Golf
167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 178 ›
Woods vann 13. titilinn Tiger Woods sýndi enn eina ferðina og sannaði að aðrir kylfingar komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana þegar hann bar sigur úr býtum á bandaríska PGA-meistaramótinu á Southern Hill-golfvellinum í Oklahoma. Woods vann þar með sinn 13. stórmótstitil. Woods, sem hafði þriggja högga forystu fyrir lokahringinn, lék hringina fjóra á 272 höggum, tveimur höggum minna en Woody Austin og þremur minna en Suður Afríkubúinn Ernie Els. Golf 12.8.2007 23:42
Tiger með þriggja högga forystu Tiger Woods hefur þriggja högga forystu fyrir lokahringinn á PGA meistaramótinu í golfi. Aðeins fimm kylfingar eru undir pari vallarins. Golf 12.8.2007 13:18
Frábær spilamennska hjá Woods Tiger Woods hefur tveggja högga forystu á Scott Verplank frá Bandaríkjunum eftir tvo hringi á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Southern Hills Country Club-vellinum í Oklahoma. Woods hefur leikið hringina tvo á sex höggum undir pari en hann fór á kostum í gær og spilaði þá á 63 höggum eða sjö höggum undir pari sem er vallarmet. Golf 11.8.2007 00:46
Greame Storm með tveggja högga forystu á PGA mótinu Graeme Storm, er efstur eftir fyrsta dag á PGA meistaramótinu eftir að hafa spilað á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og engan skolla á hinn erfiða Southern Hills völlinn en aðeins 12 kylfingar náðu að spila undir pari á fyrsta hring. Golf 10.8.2007 15:05
Reynir fyrir sér í atvinnumennsku Örn Ævar Hjartarson mun í haust taka þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Mörg þúsund kylfingar sækja um á ári hverju en aðeins um þrjátíu komast inn á mótaröðina. Golf 9.8.2007 04:00
Birgir Leifur í 20. sæti yfir hittnar flatir á evrópsku mótaröðinni Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið að slá boltann nokkuð vel á evrópsku mótaröðinni og sést það vel þegar skoðuð er tölfræðisíða mótaraðarinnar. Hann er í 20. sæti á listanum yfir þá sem hafa hitt flestar flatir að meðaltali í réttum höggafjölda með 13,1 flöt hitta að meðaltali. Golf 7.8.2007 14:44
750 þúsund krónur söfnuðust í einvíginu á Nesinu 750 þúsund krónur söfnuðust til samtakanna „einstök börn“ þegar hið árlega góðgerðarmót í golfi, einvígið á Nesinu fór fram í dag. Venju samkvæmt er 10 sterkum kylfingum boðið til leiks og er leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Einn kylfingur dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn. Golf 6.8.2007 20:22
Tiger Woods sigraði örugglega í Ohio í gær Tiger Woods lék frábæran lokahring og fór með öruggan sigur af hólmi á heimsmótinu í golfi sem lauk í Ohio í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þetta var þriðja heimsmótið í röð sem að Tiger vinnur á Firestone golfvellinum. Golf 6.8.2007 14:34
Birgir Leifur í 69. sæti í Rússlandi Birgir Leifur Hafþórsson lék á 4 höggum yfir pari á lokahring á opna rússnesku mótinu í golfi og er í 70. sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, einn skramba, 2 fugla og paraði 11 holur á lokahringnum. Golf 5.8.2007 13:51
Birgir Leifur spilaði á 74 höggum í dag Birgir Leifur Hafþórsson spilaði fyrsta hringinn sinn á Opna rússneska mótinu á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann er jafn í 73. sæti níu höggum á eftir efsta manni Svíanum Nilsson sem spilaði á 65 höggum í dag. Golf 2.8.2007 18:19
Leik frestað í Rússlandi vegna eldinga Leik hefur verið frestað á Opna Rússneska meistaramótinu vegna eldinga. Birgir Leifur er meðal keppenda á mótinu og er hann á einu höggi yfir pari eftir 11 holur. Hann er búinn að fá fjóra fugla á hringnum, þrjá skolla og einn skramba. Golf 2.8.2007 16:02
Pissilli settur í bann fyrir lyfjanotkun Ítalski golfarinn Allessandro Pissilli hefur verið settur í keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Pissilli greindist jákvæður af sterum á Omnium National mótinu þann 29 júní. Pissilli spilar á Ítalska atvinnumannmótaröðinni gæti hlotið allt að tveggja ára keppnibann fyrir þetta. Golf 2.8.2007 15:37
Birgir Leifur í baráttunni í Rússlandi þessa vikuna Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram baráttunni sinni á evrópsku mótaröðinni þessa vikuna þegar hann spilar í Rússlandi. Hann hefur lækkað um 21 sæti á peningalistanum og er hann kominn í 177. sæti. Golf 1.8.2007 14:38
Furyk fór holu í höggi og sigraði í Kanada annað árið í röð Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk varði titil sinn í Kanada um helgina. Hann fór holu í höggi á fjórðu holunni og komst þá í forystu sem hann lét ekki af hendi. Hann spilaði á 64 höggum á síðasta hring og endaði mótið 16 höggum undir pari og var einu höggi á undan Vijay Singh. Fyrir 13. sigur sinn á mótaröðinni fékk hann 900.000 dollara. Golf 30.7.2007 15:42
Björgvin á 3 högg á Örn Ævar þegar mótið er hálfnað Björgvin Sigurbergsson úr GK hefur þriggja högga forystu í karlaflokki þegar Íslandsmótið á Hvaleyrinni er hálfnað. Hann lék hringinn í dag á 70 höggum, eða einu höggi undir pari og er samtals á 138 höggum, eða 4 höggum undir pari. Golf 27.7.2007 20:06
Anna Jódís og Valdís efstar í kvennaflokki Anna Jódís Sigurbergsdóttir úr GK og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL deila efsta sæti eftir fyrsta hring í kvennaflokki á Íslandsmótinu á Hvaleyrinni. Þær léku báðar hringinn í dag á 75 höggum, eða 4 höggum yfir pari. Golf 26.7.2007 20:38
Þrír deila efsta sæti í karlaflokki Þeir sem voru ræstir út eftir hádegi í karlaflokki á fyrsta hring á Íslandsmótinu á Hvaleyrinni hafa ekki verið að ógna skori þeirra bestu sem kláruðu hringinn fyrr í dag. Ástæðan fyrir því er að hluta til sú að nokkur vindur hefur verið á vellinum eftir hádegi, en þeir sem fóru út í morgun fengu logn eða hæga norðan golu. Golf 26.7.2007 19:32
Harrington hefði líklega hætt í golfi ef hann hefði ekki unnið Opna breska Írinn Padraig Harrington sigraði 136. Opna breska meistaramótið um helgina þegar hann vann Sergio Garcia í fjögurra holu umspili eftir einna mest spennandi lokaholur síðustu ára. „Ef ég hefði tapað eftir það sem gerðist á átjándu þá veit ég ekki hvort að ég hefði áhuga á því að spila golf aftur,” sagði Harrington. Golf 24.7.2007 15:14
Harrington sigraði á opna breska Predraig Harrington vann í dag sigur á opna breska meistaramótinu í golfi eftir æsispennandi bráðabana við Spánverjann Sergio Garcia. Þetta var fyrsti sigur Harrington á stórmóti á ferlinum og var hann jafnframt fyrsti Írinn til að vinna sigur á mótinu í 60 ár. Golf 22.7.2007 18:42
Garcia í vænlegri stöðu á opna breska Spánverjinn Sergio Garcia er í góðri stöðu til að vinna sitt fyrsta stórmót á ferlinum eftir að hann lauk öðrum hringnum á opna breska meistaramótinu á tveimur höggum undir pari í dag. Hann er því samtals á níu höggum undir pari fyrir lokadaginn og sýndi fádæma öryggi í dag. Golf 21.7.2007 19:45
Tiger sló í höfuðið á konu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í höfuðið á sextugri konu á sjöttu brautinni á opna breska í dag. Ekki var skotið þó með öllu mislukkað því boltinn hrökk af höfði konunnar og inn á brautina á ný. Woods baðst að sjálfssögðu afsökunar og gaf konunni áritaðan hanska í miskabætur. Sauma þurfti tvö spor í höfuð hennar. Golf 21.7.2007 17:04
Garcia með tvö högg í forskot Golf Spánverjinn Sergio Garcia lék annan hringinn á opna breska meistaramótinu á pari og hefur tveggja högga forskot á hinn sjóðheita K.J. Choi þegar tveir hringir eru eftir. Golf 21.7.2007 04:00
Sergio Garcia í forystu á opna breska Spænski kylfingurinn Sergio Garcia hefur tveggja högga forystu í fyrsta sætinu á opna breska meistaramótinu í golfi eftir fyrsta hringinn, en hann lék frábært golf í dag og lauk keppni á 65 höggum - sex höggum undir pari. Írski kylfingurinn Paul McGinley er í öðru sæti tveimur höggum á eftir og höggi þar á eftir koma fimm aðrir kylfingar. Tiger Woods spilaði fyrsta hringinn á tveimur undir pari - 69 höggum - en hann stefnir á að vinna mótið þriðja árið í röð. Golf 19.7.2007 20:01
Kylfingar fagna símabanni á opna breska Algjört farsímabann hefur verið sett á Carnoustie á meðan Opna breska Meistaramótið fer fram. Leitað verður á öllum áhorfendum áður en þeir fara inn á svæðið og þeir sem gleyma að skilja símana sína eftir heima getið geymt þá í geymslum við völlinn. Golf 18.7.2007 20:30
Fjöldi kylfinga notar ólögleg lyf Suður-Afríski kylfingurinn Gary Player segir að fjöldi golfleikara í dag sé að nota ólögleg lyf til að bæta árangur sinn í keppni. Player er 71 árs gamall og vann á sínum tíma níu stórmót. Hann segist vita fyrir víst að minnst tíu spilarar séu að nota vaxtarhormón. Golf 18.7.2007 17:28
Rögnvaldur Magnússon jafnaði vallarmetið á Syðridalsvellinum í Bolungarvík Rögnvaldur Magnússon, kylfingur úr GBO, jafnaði 3 ára gamalt vallarmet Syðridalsvallar í Bolungarvík á föstudaginn, er hann fór þriðja hringinn á 70 höggum (-1) á meistaramóti GBO. Rögnvaldur átti metið sjálfur ásamt Chatchai Phothiya sem einnig kemur úr GBO. Golf 16.7.2007 10:28
Havret sigraði á Opna skoska Franski kylfingurinn Gregory Havret sigraði í dag Opna skoska meistaramótinu eftir að bráðaban þurfti til að fá sigurvegara. Havret fór hringina fjóra fór á 14 höggum undir pari, líkt og Phil Mickelson. Golf 15.7.2007 17:40
Montgomerie komst ekki áfram á Opna skoska Colin Montgomerie komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi á Opna skoska mótinu í gær og er þetta í fyrsta sinn sem það gerist. Hann lék hringinn í gær á 74 höggum og var samtals á einu höggi yfir pari og hafnaði í 71.-88. sæti og var einu höggi frá því að komast áfram. Monty sigraði á Evrópumótaröðinni um síðustu helgi og var það fyrsti sigur hans í 19 mánuði. Golf 14.7.2007 15:45
Appelby efstur á PGA mótinu - Tiger vinnur enn á Ástralinn Stuart Appleby er í forystu á AT&T PGA mótinu sem fram fer í Marylandfylki í Bandaríkjunum eftir þrjá hringi. Hann er með tveggja högga forskot á Kóreumanninn KJ Choi eftir að hann lék á 68 höggum í gær, Choi var á 70 höggum. Golf 8.7.2007 12:28
Heiðar á höggi yfir pari Þeir Sigurpáll Geir Sveinsson og Heiðar Davíð Bragason hefja leik á opna Skánarmótinu ekki sem best, en Sigurpáll er 2 höggum yfir pari eftir fyrsta hring á Landskrona vellinum. Heiðar Davíð hefur leikið 12 holur og er á einu yfir pari. Heiðar er í 45.-65. sæti, en Sigurpáll er í 66.-91. sæti af 155 keppendum. Golf 7.7.2007 16:55