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ríkið hefur endurgreitt 12% af þeim kostnaði sem fellur til vegna kvikmyndagerðar en lög þess efnis falla úr gildi í lok ársins.

Innlent
Fréttamynd

Mikil endurnýjun í þingmannahópnum

Mikil endurnýjun verður í þingmannahópnum við upphaf næsta kjörtímabils. Sjö þingmenn hafa hætt á kjörtímabilinu og aðrir sjö tilkynnt að þeir hyggist hætta við lok kjörtímabilsins.

Innlent
Fréttamynd

Kvartar til Umboðsmanns Alþingis

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur, hefur lagt fram kvörtun til Umboðsmann Alþingis þar sem þess er óskað að hann láti fara fram mat á því hvort borgarráð hafi farið að settum reglum þegar ráðið ákvað hinn 21.september sl. að ráða Stellu K. Víðisdóttur, viðskiptafræðing í starf sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin - prófkjör í SV kjördæmi

Haldið verður prófkjör vegna vals á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi við Alþingiskosningar vorið 2007. Prófkjörið fer fram laugardaginn 4. nóvember 2006. Rétt til framboðs í prófkjörinu eiga allir félagar í Samfylkingunni sem hafa kjörgengi við Alþingiskosningar 2007.

Innlent
Fréttamynd

Vonbrigði með flutning ratsjárstöðvar

Bæjarráð Bolungarvíkur lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Ratsjárstofnunar að segja upp starfsfólki ratsjárstöðvarinnar á Bolafjalli og flytja hluta starfa þess til höfuðborgarsvæðisins

Innlent
Fréttamynd

Stefnt að skráningu Icelandair fyrir áramót

FL Group og Glitnir hafa gert með sér samkomulag sem felur í sér að Glitnir sölutryggir 51 prósents hlut í Icelandair Group. Þetta þýðir að Icelandair Group hverfur úr samstæðu FL Group þegar áreiðanleikakönnun lýkur. Stefnt er að því að henni ljúki um miðjan október og verður Icelandair Group skráð á hlutabréfamarkað fyrir áramót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Næstmesta verðbólgan á Íslandi

Verðbólga mældist 3 prósent á ársgrundvelli innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í ágúst. Þetta er 0,1 prósentustigi minni verðbólga en mældist fyrir mánuði. Verðbólgan er líkt og fyrri mánuði næstmest hér á landi en mest í Tyrklandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krafist gæsluvarðahalds yfir tvítugum manni

Lögreglan í Hafnarfirði krafðist í gær gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni á tvítugs aldri, sem hún handtók tvisvar um helgina vegna innbrota. Auk þeirra á hann langan brotaferil og vill lögreglan að hann gangi ekki laus þar til hann hlýtur dóm og fer að afplána hann. Dómari tekur afstöðu til kröfu lögreglunnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fjórtán teknir fyrir of hraðan akstur

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði og kærði 14 ökumenn fyrir of hraðan akstur frá klukkan ellefu í gærkvöldi til klukkan tvö í nótt. Þeir voru allir á öðru hundraðinu á götum þar sem hámarkshraði er sextíu.

Innlent
Fréttamynd

Heildarveltan eykst í Kauphöllinni

Heildarveltan í Kauphöll Íslands eru meiri fyrstu 9 mánuði þessa árs en allt árið í fyrra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársfjórðungsyfirliti sem birt var í gær.

Innlent
Fréttamynd

Lokið við stækkun

Norðurál, dótturfélag Century Aluminum Company, hefur lokið gangsetningu allra kera í núverandi stækkunaráfanga álversins á Grundartanga. Vígsluathöfn var haldin af því tilefni þar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Leituðu að sjö ára dreng

Björgunarsveitir í Þingeyjarsýslum voru kallaðar út á níunda tímanum í gærkvöldi til að leita að sjö ára dreng sem hafði ekki skilað sér heim að Laugum í Reykjadal á tilsettum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Slapp lítið meiddur eftir veltu

Tafir urðu á umferð um Reykjanesbraut í nótt eftir að stór dráttarbíll með langan vagn, fullhlaðinn fiski, valt á mótum brautarinnar og Grindavíkurvegar. Ökumaður slapp lítið meiddur.

Innlent