Erlent

„Vampíra“ handtekin fyrir líkamsárás

Vampíra. Myndin er að sjálfsögðu úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Vampíra. Myndin er að sjálfsögðu úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Kona í Flórída var handtekin á föstudaginn eftir að hún réðst á eldri borgara og beit hann í andlitið. Sjálfur lýsti fórnarlambið, sem er 69 ára gamall karlmaður, því þannig fyrir lögreglu að hann hefði sofnað í hjólastjól undir skyggni á veitingastað til þess að skýla sér fyrir úrhellisrigningu.

Þegar hann vaknaði sat tuttugu og tveggja ára gömul kona klofvega yfir honum og sagðist vera vampíra. Konan beit hann í andlitið þannig að á honum stórsá. Hún flýði af vettvangi, en var handtekinn skömmu síðar. Konan var illa til reika þegar lögreglan fann hana. Hún var fáklædd og virtist ekki muna hvað hún hafði gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×