Fótbolti

Kominn með HM húðflúr

Marco Materazzi er mikið fyrir húðflúr og hefur nú skellt einu á sig til minningar um sigurinn á HM í sumar
Marco Materazzi er mikið fyrir húðflúr og hefur nú skellt einu á sig til minningar um sigurinn á HM í sumar NordicPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn umdeildi Marco Materazzi hjá Inter Milan er búinn að fá sér enn eitt húðflúrið og er það minnisvarði um sigur Ítala á HM í sumar. Materazzi komst þar eins og allir vita í heimsfréttirnar með því að verða fyrir reiðum skalla Zinedine Zidane, en ítalski varnarmaðurinn skoraði líka mark Ítala í leiknum dramatíska.

Á myndinni hér til hliðar sem tekin var á leik Inter og Bayern í Meistaradeildinni í gær, má sjá áletrunina "Berlín - 09-07-2006" en það er dagsetning úrslitaleiksins á HM. Fyrir ofan þessa áletrun er greinilegt að kappinn hefur látið setja á sig mynd tengda þessu þema, en ekki er hægt að greina hvort þar er á ferðinni andlitsmynd af Zinedine Zidane eða eitthvað annað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×