Rick Perry sækist eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi 14. ágúst 2011 12:00 Rick Perry
Spenna er að færast í forkosningar bandaríska repúblikanaflokksins eftir að ríkisstjóri Texas lýsti yfir framboði sínu. Tveir sigurstranglegustu frambjóðendurnir eru strangkristnir íhaldsmenn. Rick Perry, ríkisstjóri Texas, tilkynnti í gær að hann muni sækjast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna í kosningunum 2012, en hann naut mikils stuðnings innan flokksins jafnvel áður en hann hóf kosningabaráttu sína. Perry er strangkristinn íhaldsmaður, og hélt meðal annars stóran bænafund um síðustu helgi sem 30 þúsund manns sóttu, en hann hefur lagst gegn fóstureyðingum og auknum réttindum samkynhneigðra. Í fyrstu opinberu framboðsræðu sinni léku trúmál þó hverfandi hlutverk. Þegar hann tilkynnti um framboðið réðst hann að efnahagsstefnu núverandi ríkisstjórnar og sakaði ríkisstjórn Baracks Obama um að eyða arfi bandarískra barna í mislukkaðar örvunaraðgerðir, sem ekki hafi tekist að draga úr atvinnuleysi í landinu. Þá lagðist hann einnig gegn umbótum Baracks Obama á heilbrigðiskerfi bandaríkjanna. Mörg ný störf hafa hins vegar orðið til í heimaríki Perrys, en talið er að hann muni keyra á þeim árangri í forkosningunum. En þó trúarleg íhaldssemi hafi ekki verið í forgrunni hjá Perry fyrsta kastið verður annað sagt um frambjóðandann Michele Bachman, þingmanns úr Minnesota. Hún kemur best út úr skoðanakönnunum í Iowa, þar sem fyrstu forkosningar Repúblikanaflokksins fara fram. Hún nýtur mikils stuðnings innan teboðshreyfingarinnar, en talið er að Perry muni hrifsa hluta af því fylgi til sín. Í ræðu hennar í ríkinu lagði hún áherslu á að hjónaband væri á milli karls og konu og klykkti út með að þakka guði fyrir fjölskylduna sem grunneiningu samfélagsins.
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fleiri fréttir Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu Fundu óvænt merki um mögulegt örverulíf á Mars Weinstein lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 og lungnabólgu Vaxandi áhrif hlýnunar á úrkomumynstur og fellibyli Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Obama-hjónin lýsa yfir stuðningi við Harris Skemmdarverk unnin á hraðlestarlínum umhverfis París Einn valdamesti fíkniefnabarón heims handtekinn Neitar að staðfesta kappræður við Harris fyrr en eftir útnefninguna Sagðist ekki myndu þegja um Gasa eftir fund með Netanyahu Trump veltir fyrir sér möguleikanum á því að vera myrtur af Írönum Skógareldar í Jasper-þjóðgarðinum dreifast í byggð Sjá meira