Innlent

Fréttamynd

Frystar afurðir skila mestu

Sjávarútvegur Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam 112 milljörðum króna árið 2005 og dróst saman um 5,7 prósent frá fyrra ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema uppsjávarfisks dróst saman frá fyrra ári en frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutnings­verðmætis.

Innlent
Fréttamynd

Dómsmálaráðherra undrast úrskurðinn

Björn Bjarnason segir Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna hf. vera að hugsa um öryggi almennings með stjórnsýslukæru. Vonandi tekið tillit til öryggissjónarmiða þegar endanlegar ákvarðanir verða teknar, segir Arnar Þór Jónsson.

Innlent
Fréttamynd

Enn að hugsa

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, er enn að velta fyrir sér framboði til embætta innan forystu Framsóknarflokksins. Það liggur ekkert á, það er enn mánuður til flokksþings, sagði Siv í gær. Hún sagði fjóra kosti í stöðunni, að gefa kost á sér til embættis formanns eða varaformanns, sækjast eftir endurkjöri í starf ritara eða draga sig út úr flokksforystunni. Flokksþing Framsóknar fer fram 18. og 19. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi

Tveir Litháar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á amfetamínvökva sem dugað hefði til framleiðslu á 13,3 kílóum amfetamíns til götusölu.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgaði um rúm 12% í maí

Ferðamönnum hingað til lands fjölgaði um tólf og hálft prósent í maímánuði síðastliðnum, miðað við sama mánuð í fyrra. Ríflega 31 þúsund ferðamenn heimsóttu landið í maí. Fjöldi ferðamanna þetta árið er kominn upp í tæp 105 þúsund og nemur fjölgunin tæplega átta prósentum á milli ára.

Innlent
Fréttamynd

Sigurörn flytur í stórt útibúr

Húsdýragarðurinn Sigurörn, haförninn heppni sem Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir frá Grundarfirði bjargaði frá bráðum bana á dögunum, hefur nú verið fluttur í stórt útibúr í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar gefst nú einstakt tækifæri til að skoða þennan konung íslenskra fugla.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert athugavert við kaupin

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir ekkert hafa verið því til fyrir­stöðu að heimila kaup Símans hf. á Radíómiðun.

Innlent
Fréttamynd

Heimahjúkrun verður stórefld

Lyfta á grettistaki í þjónustu við aldrað fólk sem vill og getur búið á eigin heimili. Auka á heimahjúkrun og efla félagslega heimaþjónustu. Nú renna 540 milljónir króna árlega til heimahjúkrunar aldraðra.

Innlent
Fréttamynd

Grímur uppfyllti skilyrðin

Grímur Atlason, þroskaþjálfi, bassaleikari og tónleikahaldari, hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík. Tíu sóttu um starfið, þar á meðal nokkrir viðskiptafræðingar og einn fyrrverandi bæjarstjóri. Hvað nákvæmlega gerði það að verkum að Grímur var ráðinn hefur ekki komið fram en vísast hefur hann uppfyllt skilyrðin sem sett voru.

Innlent
Fréttamynd

Rekkjunautar skaða andlega getu karlmanna

Austurrískir vísindamenn halda því nú fram að karlmenn séu betur settir sofi þeir einir í rúmi. Svefninn verður órólegri ef þeir þurfa að deila rúmi, og það veldur því að andleg geta mannsins verður verri en ella daginn eftir. Konur eru á hinn bóginn betur í stakk búnar til að deila rúmi með öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Formaður Öryrkja- bandalagsins kærður

Áhrifamenn innan Öryrkjabandalags Íslands ætla að kæra formann bandalagsins til Félagsmálaráðuneytisins. Fullyrt er að hann fari offari og hafi ekki staðið við starfslokasamkomulag við fyrrum framkvæmdastjóra.

Innlent
Fréttamynd

Mikill skaði á sumum trjátegundum

Rysjótt tíð í vor hafði slæm áhrif á trjávöxt í landinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Á Suðurlandi og suðvesturhorninu varð mikill skaði á sumum trjátegundum.

Innlent
Fréttamynd

Hagar fagnar tillögum matvælanefndar

Fyrirtækið, Hagar fagnar tillögum matvælanefndar um einföldun á skattlagningu matvæla, minni skattalagningu á matvæli og auknu frelsi til innflutnings á matvörum, sem teljast sjálfsagðar neysluvörur heimilanna.

Innlent
Fréttamynd

Sprengjusérsfræðingar á leið til Patreksfjarðar

Hrefnuskipið Njörður 1438 kom til hafnar í Patreksfirði um hálf átta í kvöld vegna þess að einn skutlinn sprakk ekki. Tveir sprengjusérfræðingar frá Landheglisgæslunni eru nú á leið vestur til að gera skutulinn óvirkann. Búið er að loka hluta hafnarinnar vegna þessa.

Innlent
Fréttamynd

Átta fluttir á slysadeild

Átta manns voru fluttir á slysadeild Landsspítalans-háskólasjúkrahúss eftir bílslys sem varð á Suðurlandsvegi rétt eftir klukkan sex í kvöld. Enginn er í bráðri lífshættu en einn er nokkuð slasaður.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguráðherra lýsir framsóknarmenn ábyrga

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að kosningaloforð framsóknarmanna um níutíu prósenta húsnæðislán hafi hrundið af stað þeirri óheillaþróun í verðlagsmálum sem verði nú til þess að fresta þurfi vegaframkvæmdum á Vestfjörðum og víðar.

Innlent
Fréttamynd

Rýmka á lög um stofnfrumurannsóknir

Stofnfrumurannsóknir hafa verið stundaðar hér á landi í rúman áratug en lög sem gilda um þær koma í veg fyrir að íslenskir fósturvísar séu notaðir í slíkar rannsóknir. Það kann þó að breytast næsta vetur ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp sem nú er í undirbúningi.

Innlent
Fréttamynd

Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins úr sögunni

Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins var úr sögunni í dag þegar Hæstiréttur staðfesti frávísun héraðsdóms. Þar var Jón Ásgeir Jóhannesson sakaður um að hafa blekkt stjórn Baugs í kaupum á 10 -11 verslununum og hagnast sjálfur um 200 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Bílslys á Suðurlandsvegi

Bílslys varð á Suðurlandsvegi rétt eftir klukkan sex í kvöld. Mikill viðbúnaður er á svæðinu og er vegurinn lokaður við Rauðhóla. Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að aka ekki um svæðið.

Innlent
Fréttamynd

Öll olíufélögin hafa lækkað bensínverð

Öll olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni í dag. Olíufélagið Esso var fyrst til að lækka lítrann um eina krónu og tíu aura í morgun og Atlantsolía tilkynnti lækkun skömmu síðar um sömu upphæð.

Innlent
Fréttamynd

Ný leið styrkt um sextán milljónir

Ráðherrar heilbrigðis og félagsmála skrifuðu undir samkomulag við samtökin Nýja leið í dag um að styrkja nýstárlegt meðferðarstarf fyrir ungt fólk með áhættu og geðraskanir um samtals sextán milljónir á tveimur árum.

Innlent
Fréttamynd

Lokahátíð Sumarskólans

Lokahátíð Sumarskólans var haldin í Austurbæjarskóla í dag. Á hverju sumri er unglingum og fullorðnu fólki af erlendu bergi brotnu boðið upp á Sumarskólann þar sem þau læra íslensku og fræðast um íslenskt þjóðfélag.

Innlent