
Besta sætið

„Ég get ekki fellt Vestra“
Besta sætið snéri aftur úr sumarfríi í dag en í dag var farið yfir fréttir vikunnar eins og venjan er á föstudögum.

„Hann hefur sýnt manni í sumar að hann er óreyndur“
Henry Birgir Gunnarsson og Atli Viðar Björnsson klóra sér í kollinum yfir óstöðugleikanum í liði Stjörnunnar í sumar.

„Af hverju er ekki peningur í HK? Það er allt fullt af milljónamæringum þarna í kring“
Henry Birgir Gunnarsson botnar ekkert í því af hverju HK hefur ekki meira fjárhagslegt bolmagn en raun ber vitni.

Komið í veg fyrir flest mörk allra: „Það sem þú vilt sjá frá markverðinum þínum“
Árni Marinó Einarsson hefur átt gott sumar í marki ÍA í Bestu deildinni. Hann fékk hrós frá Atla Viðari Björnssyni í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

„Hann þarf greinilega að borga Stúkumönnum til að peppa sig upp“
Henry Birgir Gunnarsson segir að ummæli Alberts Brynjars Ingasonar í Stúkunni hafi greinilega kveikt í Ísaki Snæ Þorvaldssyni, leikmanni Breiðabliks.

Hrósaði Davíð Smára í hástert: „Minnir á Arnar Gunnlaugsson í viðtölum“
Atli Viðar Björnsson hefur hrifist af framgöngu Davíðs Smára Lamude, þjálfara Vestra, í sumar.

Besta sætið um KR: „Aumingja Gregg Ryder virðist því miður ekki eiga nein svör“
„Það var meðbyr í byrjun, nýr þjálfari og tveir sigrar í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en nánast allt loft er farið úr blöðrunni,“ sagði Ingvi Þór Sæmundsson, þáttastjórnandi Besta sætisins, um lið KR í Bestu deild karla í fótbolta.

„Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“
Það eru spennandi tímar fram undan hjá karlaliði Vals í handknattleik.

„Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“
Það kom flestum í opna skjöldu í morgun er norska liðið Haugesund tilkynnti að Óskar Hrafn Þorvaldsson væri hættur sem þjálfari liðsins.

„Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“
Stefnt er að því að HM í handbolta árið 2031 fari meðal annars fram á Íslandi. Svo það verði að veruleika þá þarf ný Þjóðarhöll að vera klár fyrir þann tíma.

„Með því glórulausasta sem ég hef séð“
Það er um fátt annað rætt í körfuboltaheiminum í dag en pungspark David Ramos, leikmanns Hattar, í leik Vals og Hattar í úrslitakeppni Subway-deildar karla í dag.

„Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“
Úrslitakeppnin í handbolta er farin á fullt og búast flestir við því að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn muni standa á milli FH og Vals.

„Síðasta sem þú átt að gera er að fara á barinn“
Það hefur mikið verið talað um agaleysi í herbúðum Tindastóls síðustu vikur og æði oft sem leikmenn liðsins sjást út á galeiðunni í Reykjavík. Meira að segja helgina fyrir fyrsta leik í úrslitakeppninni.

„Ívar hafði ekki kjarkinn í að gefa Heimi rautt spjald“
Dómgæslan var á allra vörum eftir 1. umferð Bestu deildar karla og fannst flestum of langt vera gengið í að spjalda leikmenn. Yfir 50 spjöld fóru á loft.

„Núna er bara spurningin hvort þeir séu með rétta þjálfarann eða ekki?“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, sé undir mikilli pressu að vinna titil, eða titla, í sumar.

„Held að þeir séu ekki síður hungraðir en í fyrra“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Íslandsmeistarar Víkings geti bætt enn frekar í og segir að spennandi tímabil sé í vændum í Fossvoginum.

„Ótrúlega spenntur að sjá Blikaliðið“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir forsendur fyrir góðu gengi hjá Breiðabliki í Bestu deild karla í sumar.

„Hef aldrei séð aðra eins tilraunastarfsemi“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir Stjörnuna vera spurningarmerki skömmu áður en keppni í Bestu deild karla hefst.

„Velkomnir aftur KR!“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir aukin umsvif KR á félagaskiptamarkaðnum minna á gamla tíma.

„Af hverju tóku önnur lið ekki Viðar?“
Sérfræðingar Stúkunnar velta fyrir sér hverju koma Viðars Arnar Kjartanssonar muni breyta fyrir KA.

„Ég er rosalega á báðum áttum með FH“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, veit ekki alveg hvar hann hefur FH skömmu áður en keppni í Bestu deild karla hefst.

„Með Rúnar Má erum við ekki að gera kröfu á að þeir verði í Evrópubaráttu?“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, finnst teikn á lofti um að ÍA falli ekki í sama pytt og áður, þegar liðið hefur komið upp úr næstefstu deild.

„Reiknum með því að Rúnarsáhrifin verði jákvæð“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, hefur trú á að koma Rúnars Kristinssonar hafi jákvæð áhrif á lið Fram. Hann er spenntur að sjá hvernig hann verður í nýju starfi.

„Algjör synd ef þeir fengju stemninguna í byrjun ekki vestur“
Baldur Sigurðsson og Atli Viðar Björnsson, sérfræðingar Stúkunnar, segja nauðsynlegt fyrir Vestra, nýliðana í Bestu deild karla, að komast sem nýjan heimavöll sinn.

„Þetta er fallhópur“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Fylkismenn tefli á tæpasta vað með því styrkja liðið ekki meira en þeir hafa gert fyrir átökin í Bestu deild karla í sumar.

„Er á báðum áttum með þá sem eru að reka HK og hvernig félaginu er stýrt“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, er á báðum áttum hvað honum finnst um takmarkaða virkni HK á félagaskiptamarkaðnum fyrir Bestu deild karla.

Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“
Guðmundur Guðmundsson á að baki langan og farsælan feril í handboltanum. Fyrst sem leikmaður og nú sem þjálfari. Þrátt fyrir þennan langa feril er Guðmundur hvergi nærri því að fá nóg af öllu þessu handboltabrölti. Hann finnur fyrir gríðarlegri ástríðu fyrir sínu starfi.

„KSÍ í rauninni breytir eigin reglum“
Albert Guðmundsson, hetja íslenska landsliðsins í gærkvöld, fékk ákveðna undanþágu hjá KSÍ til að spila leikinn. Sambandið breytti eigin reglum til að heimila þátttöku hans.

„Benedikt verður í heimsklassa“
Frammistaða Benedikts Gunnars Óskarssonar í bikarúrslitaleiknum var ein sú rosalegasta sem sést hefur í leik hér á landi í áraraðir.

Besta sætið: Engar afsakanir lengur hjá Val
Ekkert annað en Íslandsmeistaratitill kemur til greina hjá Valsmönnum í sumar. Þetta segja Atli Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson.