Fíkniefnabrot
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 14 ›
Frakki í fangelsi í fjórtán mánuði fyrir fíkniefnasmygl Franskur karlmaður var í síðustu viku dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Hann hafði rúmlega kíló af sterku metamfetamíni meðferðis til landsins frá París. Innlent 10.7.2023 14:05
Tekinn með fimm hundruð töflur af Oxycontin innan klæða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað fimm hundruð töflur af Oxycontin, 80 milligramma, til landsins með flugi í apríl síðastliðinn. Innlent 10.7.2023 07:40
Hvíta húsið rýmt vegna efnis sem reyndist kókaín Hvíta húsið var rýmt um tíma í gærkvöldi eftir að hvítt duft fannst við reglubundið eftirlit. Greining leiddi í ljós að um var að ræða kókaín og er málið nú í rannsókn. Erlent 5.7.2023 06:54
Tekinn með 7,5 kíló af maríjúana í töskunni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir að smygla 7,5 kílóum af maríjúana til landsins. Innlent 3.7.2023 08:53
Langt síðan lögreglan hefur lagt hald á viðlíka magn af hassi Lögreglan hefur staðfest að fíkniefnin sem lagt var hald á í skútu undan Suðurnesjum á laugardag voru hass. Grímur Grímsson segir langt síðan lögreglan hefur lagt hald á slíkt magn af hassi. Innlent 27.6.2023 14:52
Enn eitt skútumálið komið upp hér á landi Enn eitt skútumálið er komið upp hér á landi eftir að umfangsmiklar aðgerðir lögreglu með aðstoð fjölmargra aðila leiddi til handtöku þriggja karlmanna snemma morguns laugardag vegna smygls á miklu magni fíkniefna. Ráðist var til aðgerða undan vestarlega við suðurströnd Íslands. Innlent 26.6.2023 15:49
Handteknir um borð í skútu með mikið magn fíkniefna Tveir voru handteknir um borð í skútu undan suðurströnd Íslands um helgina eftir að mikið magn fíkniefna fannst þar um borð. Þá var þriðji einstaklingurinn handtekinn í landi vegna málsins. Innlent 26.6.2023 14:22
Smyglaði amfetamíni í vínflöskum og hlaut þungan dóm Pólsk kona var í dag sakfelld í Landsrétti fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpum fjórum lítrum af amfetamínbasa frá heimalandinu. Landsréttur mildaði dóm hennar verulega, úr fimm og hálfu ári í fjögur ár. Innlent 23.6.2023 16:34
Dómar í saltdreifaramálinu mildaðir um tvö ár Dómar þeirra Halldórs Margeirs Ólafssonar og Ólafs Ágústs Hraundal fyrir hlut þeirra í saltdreifaramálinu svokallaða voru mildaðir um tvö ár í Landsrétti í dag. Í héraði voru þeir dæmdir til þyngstu mögulegu refsingar, tólf ára fangelsisvistar. Aðrir dómar í málinu voru einnig mildaðir um tvö ár og einn var skilorðsbundinn. Innlent 23.6.2023 15:13
Par vildi ekki kannast við að eiga mikið magn fíkniefna Par var á dögunum dæmt til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, fyrir að hafa haft mikið magn fíkniefna í vörslum sínum á heimili þeirra. Auk fíkniefna fannst hálfsjálfvirk haglabyssa og 1,5 milljón króna í reiðufé. Konan þarf að þola upptöku fjárins, þrátt fyrir segjast hafa aflað þess með barnapössun og kökusölu. Innlent 19.6.2023 14:52
Páll timbursali: „Hefði sætt mig við fjögur til fimm ár“ Páll Jónsson, tæplega sjötugur timbursali sem hlaut nýverið tíu ára fangelsisdóm fyrir stærsta kókaínmál Íslandssögunnar, segist sjá ólýsanlega eftir þeirri ákvörðun sinni að flytja inn fíkniefni. Hann segir dvölina í fangelsinu á Hólmsheiði óbærilega og að hann sé við það að gefast upp. Þá gagnrýnir hann rannsókn lögreglunnar á málinu harðlega og telur spillingu ríkja innan fíkniefnadeildarinnar. Hann telur sig jafnframt vita hver kom lögreglu á sporið. Innlent 15.6.2023 08:00
Tvö og hálft ár fyrir fíkniefnabrot og þjófnað Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í fyrradag karlmann í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og þjófnað, brot sem framin voru á þessu ári. Innlent 2.6.2023 11:01
Þjarma að heilbrigðisráðherra um skaðaminnkun Píratar munu krefja heilbrigðisráðherra svara við spurningum um skaðaminnkun, sem snýr að því að mæta vímuefnaneytendum á þeirra forsendum, í sérstakri umræðu um málefnið á þingfundi í dag. Innlent 1.6.2023 13:30
Krefst þyngingar á þyngstu fíkniefnadómum sögunnar Saksóknari krefst þess að dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svokallaða verði þyngdir. Tveir sakborningar hlutu tólf ára fangelsisdóm í málinu sem eru þyngstu dómar sem fallið hafa í í fíkniefnamáli hér á landi. Innlent 31.5.2023 18:41
Framsal ekki mögulegt í tilfelli Svedda tannar Sverrir Þór Gunnarsson hefur neitað að tjá sig í yfirheyrslum brasilísku alríkislögreglunnar í tengslum við umfangsmikla sakamálarannsókn þar í landi. Sem stendur er hann vistaður í fangelsi í Rio de Janeiro. Ekki kemur til greina að framselja Svedda til Íslands. Innlent 22.5.2023 10:37
Sneri við blaðinu og fékk þriggja ára dóm skilorðsbundinn Árni Khanh Minh Dao var í dag sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa flutt inn rétt tæplega tvö kíló af sterku metamfetamíni, sem er í daglegu tali kallað spítt, í ferðatösku sem hann tók með sér í áætlunarflug árið 2019. Athygli vekur að fullnustu refsingar hans var frestað til fimm ára. Innlent 12.5.2023 15:27
Tókust harkalega á um hvort fíkn væri smitsjúkdómur Þingmenn tókust á um hvort að fíkniefnaneysla sé smitsjúkdómur eða ekki í þættinum Sprengisandi í morgun. Yfirlæknir SÁÁ sagði ekki pláss fyrir refsingu á fíkniefnaneyslu. Innlent 30.4.2023 16:30
Stefnan „stríðið gegn fíkniefnum“ er stórhættuleg, lærum af Portúgal! „Stríðið gegn fíkniefnum“ hefur verið alþjóðleg stefnu í nokkra áratugi, en hún hefur ekki náð markmiðum sínum. Frekar en að draga úr fíkniefnaneyslu og skaða tengt eiturlyfjum hefur það leitt til margvíslegra neikvæðra afleiðinga, þar á meðal fjöldafangelsisvistunnar, aukið ofbeldi, aukin dauðsföll, og útbreiðslu smitsjúkdóma. Skoðun 30.4.2023 13:30
Grunaðir um að hafa smyglað dópi til Íslands í bílapörtum Hollenskir bræður eru grunaðir um að hafa sett upp smyglleið á fíkniefnum til Íslands frá Hollandi. Málið teygir anga sína víðar og er hluti af rannsókn hollenskra yfirvalda sem hófst árið 2020. Erlent 29.4.2023 12:00
Einn deyr úr ofneyslu á tíu klukkustunda fresti í San Francisco Alls létust 200 einstaklingar af völdum ofneyslu fíkniefna í San Francisco fyrstu þrjá mánuði ársins en um er að ræða 41 prósent aukningu frá fyrra ári. Þetta jafngildir því að einstaklingur látist úr ofneyslu á um tíu klukkustunda fresti. Erlent 28.4.2023 11:11
Willum Þór með afglæpavæðinguna á ís Willum Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra upplýsti á þinginu fyrr í dag að hann hefði ákveðið að leggja ekki fram fyrirhugað frumvarp um afglæpavæðingu að svo stöddu. Innlent 27.4.2023 15:01
Ekki verður af afglæpavæðingu neysluskammta Heilbrigðisráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta, líkt og áður hafði verið boðað. Hann segist frekar munu leggja áherslu á skaðaminnkandi úrræði. Innlent 27.4.2023 12:04
Tekinn af lífi fyrir samsæri um innflutning á kílói af kannabis Tangaraju Suppiah, 46 ára, hefur verið tekinn af lífi í Singapúr fyrir samsæri um smygl á kílói af kannabis. Tangaraju var hengdur í morgun, þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna og aðgerðasinna. Erlent 26.4.2023 07:46
Innleiða þurfi aftur aga til að bregðast við ofbeldisöldu og ópíóðafíkn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að innleiða þurfi aftur aga og skilning á því hvað má og má ekki til að bregðast við öldu ofbeldis, aukinni skipulagðri glæpastarfsemi og fíkniefnafaraldri. Gefa þurfi skólastjórendum og lögreglu tækifæri til að senda skýr skilaboð og fylgja þeim eftir. Innlent 25.4.2023 14:58
Strákurinn úr Breiðholti sem gerðist fíkniefnabarón „Hinn ákærði sýnir merki um andfélagslegan persónuleika, sem endurspeglast í því að hann á erfitt með að laga sig að reglum samfélagsins. Hinn ákærði er drifinn áfram af voninni um skjótfenginn gróða.“ Þetta kemur fram í niðurstöðu dómstóls í Ríó de Janeiro árið 2012, þegar Sverrir Þór Gunnarsson var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. Vinur Sverris úr æsku segir hann alltaf hafa verið glæpamann. Innlent 21.4.2023 07:01
„Móðir mín er bara saklaus í hjartanu að gefa barninu hlaup“ Fimm ára stúlka á Selfossi var hætt komin á dögunum eftir að hafa innbyrt hlaupbangsa fullan af kannabisefnum. Móðir stúlkunnar hvetur foreldra til að vera vel á verði. Málið er óupplýst. Innlent 16.4.2023 17:24
Maðurinn sem lést í Brasilíu ekki talinn höfuðpaur Íslenskur maður sem til stóð að handtaka í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir brasilísku lögreglunnar lést úr krabbameini fyrr á þessu ári á meðan rannsókn málsins stóð yfir. Því er ljóst að að minnsta kosti tveir Íslendingar tengjast málinu. Innlent 14.4.2023 12:16
Fleiri handtökur í Brasilíu í máli Svedda tannar Maður var handtekinn síðdegis í gær í borginni Rio de Janeiro, grunaður um aðild að glæpahringnum sem Sverrir Þór Gunnarsson er sakaður um að hafa stýrt. Maðurinn var handtekinn í verslunarmiðstöðinni Barra da Tijuca, í vesturhluta borgarinnar. Brasilískir miðlar greina frá þessu. Innlent 14.4.2023 09:49
Ákærður fyrir að smygla tæplega tveimur kílóum af metamfetamíni Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 32 ára íslenskum karlmanni sem er grunaður um stórfellt fíkniefnabrot. Maðurinn er í ákærunni sagður hafa staðið að innflutningi tæplega tveggja kílóa af metamfetamíni. Innlent 14.4.2023 07:06
Ætluðu að handtaka annan Íslending en hann lést í miðri rannsókn Handtökuskipun var gefin út á hendur tveimur Íslendingum í Brasilíu í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir brasilísku lögreglunnar í gær. Annar þeirra, Sverrir Þór Gunnarsson, var handtekinn en hinn maðurinn lést á meðan rannsókn málsins stóð yfir. Erlent 13.4.2023 20:47