

Vitaleiðin, ný göngu- og hjólaleið við suðurströndina, verður formlega opnuð á laugardaginn. Leiðin er um 45 kílómetrar að lengd og liggur milli Knarrarósvita, austur af Stokkseyri, og Selvogsvita, vestur af Þorlákshöfn.
Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem geti skapast við sjálfsmyndatökur ferðamanna. Hann segir að annað hvort þurfi að koma upp öruggum útsýnispöllum eða banna sjálfsmyndatökur.
Fjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair í maí var rúmlega tvöfalt fleiri en í síðasta mánuði. Félagið hefur aukið flugframboð sitt að undanförnu í takt við aukna eftirspurn eftir flugi, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu sem vísar til flutningatalna sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.
Tvær gulklæddar verur hættu lífi sínu við brún Dettifoss í þeim tilgangi að taka sjálfsmyndir. Myndband af atvikinu vekur óhug.
Von er á 23 farþegavélum til landsins í dag og hafa þær ekki verið fleiri það sem af er þessu ári. Hröð aukning hefur verið í fjölda komuvéla á Keflavíkurflugvelli síðustu vikur og samhliða því berast fregnir af örtröð í landamæraskimun, starfsmannaskorti ferðaþjónustuaðila og yfirvofandi vöntun á bílaleigubílum.
Með hækkandi sól, fleiri bólusetningum og fjölgun ferðamanna lyftist brúnin á landanum og atvinnulífið tekur við sér. Það er einstaklega ánægjulegt að frétta af sífellt fleirum sem fá vinnu eftir langan tíma í atvinnuleit enda gerir það enginn að gamni sínu að draga fram lífið á bótum sem eru einungis hluti af lægstu launum.
Um níu af hverjum tíu landsmönnum ætla í ferðalag innanlands í sumar þar sem gist er eina nótt eða lengur og ætlar tæplega helmingur að gista á hóteli. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar á vegum Ferðamálastofu.
Goshverinn sem opnaðist á Reykjavöllum í Biskupstungum er í raun borhola frá 1947, sem áður var notuð til að hita upp gróðurhús á svæðinu. Jarðfræðingur segir að ekki sé um að ræða eitthvað sem gerist af náttúrunnar hendi, heldur hafi holan farið að gjósa heitu vatni þegar hreinsað var upp úr henni.
Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku.
„Goshver opnaðist í bakgarðinum hér á Reykjavöllum í hádeginu. Án gríns, og gýs á 17 mínútna fresti.“
Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins.
Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar.
Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar er ekki sérlega spennt fyrir því að ferðaþjónustan fari aftur á fullt. Þau eru viss um að brotum á vinnumarkaði taki aftur að fjölga mjög á næstu mánuðum.
Nú er heimurinn smám saman að opnast á ný og fólk með uppsafnaða ferðaþrá skipuleggur fyrstu ferðalögin eftir heimsfaraldur. Ferðaþjónustan er loksins að vakna til lífsins og fyrirtækin að skipuleggja markaðsaðgerðir og þjónustuframboð eftir að hafa þurft að endurskipuleggja reksturinn ærlega undanfarið ár.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær fyrstu skóflustungu að nýrri 20.000 fermetra viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að hún verði tekin í notkun árið 2024 og heildarkostnaður verði 20,8 milljarðar króna.
Mikil uppbygging er í kortunum í Hveragerði en þar verður nýr áfangastaður sem ber nafnið Gróðurhúsið opnaður í sumar. Þar verður hótel, verslanir, mathöll, kaffihús, bar, ísbúð, sælkeraverslun og annars konar þjónusta í boði fyrir heimamenn og innlenda og erlenda ferðamenn.
Í gær var 15.691 ferðagjöf nýtt, þar af 14.741 að fullu. Heildarupphæð gjafanna sem nýttar voru í gær nam um 80 milljónum króna.
Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik.
Vinnumálastofnun hefur svipt þrjúhundruð og fimmtíu atvinnuleitendur tímabundið eða alfarið atvinnuleysisbótum síðustu tvo mánuði því fólk hefur hafnað störfum án tilhlýðilegra skýringa. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir brýnt að fyrirtæki láti stofnunina vita ef fólk á atvinnuleysisbótum þiggur ekki vinnu.
Framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar telur of marga misnota atvinnuleysisbótakerfið. Fyrirtækið hafi rekið sig á að fólk hafni vinnu og vilji frekar vera á bótum. Framkvæmdastjóri Strætó sem þurfti nýlega að ráða 25 manns til starfa segir hins vegar að auðvelt hafi verið að fá fólk til starfa.
FlyOver Iceland var það fyrirtæki sem hagnaðist mest á ferðagjöfinni svokölluðu en KFC reyndist vinsælasti matsölustaðurinn meðal ferðagjafareigenda. Frestur til að nýta ferðagjöf ársins 2020 rennur út á morgun en þá fá landsmenn nýja ferðagjöf sem gildir út ágúst.
Hvalaskoðunarferðir með ferðamenn eru nú hafnar á ný á Húsavík eftir rólegheit vegna heimsfaraldursins. Mikið af hval er alltaf á Skjálfandaflóa enda svæðið talið eitt það besta í Evrópu til hvalaskoðunar.
Sumarvertíðin byrjaði með gestasprengju hjá Dýragarðinum í Slakka í Biskupstungum þegar garðurinn opnaði dyr sínar að nýju á dögunum. Meira en þúsund manns sóttu garðinn heim og svo mikil var aðsóknin að búa þurfti til fleiri bílastæði til þess að sinna gestaflóðinu.
Isavia reiknar með að tvær milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár sem er minna en vonast var eftir. Um tuttugu flugfélög hafa boðað komu sína í sumar og er búist við að fjöldi brottfara á viku rúmlega tvöfaldist milli ára.
Langar raðir hafa myndast við heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu við Suðurlandsbraut í sýnatökur undanfarna daga. Þrátt fyrir að þónokkur smit hafi greinst utan sóttkvíar undanfarna daga er fjöldinn ekki vegna þeirra smita, heldur endurkomu ferðamanna hingað til lands.
Ólöf Hallgrímsdóttir, einn eigandi Vogafjóss í Mývatnssveit segir það sæta mikilli undrun að ekki sé hægt að fá fólk til að vinna í ferðaþjónustu nú þegar ferðamenn streymi til landsins. Hún segir að fólk á lista frá Vinnumálastofnun neiti ítrekað eða svari ekki þegar því er boðin vinna
Illvígar deilur landeigenda í Skaftárhreppi hafa tafið framkvæmdir annars þeirra á jörð sinni þar sem hann hyggst reisa fjögur til fimm hundruð manna hótel og umfangsmikla ferðaþjónustustarfsemi.
Í nýrri skýrslu ASÍ um áhrif Covid-faraldursins á afkomu launafólks kemur fram að samdrátturinn kom meira niður á viðkvæmum hópum en í öðrum íslenskum kreppum. Þá sé hætta á auknu kerfislægu atvinnuleysi eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Stjórnvöld eru hvött til að huga að bættri stefnumótun í atvinnu- og vinnumarkaðsmálum.
Leiðsögukonan og fjárfestirinn Tinna Sigurðardóttir hefur keypt flúðasiglingafélagið Arctic Rafting af ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures.
Forstjóri Vinnumálastofnunar telur flutning útlendinga frá landinu skýra að hluta að erfitt reynist nú að finna fólk í þúsundir starfa í ferðaþjónustunni. Viðsnúningur sé þó að verða á vinnumarkaði.