Rússar ekki í vandræðum með Finna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. september 2011 20:28 Kirilenko í baráttu undir körfunni í dag. Nordic Photos / Getty Images
Keppni á Evrópumeistaramótinu í körfubolta hélt áfram í dag en þá tryggðu Rússar og Makedónar sér sæti í fjórðungsúrslitum keppninnar. Rússar unnu nokkuð öruggan sigur á Finnum, 79-60, á meðan að Makedónía vann aðeins tveggja stiga sigur á Georgíu, 65-63. Bæði Rússar og Makedónar eru með fullt hús stiga og öruggir um sæti í fjórðungsúrslitunum. Í sama riðli vann Grikkland mikilvægan sigur á Slóveníu, 69-69, og er í þriðja sæti síns riðils í milliriðlakeppninni. Fjögur efstu liðin úr hvorum milliriðli komast áfram í fjórðungsúrslitin. Í hinum riðlinum eru Frakkar öruggir áfram. Andrei Kirilenko skoraði fjórtán stig fyrir Rússa í dag og var stigahæstur en hjá Finnum skoraði Shawn Huff fjórtán stig. Mestu munaði um skelfilegan annan leikhluta hjá Finnum er liðið skoraði aðeins sex stig. Bo McCalebb átti frábæran leik í liði Makedóna en hann skoraði sigurkörfuna þegar aðeins tvær sekúndur voru til leiksloka. Staðan í leiknum var þá 63-63 og gerði McCalebb sér þá lítið fyrir og keyrði í gegnum vörn Georgíu að körfunni og skoraði með sniðskoti. Hann skoraði alls 27 stig í leiknum en miklu munaði um að Zaza Pachulia gat ekki spilað með Georgíu í dag vegna meiðsla. Keppni heldur áfram á EM í Litháen á morgun og þá í hinum milliriðlinum. Þýskaland og Tyrkland eigast við í mikilvægum leik um hvort liðið ætlar að gera atlögu að því að koma sér í fjórðungsúrslitin en þessu lið eru í tveimur neðstu sætum riðilsins.Leikirnir á morgun: 12.30 Spánn - Serbía 15.00 Þýskaland - Tyrkland 18.00 Litháen - Frakkland
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira