Sport

Steven Gerard yfirgefur Liverpool

Umboðsmaður Steven Gerard fyrirliða Liverpool hefur staðfest í samtali við enska fjölmiðla að slitnaði hafi uppúr viðræðum um nýjan samning milli leikmannsins og félagsins. Gerard á 2 ár eftir af samningi sínum við Liverpool en nú þykir líklegt að hann yfirgefi félagið.  Hann er sagður með 80 þúsund pund í vikulaun eða 9,2 milljónir króna.  Umboðsmaður hans er sagður hafa farið fram á 10-20 þúsund punda launahækkun.  Ef Gerard gengur ekki frá samningi við Liverpool verður hann seldur fyrir 30 – 35 milljónir punda.  Tvö lið þykja þá helst koma til greina; Real Madríd og Chelsea.  Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Chelsea ætlaði að bjóða 37 milljónir punda í franska landsliðsmanninn hjá Juventus, David Trezeguet.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×