Erlent

Afmælisdagarnir komu upp í lottóinu - vann milljarð

Heppin
Heppin
Sjötíu og þriggja ára kona frá Kaliforníu í Bandaríkjunum getur þakkað börnum sínum og barnabörnum fyrir að hafa unnið níu milljónir bandaríkjadollara í lottó á dögunum. Því konan keypti miða á hverjum miðvikudegi með afmælisdögum þeirra og viti menn á miðvikudaginn síðasta komu afmælisdagarnir upp. Hún er í skýjunum samkvæmt fréttavef AP og segist ætla að kaupa sér nýtt hús en hún hefur búið í lítilli íbúð síðustu ár. Konan á sex börn og átta barnabörn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×