Erlent

Hefur áhyggjur af barnabarninu - hann drekkur eins og kálfur

Drengurinn drekkur beint af spena.
Drengurinn drekkur beint af spena.
Kambódískur afi á við heldur sérkennilegt vandamál að stríða. 20 mánaða gamalt barnabarn hans er farið að haga sér eins og kálfur.

Drengurinn sá kálf drekka af spena og hermdi eftir hegðun dýrsins. Afinn segir að í fyrstu hafi hann reynt að halda drengnum frá spena kýrinnar, en það hafi ekki dugað til, barnið fær sér að drekka tvisvar á dag.

Drengurinn, sem heitir Tha Sophat, hefur búið hjá afa sínum og ömmu síðan foreldrar hans fóru til Tælands í leit að vinnu.

Afi drengsins segir kúnni alveg sama um að drengurinn drekki af spenanum. Sjálfur er hann hinsvegar áhyggjufullur að slíkt gæti orðið slæmt fyrir heilsu drengsins haldi hann uppteknum hætti. Hægt er að nálgast fréttina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×