Hafnfirðingar hafa ekki efni á að hjálpa 4. júlí 2011 04:00 Enginn strætó fer um Álftanes á kvöldin og um helgar. Álftnesingar vilja fjölga ferðum en hafa ekki efni á að greiða reikninginn. Fréttablaðið/heiða „
Hafnfirðingar eru með milljarðalán í vanskilum, eru að skera niður og hagræða á öllum sviðum og með mjög erfiða lausafjárstöðu. Mér finnst það algjörlega galið að leggja til að sveitarfélagið greiði reikninga fyrir aðra,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfjarðar. Á fundi bæjarráðsins 23. júní síðastliðinn var fjallað um erindi frá stjórn Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH) þar sem farið var á leit að þau auki framlög sín í byggðasamlagið Strætó bs. í eitt ár vegna breyttrar þjónustu við Álftanes. Strætó gengur í um tólf klukkustundir á virkum dögum á Álftanes, á milli klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Engar ferðir eru á kvöldin og um helgar. Erindið barst eftir fund fulltrúa Álftaness og Strætó þar sem fjallað var um óskir um tíðari ferðir Strætó á Álftanes. Fram kom á fundunum að miðað við núverandi fjárhagsstöðu hafi Álftnesingar ekki ráð á að leggja meira fé til Strætó bs. Áætlað er að útgjöld sveitarfélaganna vegna þessa verði um tíu til fjórtán milljónir króna á ári. Þar af mundu útgjöld Hafnarfjarðarbæjar vegna þessa aukast um 1,5 til tvær milljónir króna á mánuði til áramóta. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður bæjarráðsins og formaður Strætó bs., segir tillögu SSH hafa borist seint daginn fyrir fund bæjarráðs. Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH, hafi verið gestur á fundinum og því ákveðið að hann kynnti málið fyrir bæjarráði Hafnarfjarðar. Ekki hafi átt að afgreiða málið á sama tíma enda ekki hluti af útsendri dagskrá. Hún bætir við að of snemmt sé að segja til um afdrif málsins enda eigi eftir að afgreiða það í öðrum sveitarfélögum sem hlutdeild eiga í Strætó bs. Málið hefur verið afgreitt af hálfu Garðbæinga. Hún telur líkur á að tillaga stjórnar SSH verði afgreidd í næstu viku. Rósa segir Hafnfirðinga eiga í nægu basli með sig. Ekki sé á bætandi að greiða fyrir bætta þjónustu við sveitarfélag sem hafi ekki sjálft efni á henni. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi Innlent Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar Innlent Réðst á ferðamann og rændi hann Innlent Krefjast rannsóknar eftir að ung kona var skotin í höfuðið Erlent Kýldi tvo lögregluþjóna í andlitið Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Farið lent en fararnir urðu eftir Erlent Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar Innlent Gjaldþrot flugfélags leiddi til fyrstu flugvélasmíði Íslands Innlent Smali slasaðist við smalamennsku Innlent Fleiri fréttir Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Hundi haldið sofandi eftir amfetamíneitrun Ljósanæturuppgjör og stórtónleikar Skálmaldar Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi Staða innflytjenda og kæra vegna Búrfellsvirkjunnar Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar Kýldi tvo lögregluþjóna í andlitið Gjaldþrot flugfélags leiddi til fyrstu flugvélasmíði Íslands Réðst á ferðamann og rændi hann Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar Smali slasaðist við smalamennsku Stúlkan er fundin Leikskólabörn og 88 ára harmoníkuleikari Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata „Þetta má aldrei gerast aftur“ Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund „Það skánar ekki við að búa til eins auglýsingu með karllíkama“ Klæðing fauk af veginum í hvassviðri Slökkviliðinu sigað á grunlausa grillara Rausnarskapur Kiwanisklúbbsins Ölvers í Þorlákshöfn Af og frá að einhver sé sýndur í neikvæðu ljósi Tvöfalda viðbúnað á Ljósanótt í kvöld „Við erum öll harmi slegin“ Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Hraun gæti náð Reykjanesbraut og umdeild auglýsing Play Þrjár líkamsárásir á Ljósanótt Stal verðmætum fyrir 6,3 milljónir á tveimur árum Aukinn úrtölutónn í umræðum um loftslagsvá Nær dauða en lífi á bráðamóttökunni Sáu skefti sem reyndist vera af gasskammbyssu Sjá meira