Formúla 1

Baldur og Heimir Íslandsmeistarar í ralli
Lengsta og erfiðasta rallkeppni ársins, Rallý Reykjavík, fór fram um helgina. Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar eftir þriggja daga keppni.

Leclerc vann fyrsta sigurinn í Formúlu 1
Charles Leclerc vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í dag.

Lést eftir árekstur í Formúlu 2
Hætt var við Formúlu 2 keppni í Belgíu í dag eftir alvarlegan árekstur. Keppnin var fyrst um sinn stöðvuð tímabundið en síðar var ákveðið að hefja ekki keppni á nýjan leik.

Occon til Renault á næsta ári
Frakkinn Esteban Occon mun aka fyrir Renault á næsta ári. Occon gerði tveggja ára samning við liðið og verður því í herbúðum þeirra til ársins 2022.

Upphitun: Formúlan snýr aftur eftir sumarfrí
Þrettánda umferðin í Formúlu 1 fer fram um helgina á einni mögnuðustu kappakstursbraut í heimi, Spa Francorchamps í Belgíu.

Tvær nýjar keppnir í Formúlunni
Dagatalið fyrir næsta tímabil í Formúlu 1 var birt í dag og þá kom í ljós að búið er að bæta við tveimur keppnum.

Myndband | Sjáðu Formúlu bíl framtíðarinnar
Formúla 1 mun breytast verulega árið 2021 þegar að nýjar reglur koma inn. Reglubreytingar munu hafa í för með sér algjörlega nýtt útlit á Formúlu bílunum.

Alonso stefnir á Dakar rallið
Tvöfaldi Formúlu 1 meistarinn Fernando Alonso stefnir á að taka þátt í Dakar rallinu Janúar 2020. Hann hefur verið að prófa Toyota Hilux jeppann og er undirbúningur fyrir rallið kominn á fullt skrið.

Ricciardo: Liðið getur gert betur
Daniel Ricciardo telur að Renault liðið getur gert mun betur en árangur fyrri hluta tímabilsins hefur sýnt. Ástralinn færði sig yfir til Renault frá Red Bull fyrir tímabilið.

Myndband | Þór Þormar meistari annað árið í röð
Íslandsmótin í torfæru réðust um helgina er lokaumferðin fór fram á Akureyri. Þór Þormar Pálsson tryggði sér titilinn í sérútbúna flokknum og meistari í flokki götubíla varð reynsluboltinn Steingrímur Bjarnason.

Albon skiptir við Gasly hjá Red Bull
Tælenski ökuþórinn Alexander Albon mun aka fyrir Red Bull það sem eftir er árs. Hann tekur sæti Pierre Gasly en Frakkinn mun fara aftur til Toro Rosso.

Uppgör: Frábær taktík hjá Mercedes
Lewis Hamilton stóð uppi sem sigurvegari í ungverska kappakstrinum um helgina. Það voru liðsmenn Mercedes sem eiga mestan heiðurinn skilið eftir frábæra taktík í keppninni.

Uppgjörsþáttur eftir kappaksturinn dramatíska í Ungverjalandi
Lewis Hamilton vann sinn áttunda sigur á tímabilinu þegar hann kom fyrstur í mark í ungverska kappakstrinum.

Heimsmeistarinn kom fyrstur í mark í Ungverjalandi eftir dramatík
Max Verstappen náði ekki að verja forystuna í ungverska kappakstrinum.

Fyrsti ráspóll Verstappen
Ökuþórinn Max Verstappen er á ráspól í fyrsta skipti á ferlinum er hann byrjar fyrstur í ungverska kappakstrinum sem fer fram á morgun.

Upphitun: Síðasta keppni fyrir sumarfrí
Það er stutt milli stríða í Formúlu 1 og eftir hasarinn í Þýskalandi fyrir tæpri viku fer nú sirkusinn yfir til Ungverjalands áður en haldið verður í sumarfrí.

Red Bull sló metið aftur
Það tók Red Bull liðið ekki nema 1,88 sekúndu að skipta um öll fjögur dekkin undir bíl Max Verstappen í þýska kappakstrinum um helgina.

Uppgjör: Einn magnaðasti kappakstur sögunnar
Keppnin á Hockenheim brautinni um helgina fer sennilega í sögubækurnar fyrir að vera ein allra skemmtilegasta Formúlu 1 keppni fyrr eða síðar.

Uppgjörsþáttur eftir hamaganginn á Hockenheimring
Mikið úrhelli setti stórt strik í reikning keppenda í þýska kappakstrinum í dag.

Verstappen fyrstur í mark í mögnuðum kappakstri
Þýski kappaksturinn var heldur betur spennandi og viðburðaríkur.

Hamilton á ráspól eftir hrakfarir Ferrari
Lewis Hamilton verður á ráspól þegar þýski kappaksturinn verður ræstur út í Formúlu 1 á morgun eftir að báðir bílar Ferrari biluðu.

Heimsmeistarinn gerir heimildarmynd með leikstjóra Titanic
Lewis Hamilton er ekki aðeins heimsmeistari í Formúlu 1 heldur er hann líka orðinn framleiðandi í Hollywood.

Upphitun: Þýski kappaksturinn um helgina
Nú er tímabilið hálfnað í Formúlu 1, ellefta umferðin fer fram á Hockenheim brautinni í Þýskalandi um helgina.

Önnur sería af Drive to Survive staðfest
Netflix serían Drive to Survive vakti mikla lukku meðal Formúlu 1 áhugamanna í fyrra. Nú hefur önnur sería verið staðfest og verða nú öll lið til umfjöllunar.

„Vettel ætti að yfirgefa Ferrari''
Helmut Marko, stjóri Red Bull, þekkir Sebastian Vettel vel og telur að Þjóðverjinn eigi að fara frá Ferrari.

Vilja færa Silverstone-kappaksturinn svo hann þurfi ekki að deila athyglinni
Breski kappaksturinn féll í skuggann af tveimur öðrum stórum íþróttaviðburðum á Englandi í gær.

Red Bull með hraðasta þjónustuhlé í sögu Formúlu 1
Það tók ekki nema 1,91 sekúndu að skipta um öll fjögur dekkin á Red Bull bíl Pierre Gasly í breska kappakstrinum um helgina.

Uppgjör: Hamilton sigrar og Vettel með enn ein mistökin
Lewis Hamilton hefur nú unnið breska kappaksturinn alls sex sinnum, oftar en nokkur annar. Keppnin á Silverstone um helgina fer sennilega í sögubækurnar fyrir að vera einn sá allra skemmtilegasti frá upphafi.

Uppgjörsþáttur eftir kappaksturinn á Silverstone
Lewis Hamilton vann sögulegan sigur í breska kappakstrinum.

Hamilton vann sögulegan sigur á Silverstone
Enginn hefur unnið breska kappaksturinn oftar en Lewis Hamilton.