Ítalski boltinn

Milan og Roma töpuðu dýrmætum stigum en Inter vann stórt
AC Milan tapaði dýrmætum stigum í baráttu um sæti í Meistaradeildinni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Cremonese í kvöld. Inter vann 6-0 stórsigur á Verona og er í fjórða sætinu.

Juventus og Atalanta með með mikilvæga sigra í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni
Juventus tyllti sér í annað sæti Serie A eftir 2-1 sigur á Lecce í dag. Þá er Atalanta komið upp í fjórða sæti deildarinnar eftir sigur á Spezia.

Albert og félagar nálgast efstu deild þrátt fyrir töpuð stig
Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Sudtirol í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Juventus bjargaði stigi og batt enda á taphrinuna
Arkadiusz Milik var bæði skúrkur og hetja í liði Juventus er liðið gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Salernitana frestaði fagnaðarlátum Napólí
Napólí verður ekki Ítalíumeistari í dag eftir að gera 1-1 jafntefli við Salernitana í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Inter vann Lazio og Napólí getur orðið meistari í dag
Inter kom til baka og vann Lazio 3-1 í fyrsta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Napólí getur orðið meistari í fyrsta sinn frá árinu 1990 vinni það leik sinn gegn Salernitana í dag.

Bandaríkjamenn varaðir við fagnaðarlátunum í Napólí
Bandaríska sendiráðið í Napólí á Ítalíu hefur varað Bandaríkjamenn í borginni og nærumhverfi við mögulegum fagnaðarlátum þegar Napólí tryggir sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu.

Inter í bikarúrslit á kostnað Juventus
Inter vann 1-0 sigur á Juventus í síðari leik liðanna í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar. Þar sem fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli er Inter komið í úrslit.

Atalanta galopnaði Meistaradeildarbaráttuna með sigri á Rómverjum
Atalanta gerði sér lítið fyrir og vann Roma 3-1 í eina leik kvöldsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigur Atalanta galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti.

Þögull sem gröfin varðandi framtíðina: „Verð að passa mig hvað ég segi“
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku vill lítið gefa upp um það hvað taki við hjá sér að yfirstandandi tímabili loknu. Lukaku er á láni hjá Inter Milan á Ítalíu frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.

Napoli með níu fingur á titlinum eftir sigur á Juventus
Það er fátt sem getur komið í veg fyrir að Napólí standi uppi sem ítalskur meistari en liðið vann í kvöld dramatískan sigur á Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni.

Í beinni: Juventus - Napoli | Mæta toppliðinu eftir stigastökkið
Juventus tekur á móti toppliði Napoli eftir að hafa endurheimt, í bili að minnsta kosti, stigin fimmtán sem dæmd voru af liðinu í vetur. Leikurinn er sýndur á Stöð 2 Sport 2.

Sara Björk spilaði allan leikinn í tapi gegn toppliðinu
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan með Juventus í dag þegar að liðið þurfti að sætta sig við 3-2 tap gegn Roma á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni.

Genoa nálgast efstu deild eftir sigurmark Alberts
Albert Guðmundsson skoraði eina mark leiksins er Genoa vann mikilvægan 1-0 útisigur gegn Cittadella í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Albert og félagar þurfa nú aðeins sex stig í viðbót til að tryggja sér sæti í efstu deild.

Pistill: Pílagrímsferð til Parma
Af einhverjum ástæðum skipar lið Parma á Ítalíu stóran sess í hjörtum margra fótboltaáhugamanna á Íslandi. Ekki er það þó árangur síðustu 20 ára sem kom þeim þangað, en síðustu ár hafa verið nánast einn samfelldur táradalur fyrir stuðningsmenn liðsins.

Juventus fær stigin aftur og fer upp um fjögur sæti
Ítalska stórliðið Juventus skaust upp í þriðja sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þó ekki sé leikið í deildinni í dag.

Sextán ára bið lokið
Í gærkvöldi komst AC Milan í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti í 16 ár.

Óttuðust að eitrað yrði fyrir þeim
Undanúrslitaeinvígi AC Milan og Napoli minnir um margt á harða baráttu liðanna á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Ruud Gullit rifjar upp ferðalag AC Milan til Napoli er liðin kepptust um ítalska meistaratitilinn við Diego Maradona og félaga.

Markalaust hjá Börsungum | Rómverjar upp í þriðja sætið
Það var nóg um að vera í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, og Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í dag. Barcelona gerði markalaust jafntefli við Getafe á Spáni á meðan Roma vann góðan sigur á Udinese og lyfti sér upp í 3. sæti Serie A.

Ótrúleg endurkoma Juventus | Stórsigur hjá Kristianstad
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn í ótrúlegum 4-3 endurkomusigri Juventus gegn Fiorentina þar sem gestirnir komust 3-0 yfir áður en Juventus skoraði fjögur mörk. Í Svíþjóð vann Íslendingalið Kristianstad öruggan 4-0 sigur.

Framherji Lazio á spítala eftir bílslys
Ítalski framherjinn Ciro Immobile lenti í bílslysi í dag og þurfti aðhlynningu á spítala.

Real marði sigur á Cádiz | PSG vann toppslaginn
Real Madríd vann 2-0 útisigur á Cádiz í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mörkin tvö komu undir lok leiks. Þá vann París Saint-Germain toppslaginn í Frakklandi á meðan toppliðin á Ítalíu misstigu sig.

Nef Zlatan til sölu fyrir tæpar 15 milljónir
Nefið af styttunni sem gerð var af Zlatan Ibrahimovic virðist vera til sölu en hópur sem kallar sig „The Noze Club“ hefur boðið ýmsum það til kaups á síðustu dögum.

Segir Mourinho að troða bikarsafninu þar sem sólin skín ekki
Það verður seint sagt að José Mourinho, knattspyrnustjóra Roma á Ítalíu, og Antonio Cassano, fyrrverandi leikmanni Roma sem og ítalska landsliðsins, sé vel til vina.

Lazio styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni
Lazio lagði Juventus að velli með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 29. umferð ítölsku efstu deildinni í fótbolta karla í kvöld.

Dybala tryggði Rómverjum sigur
Roma lagði Torino að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í ítölsku efstu deildinni í fótbolta karla í dag.

Markalaust hjá AC Milan og Empoli
Ítalíumeistarar AC Milan fóru illa að ráði sínu í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Sjálfsmark kom Napoli aftur á sigurbraut | Þórir Jóhann spilaði
Napoli steig stórt skref í átt að Ítalíumeistaratitlinum með torsóttum sigri á Þóri Jóhanni Helgasyni og félögum í Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Dramatík þegar Inter tapaði niður forystunni í uppbótartíma
Internazionale varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Lukaku hafi verið að þagga niður í kynþáttaníð þegar rauða spjaldið fór á loft
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku reyndist hetja Inter er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus í ítölsku bikarkeppninni í fótbolta í gærkvöldi. Lukaku jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma, en fékk svo að líta sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að fagna fyrir framan stuðningsmenn Juvenstus.