Viðskipti
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Skúli í Subway sýknaður Skúli Gunnar Sigfússon, oft kenndur við skyndibitastaðinn Subway, var í dag sýknaður af ákæru fyrir millifærslur af bankareikningi félags sem stefndi í gjaldþrot. Tveir til viðbótar voru sýknaðir af ákæru héraðssaksóknara í málinu. Viðskipti innlent 12.1.2021 15:54
Bandarískt fyrirtæki festir kaup á LS Retail Bandaríska fyrirtækið Aptos hefur undirritað samning um kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail sem sérhæfir sig í þróun verslunar- og afgreiðslukerfa. Í tilkynningu frá LS Retail er Aptos sagt vera leiðandi fyrirtæki í tæknilausnum fyrir verslanir og að íslenska fyrirtækið verði starfrækt sem sjálfstæð eining innan Aptos samstæðunnar. Viðskipti innlent 12.1.2021 14:48
Kristinn Harðarson ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Kristinn mun stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljóti. Viðskipti innlent 12.1.2021 11:02
Rólegra yfir leigumarkaðnum en íbúðamarkaðnum á tímum faraldurs Á sama tíma og íbúðaverð tók að hækka í kjölfar vaxtalækkana á seinni hluta síðasta árs hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu að jafnaði staðið í stað. Frá janúar og fram í maí mældist lækkun milli mánaða samkvæmt nýþinglýstum leigusamningum en síðan tók við lítils háttar hækkun milli mánaða fram að október þegar verð tók að lækka. Viðskipti innlent 12.1.2021 10:42
Bein útsending: Skattadagurinn 2021 Skattadagurinn 2021 er haldinn í dag og hefst dagskráin klukkan 9. Hægt er að fylgjast með dagskránni í streymi hér á Vísi. Viðskipti innlent 12.1.2021 08:30
Ragnheiður Elín ráðin framkvæmdastjóri Alor Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf. Viðskipti innlent 12.1.2021 08:01
Þess virði að gefa starfsfólki von Bólusetning í augsýn gefur án efa tilefni til meiri bjartsýni framundan en áður fyrir atvinnulífið um allan heim. Rannsóknir sýna þó að það er árangursríkari leið fyrir stjórnendur að efla von hjá starfsfólki en bjartsýni. Hvers vegna? Atvinnulíf 12.1.2021 07:02
Parler ætlar í hart við Amazon Samfélagsmiðillinn Parler ætlar að höfða mál gegn Amazon eftir að fyrirtækið neitaði að hýsa vefsíðu miðilsins áfram. Ákvörðun Amazon kom í kjölfar þess að bæði Google og Apple ákváðu að fjarlægja Parler úr smáforritaverslunum sínum. Viðskipti erlent 11.1.2021 22:04
Hvetur til skipaflutninga til að létta á þjóðvegakerfinu Framkvæmdastjóri Odda á Patreksfirði, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis sunnanverðra Vestfjarða, segir galið að allir þungaflutningar landsins fari um þjóðvegakerfið. Hann hvetur til skipaferða og að ferjusiglingar yfir Breiðafjörð verði efldar. Viðskipti innlent 11.1.2021 21:34
Samsung kynnti vélmenni sem taka úr vélinni og nöldra í þér Tæknirisinn Samsung kynnti nýjar tegundir vélmenna í dag sem ætlað er að aðstoða við rekstur heimila. Það gerði fyrir tækið á Consumer Electronic Show eða CES sem er með töluvert breyttu sniðið þetta árið. Viðskipti erlent 11.1.2021 19:33
Fjölmiðlafólk á meðal umsækjenda hjá Reykjavíkurborg Alls bárust 45 umsóknir um stöðu teymisstjóra samskiptateymis Reykjavíkurborgar, en staðan var auglýst til umsóknar í byrjun desember. RÚV greinir frá. Viðskipti innlent 11.1.2021 19:07
Kólus innkallar Risaþrista Sælgætisframleiðandinn Kólus hefur ákveðið að innkalla Sambó Ristaþrist í fimmtíu gramma umbúðum. Ástæðan er sögð sú að aukabragð hafi borist úr plastumbúðum í vöruna. Talið er mögulegt að tilvikin geti verið fleiri að því er segir í tilkynningu frá Kólus. Viðskipti innlent 11.1.2021 16:35
Rúmlega tuttugu ára sögu Café Bleu lokið Kaffihúsinu Café Bleu, sem starfrækt hefur verið í Kringlunni frá árinu 1999, hefur verið lokað. Eigendur kaffihússins segjast sjá á eftir fjölmörgum fastakúnnum en tími hafi verið kominn á breytingar. Nýr veitingastaður verður opnaður í rýminu að loknum framkvæmdum. Viðskipti innlent 11.1.2021 13:48
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða framvegis fyrir áskrifendur Stöð 2 verður hrein áskriftarstöð frá og með 18. janúar. Frá og með þeim tíma verður kvöldfréttatími Stöðvar 2 aðeins aðgengilegur áskrifendum. Sama gildir um Sportpakkann, Ísland í dag og annað fréttatengt efni sem hefur verið í opinni dagskrá. Viðskipti innlent 11.1.2021 11:25
Parler ekki lengur aðgengileg Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum. Viðskipti erlent 11.1.2021 08:39
Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára „Við erum nú þegar starfandi í þremur löndum og að vera dreift fyrirtæki er okkar styrkur. Við erum í samtölum við sjúkrahús, tryggingafélög, lyfjafyrirtæki og aðrar stofnanir í mörgum heimsálfum og munum einblína á að byggja upp þekkingu til að geta veitt viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu,“ segir Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir framkvæmdastjóri RetinaRisk. Atvinnulíf 11.1.2021 07:01
Amazon neitar að hýsa Parler Amazon hefur tilkynnt samfélagsmiðlinum Parler að fyrirtækið muni ekki hýsa síðuna vegna brota á notendaskilmálum. Því mun Parler ekki lengur vera aðgengileg nema síðan finni sér nýjan stað til þess að hýsa vefinn. Viðskipti erlent 10.1.2021 09:02
„Ég er djarfur að upplagi“ „Metnaðurinn lá í handboltanum en ég vildi samt klára rekstrartæknifræðina og ná mér í reynslu í atvinnulífinu. Því á þessum tíma gastu ekki treyst á að handboltinn yrði lífsviðurværið,“ segir Valdimar Grímsson þegar hann skýrir út hvers vegna hann tók ekki fyrstu atvinnutilboðunum erlendis frá í handbolta á sínum tíma. Atvinnulíf 10.1.2021 08:00
Innkalla tvær tegundir af Monster Monster Ltd og CCEP hafa innkallað orkudrykkina Monster Lewis Hamilton LH44 og Monster Vanilla Espresso. Allar aðrar tegundir Monster-drykkja, svo sem Monster Green og Ultra, verða ekki fyrir áhrifum vegna þessarar innköllunar. Neytendur 9.1.2021 17:45
Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. Atvinnulíf 9.1.2021 10:00
Risarnir beina spjótum sínum að „miðli málfrelsisins“ Samfélagsmiðillinn Parler er nú undir smásjá Apple og Google vegna þess efnis sem deilt er þar inni, en það er sagt hvetja til samskonar óeirða og urðu í Washington á miðvikudag. Miðillinn var stofnaður í ágúst árið 2018 en fór að sækja verulega í sig veðrið á síðasta ári eftir að sífellt fleiri stjórnmálamenn á hægri væng stjórnmálanna fóru að nýta hann til þess að ná til stuðningsmanna sinna. Viðskipti erlent 9.1.2021 08:47
Leiðrétta nýkynntar sóttvarnareglur: Engar breytingar hjá verslunum Heilbrigðisráðuneytið hefur sent frá sér leiðréttingu og áréttað að engar breytingar verði gerðar á takmörkunum í verslunum þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi þann 13. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 8.1.2021 15:16
Skilja ekki rökin á bak við tillögu Þórólfs Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, skilur ekkert í að þrengja eigi að verslunum frá og með 13. janúar næstkomandi. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag væntanlegar breytingar á sóttvarnareglum, með fyrirvara um að faraldurinn haldist í lágmarki. Viðskipti innlent 8.1.2021 14:48
Ósáttur með að krár þurfi áfram að hafa lokað: „Munurinn er þessi eina kleina!“ „Okkur finnst verulega að okkur vegið og mikil mismunun í gangi,“ segir kráaeigandinn Arnar Þór Gíslason um nýjar reglur um samkomutakmarkanir sem kynntar voru í hádeginu. Viðskipti innlent 8.1.2021 14:20
Tesla Model 3 mest seldi bílinn á Íslandi Tesla Model 3 var mest seldi bíllinn á Íslandi á síðasta ári en 858 slíkir rafbílar voru nýskráðir árið 2020. Næst á eftir kom tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander en 773 slík eintök voru nýskráð hér á landi, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Viðskipti innlent 8.1.2021 13:36
Strengur orðinn meirihlutaeigandi í Skeljungi Fjárfestingafélagið Strengur á nú 50,06% hlut í Skeljungi að teknu tilliti til eigin bréfa Skeljungs. Er Strengur nú orðið meirihlutaeigandi eftir kaup á bréfum í alls 16 viðskiptum í gær samkvæmt tilkynningum til Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 8.1.2021 11:20
Sylvía frá Icelandair til Origo Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur hún sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti erlent 8.1.2021 09:08
Straumar og stefnur atvinnulífsins 2021 Atvinnulífið mun taka margt með sér frá árinu 2020 og það telst varla fréttnæmt í dag að fjarvinna er komin til að vera. En hver verða „trendin" árið 2021 og hvaða áherslur verða einkennandi fyrir atvinnulífið? Atvinnulíf 8.1.2021 07:01
Boeing greiðir 2,5 milljarða dala fyrir að leyna upplýsingum um 737 Max slysin Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur ákveðið að greiða 2,5 milljarða Bandaríkjadala, eða um 316 milljarða íslenskra króna, fyrir að hafa leynt upplýsingum um Boeing 737 Max vélarnar í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa. Framleiðandinn gerir það í stað þess að hætta á að málið fari fyrir dómstóla. Viðskipti erlent 7.1.2021 23:00
Musk tekur fram úr Bezos Eignir frumkvöðulsins Elon Musk eru nú metnar á yfir 185 milljarða Bandaríkjadala og er hann því orðinn ríkasti maður heims. Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hafði áður trónað á toppnum frá árinu 2017. Viðskipti erlent 7.1.2021 22:36