Byggja 7 þúsund manna völl á flugmóðurskipi Trausti Hafliðason skrifar 24. september 2011 21:32 Flugmóðurskiptið USS Carl Vinson. Nordic Photos / AFP
Fyrsti körfuboltaleikurinn á flugmóðurskipi verður leikinn 11. nóvember í San Diego í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn bandaríska háskólakörfuboltans hafa, með leyfi bandaríska sjóhersins, ákveðið að byggja sjö þúsund manna völl á dekki flugmóðurskipsins USS Carl Vinson. Hér má sjá teikningu af körfuboltavellinum á skipinu. Það verða lið Norður Karolínu háskólans (University of North Carolina) og Ríkisháskólans í Michigan (Michigan State University) sem munu mætast á þessum óvenjulega velli en fyrrnefnda liðinu er af flestum spekingum spáð sigri í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur. Gert er ráð fyrir því að 3.500 hermönnum verði boðið á leikinn sem verður sýndur beinni útsendingu í Bandaríkjunum á sjónvarpsstöðinni ESPN. Ef svo ólíklega vill til að ekki verði hægt að leika á skipinu vegna veðurs verður leikurinn leikinn í flugskýli í San Diego. Hið ríflega 30 ára gamla skip er engin smásmíði. Það er 333 metra langt og rúmar um 90 flugvélar eða þyrlur. Flugmóðurskipið risavaxna komst síðast í fréttirnar fyrir um fimm mánuðum þegar Osama bin Laden var drepinn. Lík hans var flutt um borð í skipið og því sökkt í sjóinn eftir að gengið hafði verið frá því að hætti Múhameðstrúarmanna. Eins og áður sagði fer leikurinn fram 11. nóvember, sem er almennur frídagur í Bandaríkjunum en þá er lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar minnst.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira