Innlent
252 253 254 255 256 257 258 259 260 … 334 ›
Þetta eru lykilatriðin í nýjum kjarasamningi Nú klukkan fimm hefst undirskrift fulltrúa Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins á tímamótasamningi til fjögurra ára. Samningarnir eru merkilegir vegna hóflegra launahækkana og óvenju langs gildistíma sem er fjögur ár. Innlent 7.3.2024 17:00
Sýknuð af ákæru fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem fyrirfór sér Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið sýknuð af ákæru fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér. Innlent 7.3.2024 16:48
Síðasta sláturhúsi Austurlands lokað Sláturfélag Vopnfirðinga hættir brátt rekstri og þar með verður síðasta sláturhúsinu á Austurlandi lokað. Ákvörðunin var tekin á hluthafafundi þann 22. febrúar síðastliðinn án mótatkvæða. Næsta starfandi sláturhús er nú á Húsavík. Innlent 7.3.2024 16:46
Hróp og köll gerð að Bjarna Hróp og köll voru gerð að utanríkisráðherra þegar hann hélt erindi í Veröld- Húsi Vigdísar í hádeginu. Mótmælendur eltu Bjarna út úr byggingunni og háreysti heyrðist inn í sal. Vitni segir þó ekkert uppnám hafa skapast. Innlent 7.3.2024 15:46
Bein útsending: Skrifað undir fjögurra ára kjarasamning Stefnt er að undirritun kjarasamninga til fjögurra ára félaga í Starfsgreinasambandinu, Eflingar og Samiðnar - breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins klukkan 17 í dag. Samningarnir ná til tug þúsunda manna. Ríkisstjórnin kynnir aðkomu sína að samningnum á blaðamannafundi klukkan 18. Allt í beinn útsendingu á Vísi auk þess sem fylgst er með gangi mála í vaktinni. Innlent 7.3.2024 15:35
Sprenging í sérfræðingaleyfum til Víetnama Fjöldi dvalarleyfa, sem gefin eru út til víetnamskra ríkisborgara á grundvelli sérfræðiþekkingar, hefur tvöfaldast milli ára síðustu þrjú ár. Í fyrra var 151 slíkt leyfi gefið út. Innlent 7.3.2024 15:30
Sjálfstæðismenn vilja ekki frían hádegismat Borgarráð samþykkti í dag að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga við gerð kjarasamninga til fjögurra ára sem felur meðal annars í sér að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum og tryggja að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja gjaldfrjálsar skólamáltíðir ekki góða leið til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur. Innlent 7.3.2024 14:00
Kæra gæsluvarðhaldsúrskurði til Landsréttar Fimm af þeim sex sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðari glæpasamstarfi, hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar. Innlent 7.3.2024 13:27
Frelsis- og mannúðarmál að heimila dánaraðstoð Dánaraðstoð verður lögleg á Íslandi ef frumvarp Viðreisnar nær fram að ganga en þó með skilyrðum. Frumvarpið er á dagskrá þingsins í dag. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir þetta vera frelsis- og mannúðarmál. Innlent 7.3.2024 13:04
Ráðast ekki í frekari aðgerðir vegna Davíðs enn sem komið er Mál athafnamannsins Davíðs Viðarssonar og fimm annarra sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um peningaþvætti, mansal og skipulagða glæpastarfsemi er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. Ekki verður ráðist í frekari aðgerðir vegna málsins sem stendur. Innlent 7.3.2024 12:18
Kom til landsins á þriðja eftirnafninu og í tvöföldu endurkomubanni Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. þessa mánaðar á meðan hugsanleg brottvísun hans af landinu er til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Hann hefur ítrekað komið hingað til lands á þremur mismunandi eftirnöfnum. Maðurinn sætir tvöföldu endurkomubanni inn á Schengen-svæðið. Innlent 7.3.2024 12:15
Óvissa um útboð næsta áfanga á Dynjandisheiði Útboð þriðja áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði er í óvissu. Til stóð að bjóða verkið út í febrúar en núna fást óljós svör frá Vegagerðinni um hvort búið sé að fresta útboðinu og hve lengi því muni seinka. Innlent 7.3.2024 12:12
Vongóður um að stjórnvöld geti staðið við kjarnagreiðslu til UNWRA Utanríkisráðherra segist vongóður um að íslensk stjórnvöld geti staðið við kjarnagreiðslu til palestínuflóttamannaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNWRA, í ljósi þeirrar vinnu sem hefur verið unnin í ráðuneytinu. Innlent 7.3.2024 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjarasamningar eru tilbúnir til undirritunar en ekki verður skrifað undir nema sveitarfélögin komi að borðinu. Innlent 7.3.2024 11:37
Einstakt tækifæri fyrir samfélagið og vonar að skrifað verði undir í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að sveitarfélögin komi í sameiningu að aðgerðapakka til að greiða fyrir undirritun kjarasamninga. Hún bindur vonir við að gengið verði frá síðustu lausu endum samninganna í dag. Innlent 7.3.2024 11:08
Innköllun á Prime orkudrykkjum MAST og Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness hafa ákveðið að innkalla sex drykkjartegundir af orkudrykknum Prime Energy í 330 millilítra dósum. Drykkurinn inniheldur L-þíanín sem ekki hefur fengið leyfi í öðrum matvælum en fæðubótaefnum í Evrópu. Innlent 7.3.2024 11:01
Um tíu milljón rúmmetrar af kviku undir Svartsengi Talið er að um tíu milljón rúmmetrar af kviku hafi nú safnast saman í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Miklar líkur eru á kvikuhlaupi sem getur leitt til eldgoss þegar kvikan er orðin átta til þrettán milljón rúmmetrar. Innlent 7.3.2024 10:48
Sveitarfélögin ein komi í veg fyrir undirritun kjarasamninga í dag Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta algjörlega á sveitarfélögunum. Allar deilur við Samtök atvinnulífsins hafi verið leystar en nú bíði stéttarfélögin eftir skýrum skilaboðum frá sveitarfélögunum. Innlent 7.3.2024 10:37
Fara yfir öryggisbúnað og uppfæra hættumat Almannavarnanefnd Austurlands hefur ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð hafið vinnu við að rýna verkferla varðandi skíðasvæðin í Stafdal og Oddsskarði. Snjóflóð féllu þar um síðustu helgi. Innlent 7.3.2024 10:24
Ökumaðurinn alvarlega slasaður en ekki í lífshættu Maðurinn sem lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í nótt er alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalands, en er ekki talinn í lífshættu. Jepplingur sem hann keyrði fór út af veginum og lenti á girðingu. Innlent 7.3.2024 10:16
Lokasprettur kjaraviðræðna með forsætisráðherra Forystufólk breiðfylkingarinnar, Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar mæta til fundar við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10 í morgun til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins. Innlent 7.3.2024 09:53
Heilsugæslan Garðabæ lokuð vegna bruna Heilsugæslan í Garðabæ verður lokuð í dag vegna eldsvoða í aðliggjandi húsnæði á Garðatorgi. Innlent 7.3.2024 09:53
Mikið tjón á Garðatorgi eftir eld í nótt Mikið tjón varð á snyrtistofu á Garðatorgi þar sem eldur kom upp um eittleytið í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á vettvang. Reykur barst í nærliggjandi rými, en á Garðatorgi eru meðal annars heilsugæsla og bæjarskrifstofur Garðabæjar. Engin slys urðu á fólki. Innlent 7.3.2024 08:26
Alvarlegt bílslys á Hafnarfjarðarvegi í nótt Alvarlegt umferðarslys varð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ um þrjúleytið í nótt. Innlent 7.3.2024 07:13
Tilnefningar í biskupskjöri hefjast á ný Tilnefningar í biskupskjöri hefjast í dag en um er að ræða aðra umferð eftir að tæknileg vandamál urðu til þess að ekki var hægt að telja atkvæði eftir fyrstu atrennu. Innlent 7.3.2024 06:33
Sjúklingasamtök fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga Sjúklingasamtök og samtök heilbrigðisstarfsmanna fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga. Þau segja ekki vanþörf á því að sjúklingar á Íslandi geti leitað til utanaðkomandi aðila þegar þeir lenda á vegg í kerfinu og lýsa dæmum í umsögnum. Innlent 7.3.2024 05:45
Röskva kynnir framboðslistana Röskva - samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, kynnti framboðslista sína vegna kosninga til Stúdentaráðs og háskólaráðs Háskóla Íslands í kvöld. Kosningar fara fram síðar í mánuðinum. Innlent 6.3.2024 22:44
Dómari þarf ekki að víkja þrátt fyrir að hafa lýst persónulegri skoðun sinni Hlynur Jónsson, dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, þarf ekki að víkja sæti í hoppukastalamálinu svokallaða. Landsréttur staðfesti í lok síðasta mánaðar úrskurð héraðsdóms, Hlyns sjálfs, þess efnis. Innlent 6.3.2024 21:42
Tveggja milljarða baðlón byggt í Laugarási í Bláskógabyggð Framkvæmdir eru nú hafnar við nýtt baðlón fyrir ferðamenn í Laugarási í Bláskógabyggð en hópur fjárfesta kemur að verkefninu, sem hefur verið í undirbúningi síðustu tíu ár. Innlent 6.3.2024 21:00
Ný nafnskírteini renna út eins og heitar lummur Þjóðskrá hefur hafið útgáfu á tveimur nýjum nafnskírteinum sem gagnast geta sem ferðaskilríki eða eingöngu til að auðkenna sig. Ísland er fyrst ríkja til að gefa út skilríki sem þessi samkvæmt nýjum alþjóðlegum staðli. Innlent 6.3.2024 19:41