Upp­gjörið: ÍR - Haukar 93-96 | Haukar enduðu sigur­göngu ÍR

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Það gerðist tvisvar í leiknum að Everage Richardson skildi Tómas Orra eftir liggjandi á gólfinu með brotna ökkla.
Það gerðist tvisvar í leiknum að Everage Richardson skildi Tómas Orra eftir liggjandi á gólfinu með brotna ökkla. vísir / anton

Eftir fjóra sigurleiki í röð tapaði ÍR gegn botnliði Hauka, 93-96. Haukar leiddu nánast allan leikinn, voru svo næstum því búnir að kasta sigrinum frá sér undir lokin en tókst að vinna, í annað sinn á tímabilinu.

Steeve Ho You Fat var að spila sinn síðasta leik fyrir Hauka í kvöld, samningi hans og Tysons Jolly var sagt upp á dögunum. Sá síðarnefndi var ekki skráður á skýrslu í kvöld en sat samt af einhverjum ástæðum á varamannabekknum, í búning og með reimaða skó.

Steeve Ho You Fat var að spila sinn síðasta leik fyrir Hauka í kvöld.vísir / anton

Ho You Fat var staðráðinn í að klára síðasta leikinn af krafti og byrjaði á nokkrum sterkum stigum í kvöld. Everage Richardson naut sín líka vel á vellinum, með töluvert meira frelsi en áður, og fékk að taka fullt af skotum.

Haukar hristu sig saman og unnu annan sigurinn á tímabilinu. vísir / anton

Haukar tóku þannig forystuna í upphafi og héldu henni lengi. ÍR byrjaði á afturfótunum en eftir leikhlé og skiptingar, þegar Björgvin Hafþór og Dani Koljanin komu inn um miðjan fyrsta leikhluta, fóru hlutirnir að ganga betur og jafnvægi var meðal liðanna.

ÍR byrjaði illa en fór að ganga betur eftir leikhlé í fyrsta leikhluta. vísir / anton
Björgvin Hafþór Ríkharðsson hefur komið af krafti inn í lið ÍR. vísir / anton

ÍR-ingar lentu aldrei langt á eftir gestunum en stífnuðu alltaf upp og tóku skrítnar ákvarðanir þegar þeir komust nálægt því að taka forystuna. Staðan í hálfleik 48-51 fyrir Haukum.

Sagan var sú sama í seinni hálfleik. ÍR átti góð áhlaup en alltaf þegar þeir virtust ætla að jafna tóku Haukar fram úr aftur. 

vísir / anton
vísir / anton

Það var ekki fyrr en undir lok fjórða leikhluta sem ÍR komst loksins yfir.

Fyrirliði liðsins, Hákon Örn, var þá nýbúinn að minnka muninn með þriggja stiga skoti þegar varamannabekkur Hauka fékk tæknivillu. ÍR setti skotið og minnkaði muninn í eitt stig, hélt boltanum og komst svo stigi yfir, 93-92.

Í næstu sókn tókst Steven Verplancken að keyra á körfuna og koma Haukum aftur yfir, 93-94.

ÍR hafði þá tuttugu sekúndur í lokasókninni til að jafna eða komast yfir en missti boltann, og leikinn í leiðinni, frá sér. 

Haukar refsuðu og komust þremur stigum yfir, ÍR reyndi svo örvæntingarskot þegar lokaflautið gall, sem datt ekki niður, og 93-96 sigur Hauka í hús.

Stjörnur og skúrkar

Steeve Ho You Fat kvaddi Hauka með látum, þeirra besti maður í kvöld á eftir Everage Richardson sem endaði stigahæstur með 32 stig. Seppe D‘espallier var eiginlega sá eini í Haukaliðinu sem náði sér ekki almennilega á strik sóknarlega í kvöld, slök skotnýting og tapaði boltanum oft en bætti upp fyrir það með flottum varnarleik.

Hjá ÍR var Matej Kavas að setja stór skot. Björgvin Hafþór og Dani Koljanin komu öflugir inn af bekknum, fyrir Zarko Jukic og Tómas Orra sem áttu ekkert sérstakan leik. Tómasi gekk sérstaklega illa að dekka Everage Richardson og settist á bekkinn með margbrotna ökkla.

Steeve Ho You Fat og Dani Koljanin berjast um boltann. Sá síðarnefndi meiddist í fjórða leikhluta en kom aftur inn á gólf í síðustu sókn leiksins. vísir / anton

Dómarar

Kristinn Óskarsson, Jón Þór og Bjarni Hlíðkvist mynduðu þríeykið í kvöld. Lítið út á þeirra leik að setja.

vísir / anton

Risastór ákvörðun að gefa tæknivillu á bekk Hauka þegar minna en mínúta var eftir, en rétt ákvörðun engu að síður.

Vel haldið utan um hlutina.

vísir / anton

Stemning og umgjörð

Gríðarleg stemning í Ghetto Hooligans. Gæsahúð þegar Í síðasta skipti var spilað fyrir leik og allir sungu með. Góð læti allan leikinn, stuð og stemning eins og á að vera. Umgjörðin algjörlega til fyrirmyndar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira